Íþróttaskóli
Íþróttaskóli er starfandi í samfellu við grunnskólahald alla virka daga á Patreksfirði og Bíldudal sem og í Tálknafirði ætlaður börnum í 1.–4. bekk. Auk þeirra boltaíþrótta sem í boði eru hjá HHF eru aðrar íþróttir kynntar fyrir börnunum í Íþróttaskólanum.
Íþróttaskólinn er starfræktur í öllum þéttbýlunum, þ.e. á Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal og er ætlaður börnum í 1.–4. bekk grunnskólanna. Kennt er í samfellu við skólahald alla virka daga. Íþróttaskólinn sækir fyrirmynd sína til HSV en þar hefur íþróttaskóli verið starfræktur frá hausti 2011. Kennsla í skólanum skiptist í tvennt. Annars vegar grunnþjálfunarþátt og hins vegar boltaskóla sem kenndur er í lotum, þ.e. ein grein í einu. Boltaíþróttir sem aðildafélög HHF hafa í boði eru í hávegum hafðar auk þess sem að aðrar greinar eru kynntar fyrir börnunum, sem eru ekki í boði á svæðinu.
Markmið skólans eru eftirfarandi:
- Auka fjölda barna sem iðka íþróttir
- Að fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun séu jákvæð
- Að börn fái að njóta eins mikillar fjölbreytni og kostur er
- Auka gæði þjálfunar og auka samræmingu þjálfunar á svæðinu
- Lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
- Auka grunnþjálfunarhluta æfinga sem tengjast almennum hreyfiþroska
- Að börn læri frá upphafi skólagöngu að hreyfing er hluti af daglegu lífi
Gjaldskrá
Haustönn | 13.825 kr. | |
Vorönn | 18.425 kr. | |
Systkinaafsláttur, barn 2 | 25% | |
Systkinaafsláttur, barn 3 | 50% |