Dýrahald
Dýr, bæði gæludýr og búfénaður, eru gleðigjafar eigenda sinna og geta bætt samfélagið. Um dýrahald þurfa þó að ríkja ákveðnar reglur. Í sveitarfélaginu eru í gildi samþykkir um dýrahald. Sækja þarf um leyfi til að halda hunda og ketti svo dæmi séu tekin.
Dýralæknir
Enginn dýralæknir er í sveitarfélaginu en dýralæknir frá Ísafirði kemur reglulega og sinnir venjubundinni þjónustu við gæludýr. Tilkynningar um komu dýralæknis eru birtar hér á vefnum og samfélagsmiðlum.