Bókasafnið á Patreksfirði
Aðalstræti 53, Patreksfjörður
Sjá á korti
Bókasafnið á Patreksfirði er til húsa í Patreksskóla. Hjarta þess er bókakosturinn en þar starfar bókasafns– og upplýsingafræðingur sem veitir margs konar þjónustu. Fyrir utan útlán bóka má nefna heimsóknir í félagsstarf eldri borgara, þjónustu við leikskólann og lengda viðveru grunnskólabarna og þjónusta við nema á öllum skólastigum. Þjónusta við fjarnema felur meðal annars í sér aðstoð við heimildaleit í margvíslegum gagnagrunnum, aðstoð við heimildaskráningu og heimildaskráningakerfi. Þar fyrir utan er aðstaða á bókasafninu til að vinna, hvort sem er einn eða í hóp.
Bókasafnið á Patreksfirði er byggt á grunni lestrarfélaga sem voru stofnuð af hugsjónafólki og störfuðu á Patreksfirði um árabil. Í dag er bókasafnið samsteypusafn almennings– og skólabókasafns. Hlutverk þess er að veita aðgang að fjölbreyttu safnaefni og upplýsingum á mismunandi formi. Eins og öðrum bókasöfnum landsins er safninu ætlað að jafna aðgengi að menningu og þekkingu, efla menningar- og vísindastarfsemi, ánægjulestur og upplýsingalæsi, með aðgengi að safnkosti sem endurspeglar sem flest sjónarmið.