Sorp­hirða og flokkun

Í sveit­ar­fé­laginu er allt sorp flokkað til endur­vinnslu eða förg­unar. Með því hjálp­umst við öll að við að halda umhverfi okkar hreinu. Á svæðinu eru þrír gáma­vellir; á Patreks­firði, Bíldudal og á Tálkna­firði.

Þjónustuaðili sorphirðu

Kubbur
kubbur@kubbur.is/+354 456 4166

Sorphirða

Kubbur ehf. sér um sorp­hirðu í sveit­ar­fé­laginu.

Sorp­hirða er með tvennum hætti:

  • Annars vegar geta íbúar og fyrir­tæki farið með flokkað sorp og úrgang á gáma­velli í samræmi við opnun­ar­tíma og gjald­skrá
  • Hins vegar eru þrjú sorpílát fyrir hvert heimili í þétt­býli, svört/grá tunna fyrir bland­aðan úrgang sem fer í urðun, blá/græn tunna fyrir pappír og pappa og í henni er innra hófl fyrir umbúðaplast og plast­filmu og svo brún tunna fyrir lífrænan heim­il­isúr­gang
  • Í dreif­býli er ekki brún tunna

Breytingar á sorpílátum

Bæjar­stjórn hefur samþykkt breyt­ingar á gjald­skrá um meðhöndlun úrgangs sem miða að því að auka sveigj­an­leika og mögu­leika íbúa á að lækka kostnað vegna meðhöndl­unar úrgangs.  

Helstu breyt­ingar sem samþykktar hafa verið eru: 

  • Íbúum gefst kostur á að sækja um minna ílát fyrir almennt sorp, 120l í stað 240l ílát. 
  • Íbúar í fjöl­býl­is­húsum, rað- og parhúsum gefst kostur á að sameinast um sorpílát.
  • Íbúar með heimajarð­gerð geta sótt um að fá felld niður gjöld á íláti fyrir lífrænan úrgang gegn því að sýna fram á aðstöðu til heimajarð­gerðar.  

Íbúar geta jafn­framt sótt  um auka­tunnu fyrir endur­vinnslu­efni. Kostn­aður við auka­tunnu fyrir endur­vinnslu­efni (pappa og plast) er 80% af kostnaði við endur­vinnslutunnuna sem er við hvert heimili. 

Þær breyt­ingar sem gerðar voru á sorpí­látum á árinu 2022 haldast inni á milli ára að undan­skildu undan­þágu frá því að vera með tunnu fyrir lífrænan úrgang, um það þarf að sækja ár hvert. 

Allar umsóknir um breyt­ingar skulu berast á netfangið innheimta@vest­ur­byggd.is , breyt­ing­ar­gjald er kr. 4.025 af viðkom­andi fast­eign. 

Fyrir frekari upplýs­ingar má hafa samband við skrif­stofu sveit­ar­fé­lagsins í síma 450-2300 eða senda fyrir­spurnir á netfangið innheimta@vest­ur­byggd.is.


Gámavellir

Þrír gáma­vellir eru til staðar: á Patreks­firði, Bíldudal og á Tálkna­firði.

Á hverjum gáma­velli er svokall­aður flokk­un­ar­gámur, það er hús með hólfum fyrir þurrt flokkað endur­vinnslu­efni, sem er aðgengileg allan sólar­hringinn. Endur­vinnslu­efni sem hér um ræðir eru: bylgjupappi og sléttur pappi, blöð, tímarit og skrif­stofupappír, fernur, plast (hart og lint), málmar, rafhlöður og kerta­af­gangar.

BíldudalurPatreksfjörðurTálknafjörður

Mánudagur

Lokað

16:00-18:00

Lokað

Þriðjudagur

16:00-18:00

Lokað

Lokað

Miðvikudagur

Lokað

Lokað

16:00-18:00

Fimmtudagur

Lokað

16:00-18:00

Lokað

Föstudagur

Lokað

Lokað

Lokað

Laugardagur

10:00-12:00

15:00-17:00

10:00-12:00

Sunnudagur

Lokað

Lokað

Lokað


Staðsetning og aðgengi tunna

Æski­legt er að sorptunnur séu stað­settar við framan­vert hús og mikil­vægt að gæta þess að aðgengi við losun sé ætíð sem best. Afar mikil­vægt er að íbúar moki snjó frá sorptunnum. Fest­ingar á tunnum skulu vera þannig að auðvelt sé að losa þær og festa aftur.


Yfirfullar tunnur

Tunnur skulu ekki fylltar meira en svo að þeim sé hægt að loka. Yfir­fullar tunnur geta valdið vand­ræðum og sóða­skap þegar þær eru losaðar. Yfir­fullar tunnur verða ekki losaðar og er íbúm bent á gámvellina.

Þrjár eru tunnur fyrir hvert heimili í þétt­býli og tvær í dreif­býli

  • Grá tunna fyrir bland­aðan úrgang til urðunar
  • Blá/græn tunna fyrir úrgang til endur­vinnslu með innra hólfi
  • Brún tunna fyrir lífrænan heim­il­isúr­gang (ekki í dreif­býli)

Tunn­urnar eru losaðar samkvæmt sorp­hirðu­da­ga­tali.


Tunna fyrir blandaðan úrgang

Í tunnu fyrir bland­aðan úrgang í urðun má setja allan almennan heim­il­isúr­gang, mikið matarsmitað plast, samsettar umbúðir (áleggs­bréf, ostabox, tann­krem­stúpur og fleira). Einnig ryksugu­poka, bleiur og annan úrgang sem inni­heldur vatn.


Úrgangur til endurvinnslu

Brúna tunna – lífrænn heim­il­isúr­gangur

Brúna tunnan er fyrir lífrænan heim­il­isúr­gang. Í hana mega fara allir mataraf­gangar sem og annar lífrænn úrgangur sem til fellur á heim­ilum, það er allt sem er lífnið­ur­brjót­an­legt í nátt­úr­unni.

Dæmi um lífrænan úrgang er afskurður af ávöxtum og græn­meti, kjöt- og fiskaf­gangar, brauð­meti, kaffi­korgur og tepokar, litlir trébútar eins og tann­stönglar. Einnig má nefna pappír og dagblöð og matar­menguð og ekki en þó í hóflegu magni og þá helst sem inni­halda ekki efni sem hindra rotnun.

Athugið að ef misbrestur er á flokkun efnis í brúnu tunnuna er líklegt að hún verði ekki tæmd.

Endur­vinnslut­unnan

Í bláu/grænu endur­vinnslutunnuna fer efni sem síðan fer í endur­vinnslu, bæði hér heima og erlendis. Allt það sem fer í tunnuna eru verð­mæti og endar sem hráefni í nýjar vörur. Það er mikil­vægt að allt hráefni sem fer í tunnuna sé vel frágengið samkvæmt þeim vinnu­reglum sem hér koma fram.

Ekki má setja gler eða málma í endur­vinnslutunnuna þar sem Kubbur notar mismun­andi móttöku­aðila sem eru með mismun­andi kvaðir um hvað má vera með papp og plast efnum. Þetta er gert til að halda kostnaði í lágmarki.

Skila skal öllum málmum og gleri á endur­vinnslu­stöðvar og flokk­un­ar­bari sveita­fé­lagana.

Plast í 55 lítra innra hólf í bláu/grænu tunnu

  • Stíft plast: Hér flokkast allt það plast sem er stíft eins og til dæmis plast­bakkar, plast undan drykkjum og dósir undan skyri og fleira. Áríð­andi er að skola vel svo að ekki komi ólykt.

Æski­legt er að lok og tappar séu ekki á umbúðum en fylgi með.

  • Plast­filma: Hér flokkast öll mjúk plast­filma, til dæmis utan af brauði, kökum, kexi, kaffi, snakki og svo fram­vegis, bæði gegnsæ og ógegnsæ og einnig ef hún er állituð að innan. Athugið að álfilma er þó ekki plast.

Áríð­andi er að tæma umbúð­irnar og skola allar matar­leifar af þeim.

Pappi og pappír í bláu/grænu tunnuna

  • Sléttur pappi: Hér flokkast umbúðir úr sléttum pappa, svo sem undan morgun­korni, kexi, haframjöli, ís og fleira. Best er að brjóta pappann saman og raða honum þétt til dæmis í morgun­korn­spakka þannig að pappinn haldist saman.

  • Fernur: Hér flokkast mjólk­ur­fernur og aðrar drykkj­ar­fernur. Það þarf að opna þær og skola. Brjóta skal fern­urnar saman og raða þeim í eina fernu, það þétt að þær losni ekki sundur þegar þær eru settar í endur­vinnslutunnuna.

  • Bylgjupappi: Hér flokkast pizzu­kassar, allir pappa­kassar og svo fram­vegis. Athugið að taka plast­poka úr köss­unum og tæma matar­leifar úr umbúðum. Mikil­vægt er að brjóta pappaum­búð­irnar saman svo þær taki minna pláss. Stærri pappa­kössum, til dæmis pappa utan af húsgögnum og heim­ilis­tækjum er hægt að skila á gáma­velli.

  • Pappír: Hér flokkast dagblöð, tímarit, fjöl­póstur og allur almennur skrif­stofupappír. Ekki þarf að fjar­læga hefti úr bæklingum eða plast úr gluggaum­slögum.

Það sem þarf að skila á endur­vinnslutöðvar og flokk­un­ar­bari

  • Málmar: Hér flokkast niðursuðu­dósir, lok, tappar, álpappír og aðrir málmar eins og eggjárn og skæri og þess háttar. Ekki þarf að fjar­lægja bréf­miða af dósum, plast­tappa, eða plast­hand­föng. Öllum stærri málm­hlutum t.d. pottum, pönnum, garð­verk­færum, sláttu­vélum o.fl. er hægt að skila á gáma­velli.

  • Gler eins og krukkur og glös og annað sem fellur til frá heim­ilum og er ekki með skila­gjaldi.

  • Athugið! fjar­lægið allan málm af glerinu fyrir förgun þar sem það á ekki heima með gleri.


Skilaskyldar umbúðir

Sérstakt skila­gjald er lagt á umbúðir undir drykkjar­vörur, svo sem áldósir, plast­flöskur og gler­flöskur undan gosdrykkjum og áfengum drykkjum og fleira. Þetta skila­gjald er hægt að fá endur­greitt á endur­vinnslu­stöð en einnig er hægt að gefa þessar umbúðir til styrktar félaga­sam­tökum.


Garðaúrgangur

Fara verður með garða­úr­gang á gáma­völl. Lífrænn úrgangur úr garð­inum á ekki að fara í sorptunnur eða lífræna tunnu. Einnig er hægt að koma sér upp safn­haug eða safn­kassa í eigin garði og setja garða­úr­gang þar. Í safn­haugnum rotnar úrgang­urinn og verður að gróð­ur­mold. Stærri hlutir sem falla til í garð­inum svo sem afklippur af trjám, grjót og annað gróft efni skal fara með á gáma­völl.


Spilliefni

Þessi sorp­flokkur hefur sérstöðu þar sem hann inni­heldur eitur­efni. Dæmi um algeng spilli­efni á heim­ilum eru olía, leysi­efni, svosem þynnir og terpentína, lakk- og máln­ing­araf­gangar, skor­dýra­eitur, sýrur og basar, kvikasilfur, úðabrúsar, bílaraf­geymar, rafhlöður, flúrperur, sparperur og lyfja­af­gangar. Þessi efni á að fara með á gáma­völl .


Nytjahlutir

Á heim­ilum fellur oft til ýmis konar dót sem þörf er á að losa sig við. Má nefna endur­nýt­anleg og ónýt húsgögn, húsbúnað, ýmis tæki og tól, málma, timbur, pappa, plast, fatnað, skó og fleira. Sumt er svo stórt að ekki kemur til greina að setja í sorptunnur en annað kæmist þangað stærð­ar­innar vegna, en æski­legt er að fara með það á gáma­völl.

Til að fyrir­byggja misskilning þá þurfa íbúar ekki að greiða fyrir skil raftækja, þvotta­véla, þurrkara, ísskápa, frysti­kista, rúlluplasts, stór­sekkja, poka PP, plast­filma eða plast­umbúða á gáma­völl.

Nánari upplýs­ingar er að finna á heima­síðu Kubbs.