Frístund
Frístund er starfrækt við grunnskólana á Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal. Þar býðst nemendum í 1.-4.bekk að dvelja frá skólalokum til kl 16:00 alla skóladaga. Boðið er upp á síðdegishressingu í frístundinni alla daga.
Í frístundinni una nemendur inni og úti við leik undir umsjón starfsmanns. Allar almennar hegðunar– og umgengnisreglur skólanna gilda og farið er eftir uppbyggingarstefnunni í agamálum.
Frístundin er opin alla skóladaga samkvæmt útgefnu skóladagatali. Val er um að hafa nemendur í frístundinni til kl 15:00 eða 16:00 2-5 daga í viku. Nemendur eru sendir heim að frístund lokinni. Frístundin á Patreksfirði er starfrækt í Patreksskóla, á Tálknafirði í Tálknafjarðarskóla og á Bíldudal er hún starfrækt í húsnæði Skrímslasetursins.
Skrá verður nemendur í mánuð í senn en ef dvöl er ekki sagt upp fyrir mánaðarmót er gert ráð fyrir áframhaldandi dvöl. Nemendur fara í íþróttaskólann og tónlistarskólann úr frístundinni. Það hefur ekki áhrif á gjaldið. Greiðsluseðlar eru sendir út mánaðarlega. Systkinaafsláttur er samtengdur milli leikskóla, daggæslu og frístundar.
Tilkynna þarf til starfsmanns tilfallandi breytingar á dvalartíma, til dæmis ef barnið að fara annað eftir skóla eða vegna veikinda og leyfa. Skráningu og breytingar á dvalartíma á að tilkynna með tölvupósti.
Frístund Bíldudal
Lilja Rut Rúnarsdóttir
Strandgata 7
Sjá á korti
Frístund Patreksfirði
Ásdís Snót Guðmundsdóttir
Patreksskóli
Sjá á korti
Frístund Tálknafirði
Birna Friðbjört S. Hannesdóttir
Sveinseyri
Sjá á korti