Nýtt skólaár hefst
Grunnskólarnir í Vesturbyggð verða settir miðvikudaginn 21. ágúst kl. 10:00. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 22. ágúst.
Skrifað: 20. ágúst 2019
Patreksskóli verður settur í Patreksfjarðarkirkju. Þangað eru allir velkomnir og foreldrar hvattir til að mæta með börnunum. Forráðamenn nemenda í 1. bekk eru svo beðnir um að fylgja skólakrökkunum í kennslustofu að setningu lokinni.
Bíldudalsskóli verður settur í skólanum. Þangað eru sömuleiðis allir velkomnir og foreldrar nemenda í 1. bekk eru beðnir að fylgja nemendur til stofu eftir skólasetninguna.
Í Patreksskóla eru nærri 100 nemendur skráðir til leiks en tæplega 40 á Bíldudal. 27 starfsmenn starfa við skólann á Patró en 9 á Bíldudal.
Skráning í frístund, mötuneyti og fleira
Skráning er hafin í skólamötuneyti, frístund, íþróttaskóla og tónlistarskóla á vefnum. Öll skráning fer nú fram á rafrænum eyðublöðum sem finna má á heimasíðunni og hér að neðan. Til að fylla eyðublöðin út og senda þarf rafræn skilríki eða Íslykil. Hægt er að fá aðstoð í ráðhúsi Vesturbyggðar.