Viðbrögð við óveðri
Röskun á skóla- og frístundastarfi, leiðbeiningar fyrir foreldra og forráðamenn, er birt með góðfúslegu leyfi almannavarnanefnd höfuðborgasvæðisins. Áætlunin fjallar um hvernig á að bregðast við veðurviðvörun frá Veðurstofu Íslands.
Ábyrgð forsjáraðila
Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn, hér eftir nefndir forsjáraðilar, fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni. Veðurfar og aðstæður geta verið mismunandi eftir hverfum og breyst skjótt með ófyrirséðum hætti.
Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, t.d. ef bifreið er ekki búin til vetraraksturs.
Leiðbeiningar þessar eiga við „yngri börn“, það er börn yngri en 12 ára. Athugið að hér er aðeins um viðmið að ræða sem er háð mati forsjáraðila.
Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema tilkynnt sé um það sérstaklega. Í upphafi skóladags getur tafist að fullmanna skóla og mega forsjáraðilar þá búast við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Forsjáraðilar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.
Forsjáraðilar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í eða úr skóla vegna veðurs, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti forsjáraðilar aðstæður svo að ekki sé óhætt fyrir börn þeirra að sækja skóla skulu þeir tilkynna skólanum um það sem lítur þá á til vikið sem eðlilega fjarvist. Sama gildir ef börn eða forsjáraðilar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.
Grænn dagur
Leiðbeiningar frá veðurstofu
Óveruleg áhrif á daglegar athafnir.
Græn viðvörun gefur til kynna að spár hafi batnað eða að veðri sem var spáð hafi gengið yfir fyrr en áætlað var.
Hvernig eiga forsjáraðilar að bregðast við?
Að morgni dags:
Engra aðgerða er þörf.
Í lok skóladags:
Engra aðgerða er þörf.
Gul viðvörun
Leiðbeiningar frá veðurstofu
Veðrið getur haft nokkur eða staðbundin áhrif og valdið töfum, slysum eða tjóni ef aðgát er ekki höfð. Slík veður eru ekki óalgeng en krefjast árvekni við skipulagningu atburða og ferðir milli landshluta.
Óveruleg áhrif á samgöngur, innviði og þjónustu. Skólabíllinn fer ekki í gulri viðvörun.
Gul viðvörun getur einnig gefið til kynna að litlar eða miðlungs líkur séu á mjög áhrifamiklu veðri á næstu 3–5 dögum.
Hvernig eiga forsjáraðilar að bregðast við?
Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í eða úr skóla eða frístundastarfi.
Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofan koma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd
Að morgni dags:
Forsjáraðilar þurfa að morgni að tryggja að starfsmaður sé í skólanum til að taka á móti börnunum þar sem einhver röskun getur orðið á skólastarfi vegna veðurs. Tafist getur að fullmanna skólann og mega forsjáraðilar þá búast við að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Forsjáraðilar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.
Í lok skóladags:
ilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístundastarfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf.
Appelsínugul viðvörun
Leiðbeiningar frá veðurstofu
Miðlungs eða miklar líkur eru á veðri sem valdið getur miklum samfélagslegum áhrifum. Veðrið getur valdið tjóni og slysum og ógnar mögulega lífi og limum ef aðgát er ekki höfð. Skerðing á samgöngum, innviðum og þjónustu er tímabundin eða staðbundin. Veður sem þessi verða nokkrum sinnum á ári.
Hvernig eiga forsjáraðilar að bregðast við?
Aðgerðir forsjáraðila eru þær sömu og við gula viðvörun nema meiri líkur eru á þörf fyrir fylgd og að starfsfólk leiti liðsinnis forsjáraðila í upphafi skóladags vegna manneklu.
Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofan koma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd.
Að morgni dags:
Forsjáraðilar þurfa að morgni að tryggja að starfsmaður sé í skólanum til að taka á móti börnunum þar sem einhver röskun getur orðið á skólastarfi vegna veðurs. Tafist getur að fullmanna skólann og mega forsjáraðilar þá búast við að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Forsjáraðilar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.
Í lok skóladags:
Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístundastarfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf.
Rauð viðvörun
Leiðbeiningar frá veðurstofu
Miklar líkur eru á veðri sem hefur mjög mikil samfélagsleg áhrif eða slíkt veður stendur yfir. Einstaklega áköfum og hættulegum veðurskilyrðum er spáð.
Búast má við miklum skemmdum, líkur á slysum eru miklar og veðrið ógnar lífi og limum. Viðbúið er að samgöngur lokist og aðgengi að innviðum og þjónustu skerðist.
Hvernig eiga forsjáraðilar að bregðast við?
Forsjáraðilar þurfa að fylgja börnum í og úr skóla og frístundarstarfi.
Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema það sé tilkynnt sérstaklega.
Að morgni dags:
Í upphafi skóladags getur tafist að fullmanna skóla og mega forsjáraðilar þá búast við að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Forsjáraðilar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.
Í lok skóladags:
Fylgja þarf börnum úr skóla og frístundastarfi.