Ferðaþjónusta
Á Bíldudal, Tálknafirði og Patreksfirði eru tjaldstæði fyrir ferðamenn og á svæðinu er margvísleg þjónusta fyrir gesti. Þar má nefna sýningar og söfn, gistingu og veitingar. Upplýsingamiðstöð ferðamanna veitir allar nánari upplýsingar fyrir ferðalanga.