Viðbrögð við áföllum

Þegar um áföll er að ræða sem tengjast nemendum eða starfs­fólki skólans fer ákveðið vinnu­ferli í gang eftir eðli áfallsins. Mark­miðið er að sýna hlýju og nærgætni, styrkja og styðja við bakið á þeim sem verður fyrir áfalli. Mikil­vægt er að hafa nánasta aðstand­anda alltaf með í ráðum og bera allar aðgerðir skólans undir hann til samþykkis. Æski­legt er að umsjón­ar­kenn­arar og foreldrar séu í nánu sambandi þegar það á við. Gott samstarf við heim­ilin eru ómet­an­legur stuðn­ingur við nemendur.

Í eftir­far­andi skjali má finna vinnu­áætlun svo bregðast megi við áföllum sem nemendur og starfs­fólk geta orðið fyrir sem og upplýs­ingar um áfallaráð skólans. Áfalla­áætlun er vinnu­áætlun svo bregðast megi fumlaust og ákveðið við þegar áföll verða, svo sem bráð veik­indi, alvarleg slys, dauðs­föll eða aðrir atburðir sem líklegir eru til að kalla fram áfall­a­streitu eða sorg­ar­við­brögð.

Áfallaráð

Áfallaráð gerir vinnu­áætlun svo bregðast megi við áföllum sem orðið hafa svo sem bráð veik­indi, alvarleg slys, dauðs­föll eða aðrir þeir atburðir sem líklegt er að kalli fram sorg­ar­við­brögð og/eða áfall­a­streitu. Mikil­vægt er að huga að óskum fjöl­skyldna þeirra sem í hlut eiga hverju sinni. Áfallaráð skal sjá um að allt starfs­fólk skólans fái kynn­ingu á því hvernig bregðast skuli við áföllum. Einnig þarf áfallaráð að sjá til þess að kenn­arar og annað starfs­fólk sem að áfalla­hjálp vinnur fái stuðning og aðstoð.

Áfallaráð skal funda strax og skólastarf hefst að hausti og kanna hvort breyt­ingar hafi orðið á aðstæðum nemenda, starfs­fólks eða aðstand­enda vegna dauðs­falla, alvar­legra veik­inda, slysa eða annarra áfalla. Áfallaráð skal taka ákvörðun um viðbrögð og/eða aðgerðir. Skóla­stjóri heldur utan um slíkar aðgerðir en umsjón­ar­kennari viðkom­andi nemanda/nemenda og aðrir eru kall­aðir til eftir aðstæðum hverju sinni. Auk þeirra mun skóla­sál­fræð­ingur vera innan handar. Í áfalla­ráði sitja eftir­far­andi:

Skóla­stjóri: Ásdís Snót Guðmunds­dóttir Sími: 450 2321 / 863 0465
Deild­ar­stjóri Patreks­skóla: Jónína Helga Sigurð­ar­dóttir Sími: 8655717
Örygg­is­trún­að­ar­maður: Kris Bay Sími: 854 6655
Sérkennari: Helga Gísla­dóttir Sími: 868 7541
Skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ingur: Árný Magnús­dóttir Sími: 450 2000 / 866 4506
Sókn­ar­prestur: Kristján Arason Sími: 846 6569

Mikil­vægt er að huga að óskum fjöl­skyldna þeirra sem í hlut eiga hverju sinni. Við skipulag áfalla­hjálpar og viðbragða, þarf að hafa í huga alla þá einstak­linga sem koma að starfi skólans, s.s. nemendur, aðstand­endur og starfs­fólk skólans.

Áfallaráð skal sjá um að allt starfs­fólk skólans fái kynn­ingu á því hvernig bregðast skuli við áföllum. Einnig þarf áfallaráð að sjá til þess að kenn­arar og annað starfs­fólk sem að áfalla­hjálp vinnur fái stuðning og aðstoð.


Áföll

Dæmi um áföll:

  • Alvarleg slys (nemanda, aðstand­enda eða starfs­fólks skólans)
  • Alvarleg veik­indi (nemanda, aðstand­enda eða starfs­fólks skóla)
  • Lang­vinnir sjúk­dómar (nemanda, aðstand­enda eða starfs­fólks)
  • Andlát (nemanda, aðstand­enda, starfs­fólks eða maka starfs­fólks)
  • Slys í vett­vangs­ferðum eða á skóla­tíma
  • Langvar­andi veik­indi nemenda
  • Ofbeldi gegn nemanda
  • Fang­elsun náins ættingja
  • Manns­hvarf

Áföll tengd nemendum skólans

Viðbrögð við slysi/andláti nemanda/nemenda

  1. Áfallaráð
  • Kalla áfallaráð saman til fundar áður en nýr skóla­dagur hefst, ásamt umsjón­ar­kennara viðeig­andi bekkjar og þeim sem málinu tengjast.
  • Stað­reyndir málsins kynntar.
  • Farið yfir viðbrögð skólans samkvæmt áætlun.
  1. Skóla­dag­urinn og nemendur
  • Útdeila hlut­verkum til starfs­manna vegna tilkynn­ingar eða aðstoðar.
  • Hringja í hjálp­arlið ef eitt­hvað er t.d. foreldra, kennara eða aðra sem að málinu koma.
  • Skoða stunda­töflur og skóla­hús­næði m.t.t. breyt­inga og ákveða hvar nemenda­hópar fá tilkynn­ingu. Undirbúa skóla­daginn og hvernig öllum aðstæðum á að vera háttað.
  • Kalla út sérgreina­kennara, stuðn­ings­full­trúa, skóla­liða m.t.t. hverjir aðstoða umsjón­ar­kennara við að taka á móti nemendum og tilkynna í bekki.
  • Finna ættingja- og vinahóp viðkom­andi í skól­anum. Tryggja aðgang að aðstand­endal­istum nemenda.
  • Tryggja að nákvæmar upplýs­ingar komi til og frá skól­anum og velja ákveðna starfs­menn til að afla þeirra og miðla upplýs­ingum til nemenda / foreldra / fjöl­miðla.
  • Kveikja á kertum, hafa blóm og flagga eftir að aðstæður hafa verið metnar.
  1. Tilkynn­ingar
  • Almenn tilkynning til starfs­fólks á starfs­manna­fundi áður en kennsla hefst.
  • Allt starfs­fólk skólans sett inn í stöðuna og skipulag skóla­dagsins kynnt.
  • Starfs­manna­fundur:
    • Hvað gerðist og hugs­anleg áhrif á nemendahóp.
    • Hverjum tengist viðkom­andi t.d. systkini, vinir, vina­hópar, s.s. félags­starf, íþrótta­félag eða annað.
    • Hvernig er best að svara spurn­ingum frá nemendum og foreldrum, t.d. slys, sjálfsvíg, alvarleg veik­indi eða annað.
    • Hvernig er best að haga skóla­starfinu það sem eftir er dags og næstu daga.
  • Koma upp athvarfi þar sem hægt er að vera í fámenni, t.d. hjá hjúkr­un­ar­fræð­ingi.
  • Hvaða hjálp fáum við utan skólans, t.d. prestur, sálfræð­ingur o.fl.
  • Hverjir svara fólki utan skólans.
  • Ákveða annan fund og yfir­fara stöðu.
  1. Nemendur
  • Tilkynning til nemenda í smáum hópum. Bekkur mæti allur á sama tíma.
  • Halda áfram með hefð­bundið skólastarf eins og kostur er.
  1. Aðstoð
  • Aðstoða umsjón­ar­kennara að tilkynna í bekki. Umsjón­ar­kenn­arar tilkynna ef þeir treysta sér til. Hafa til taks stuðn­ings­aðila.
  1. Upplýs­ingaflæði
  • Tryggja upplýs­ingaflæði til og frá skóla.
  • Foreldrum nemenda í viðkom­andi bekk/bekkjum tilkynnt um atburðinn áður en rætt er við fjöl­miðla.
  • Senda bréf heim og segja frá því sem gerðist og hvernig skólinn hyggst taka á málum.
  • Mikil­vægt að athuga hvaða nemendur eru fjar­ver­andi og tryggja að allir fái skilaboð.
  • Láta foreldra sækja börn sín þennan dag.
  1. Áfalla­hjálp
  • Tilfinn­ingaleg úrvinnsla fyrir þá sem tengjast atburð­inum beint, í höndum sérfróðra aðila, t.d. Rauði krossinn.
  • Áfallaráð og umsjón­ar­kennari hittist daglega eða eins og þörf krefur fyrstu daga eftir áfallið.
  1. Fram­haldið
  • Gera áætlanir um fram­haldið
  • Heim­sókn á heimili / gjöf til foreldra, dreifi­bréf og tilkynn­ingar.
  • Loka vegna jarð­ar­farar / ákveða hvort vera eigi minn­ing­ar­at­höfn í skól­anum.
  • Minn­inga­greinar frá bekk, umsjón­ar­kennara, starfs­fólki eða skóla­stjóra.
  • Minn­ingabók / spjöld um nemanda.
  • Bjóða aðstand­endum einhverjum dögum eftir jarð­arför að koma í skólann og sjá það sem nemendur hafa unnið til minn­ingar um hinn látna og sækja jafn­framt skóladót hans.

Viðbrögð við slysi/andláti foreldra eða annarra náinna ættingja, þ.m.t. sjálfsvíg

  • Fá stað­fest­ingu á andláti hjá foreldrum, hjúkr­un­ar­fræð­ingi eða lögreglu.
  • Kalla áfallaráð saman og viðkom­andi umsjón­ar­kennara og skipta niður verkum og ákveða fyrstu viðbrögð skólans.
  • Hver á að tilkynna andlátið?
  • Kveðja frá skól­anum heim til nemanda/nemenda.
  • Hver ætlar að taka á móti nemanda/nemendum?
  • Hvernig ætlar skólinn/bekk­urinn að taka á móti nemanda/nemendum?
  • Tilkynna öllu starfs­fólki skólans um atburðinn.
  • Tilkynna atburðinn í bekkinn/bekkina. Athuga 8. Lið í andlát vegna nemanda/nemenda. Ekki hika við að kalla til stuðn­ings­aðila til að aðstoða við tilkynn­ingu ef þörf er á eins og skóla­stjóra, prest, hjúkr­un­ar­fræðing, náms­ráð­gjafa eða aðra.
  • Gera þarf áætlun um fram­hald. Fylgjast með líðan nemanda/nemenda, styðja við bak umsjón­ar­kennara og gera ráðstaf­anir ef til sérfræði­að­stoðar þyrfti að koma.

Viðbrögð við slysi í vettvangsferðum á skólatíma

  • Starfs­maður metur hversu alvar­legt slysið er og kallar því eftir hjálp ef þurfa þykir, 112.
  • Starfs­maður hefur samband við skóla­stjóra og umsjón­ar­kennara og gefur þeim skýrslu af slysinu.
  • Skóla­stjórn­endur ákveða fram­haldið, t.d. að láta foreldra vita af atburð­inum.
  • Skóla­stjórn­endur ákveða eftir eðli slyss hvort áfalla­áætlun fer í gang og áfallat­eymi kemur saman

Dauðsfall starfsmanns

  • Láta foreldra vita svo þeir hafi tæki­færi til að ræða við börnin sín.
  • Umsjón­ar­kenn­arar greina nemendum sínum frá atburð­inum. Ef um er að ræða umsjón­ar­kennara, tilkynnir skóla­stjóri nemendum í viðkom­andi bekk frá atburð­inum þar sem einhver úr áfalla­ráði er viðstaddur. Einnig er gott að fá hjúkr­un­ar­fræðing, sálfræðing eða prest til aðstoðar. Ef eitt­hvert barn­anna fer út úr stof­unni þarf einhver full­orðinn að fylgjast með því. Gefa þarf börn­unum góðan tíma fyrir viðbrögð og spurn­ingar. Sýnið eigin sorg, en missið ekki sjálfs­stjórn.
  • Verið hjá börn­unum í frímín­útum og matar­hléum. Reynið að fá fleiri full­orðna í lið með ykkur til að fylgjast með viðbrögðum barn­anna og til að veita innbyrðis stuðning.
  • Útbúa samúð­arkveðju, skrifa minn­ing­ar­grein, syngja lag sem börn­unum finnst viðeig­andi, biðja bæn, teikna myndir, skrifa bréf til fjöl­skyld­unnar, lesa ljóð eða sögu. Leyfið börn­unum að koma með eigin reynslu­sögur. Kveikja má á kerti, setja blóm eða einhvern persónu­legan hlut á borð hins látna. Rétt er að enginn setjist í sæti hans fyrst um sinn. Gefið sorg­inni tíma.
  • Greinið börn­unum frá því sem mun gerast næstu dagana, kistu­lagning og jarð­arför. Fáið prestinn í lið með ykkur.
  • Kennslu­stundir næstu dagana þarf að brjóta upp, ef spurn­ingar vakna eða ef upp koma viðbrögð sem sýna sorg, reiði, örvænt­ingu eða sekt­ar­kennd nemend­anna. Leyfið börn­unum að viðra tilfinn­ingar sínar.
  • Áfallaráð verður að sjá til þess að starfs­fólk skólans fái stuðning og hjálp. Að vera sterkur, rólegur og yfir­veg­aður í þessari aðstöðu er mikið álag. Talið við einhvern í skól­anum á hverjum degi þegar skóla­deg­inum lýkur um það hvernig dagurinn hafi verið. Ákveðið fyrir­fram hvenær þessi samtöl eiga að fara fram og þau eiga ekki að fara fram yfir kaffi­bolla í skyndi eða í frímín­útum. Þessir dagar eru ef til vill, fyrir einstaka nemendur, mikil­væg­ustu dagarnir á allri þeirra skóla­göngu. Gefið sorg­inni sinn tíma.

Dauðsfall aðstandenda starfsmanns

  • Áfallaráð er látið vita.
  • Áfallaráð ákveður í samráði við viðkom­andi starfs­mann hvernig aðrir starfs­menn verða látnir vita. Mikil­vægt að virða óskir viðkom­andi starfs­manns.
  • Útbúum samúð­arkveðju ef um maka, barn, foreldri eða barna­barn er að ræða.
  • Áfallaráð kemur saman ef um maka eða barn er að ræða.

Dauðsfall utan skólatíma

Byrja hvert haust á fundi og þá kemur í ljós hvort eitt­hvað hafi komið fyrir í sumar­leyfi. Prestur kemur með upplýs­ingar í upphafi skólaárs á haust­fund. Máls­með­ferð getur í megin­at­riðum verið eins og að ofan greinir. Ef eitt­hvað gerist um helgi er upplýs­ingum komið til skóla­stjóra og viðkom­andi er látinn vita af áfalla­ráðinu. Foreldrar þurfa að láta vita hvenær má tilkynna bekknum. Gefa foreldrum kost á að láta börn sín vita sem fyrst.


Viðbrögð vegna langvarandi veikinda

  • Umsjón­ar­kennari látinn vita af aðstæðum á heimili. Hvort sem um er að ræða nemandann sjálfan, foreldra, náinn ættingja eða vin. Afar mikil­vægt er að umsjón­ar­kennari fái að vita af aðstæðum svo hægt sé að veita þann stuðning sem þörf er á.
  • Umsjón­ar­kennari tilkynnir öðrum hlut­að­eig­andi starfs­mönnum málið og leitar til áfallat­eymis ef þörf þykir.
  • Umsjón­ar­kennari eða skóla­stjóri leitar eftir upplýs­ingum um veik­indin til að geta gefið nemendum réttar upplýs­ingar og viðeig­andi svör en þess þarf ætíð að gæta að það sé með fullu samþykki foreldra eða náinna ættingja.
  • Ef um foreldra eða náinn ættingja er að ræða er mjög gott að hafa foreldra/nána ættingja viðkom­andi nemanda/nemendur í ráðum um hvernig skuli taka á málinu innan bekkj­arins/bekkj­anna.

Fangelsun foreldra

Við slíkar aðstæður er líklegt að barnið sé undir miklu álagi. Hafa þarf samráð við aðstand­endur barnsins um það hvernig talað er við barnið, hve mikið það veit um aðstæður og einnig hvort ræða eigi málið við vini og bekkj­ar­fé­laga. Eldri börn eiga að vera með í ráðum um það hvort þessi mál eru rædd í bekknum eða ekki. Það skiptir miklu í þessu sambandi hvort málið er til umfjöll­unar í fjöl­miðlum ef svo er þá þarf að vera vel á verði og gæta þess að barnið verði ekki fyrir aðkasti frá öðrum nemendum. Þar sem að ekki er um dauðs­fall að ræða er samúð ekki vís.


Mannshvarf

Tími sem einkennist af óvissu og ótta. Við slíkar aðstæður þarf nemandinn mikinn stuðning og skilning. Þarna þarf að hafa samráð við aðstand­endur um það hvernig málið er rætt við nemendur. Svona mál fá oft mikla umfjöllun í fjöl­miðlum sem getur verið mjög viðkvæmt.


Upplýsingar

Hér að neðan tenglar inn á nokkra staði á netinu þar sem hægt er að afla sér fróð­leiks um ýmiss málefni.

www.persona.is

www.missir.is

www.doktor.is

www.barna­heill.is

www.raudikrossinn.is

www.barn.is

Síma­númer sem gætu komið að góðum notum.

Stofnun Sími
Neyð­arsíminn 112 112
Barna- og unglinga­geð­deild LSP (BUGL) 543 4300
Áfalla­hjálp LSP 525 7110 / 525 1000
Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða Patreks­firði 450 2000
Lögreglan á Vest­fjörðum 444 0400
Patreks­skóli 450 2320
Beinn sími skóla­stjóra 450 2321
Fíkni­efn­asíminn 800 5005