Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 5 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Leikskóladvöl 2020-2021 - Araklettur
Leikskólinn Araklettur biður foreldra að sækja um leikskóladvöl fyrir skólaárið 2020-2021 eigi síðar en 31. maí n.k. Frekari upplýsingar um leikskólann og umsóknareyðublöð er að finna hér fyrir neðan.
Leikskólinn Araklettur er við Strandgötu á Patreksfirði. Hann var byggður 1984 og tók til starfa í september það ár. Áður en leikskólinn var byggður var starfræktur gæsluvöllur á sama stað frá árinu 1965. Nafnið Araklettur hlaut leikskólinn á 10 ára afmæli sínu þegar efnt var til samkeppni um nafn meðal starfsfólks. Nafnið er dregið af örnefni í grennd skólans. Þrjár deildir starfa á Arakletti; yngsta deildin Klettur, miðdeildin Krókur og elsta deildin Kot.