Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #268

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 19. febrúar 2014 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði
    • Þórir Sveinsson skrifstofustjóri

    Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 268. fundar miðvikudaginn 19. febrúar 2014 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði. Forseti bæjarstjórnar Friðbjörg Matthíasdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir séu við fundarboðun. Svo var ekki. Forseti leitaði heimild

    Fundargerðir til kynningar

    1. Bæjarstjórn - 266

    Fundargerðin lögð fram til kynningar.

      Málsnúmer 1401005F

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Bæjarstjórn - 267

      Bæjarstjóri lét bóka að hún hafi boðað forföll á fundinn.
      Fundargerðin lögð fram til kynningar.

        Málsnúmer 1402004F

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Fasteignir Vesturbyggðar - 56

        Fundargerðin er í 8. töluliðum.
        Til máls tók: JÁ.
        Fundargerðin lögð fram til kynningar.

          Málsnúmer 1402007F

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          Fundargerðir til staðfestingar

          4. Bæjarráð - 697

          Fundargerðin er í 15. töluliðum.
          Til máls tóku: Forseti, bæjarstjóri og GE.
          5. tölul.: Bæjarstjórn samþykkir að fjölga gjalddögum úr 8 í 9.
          10.tölul.: Bæjarstjórn fagnar tillögu að stækkun verndarsvæðis frá Öndverðanesi að Bjargtöngum og telur mikilvægt að friðlýst svæði og þjóðgarðar séu hluti að verndarsvæði Breiðafjarðar en nú er unnið að stofnun þjóðgarðs á Látrabjargi.

          Bæjarstjórn gerir það hins vegar að tillögu sinni að Breiðafjarðarnefnd beiti sér fyrir því að unnið verði svæðisskipulag fyrir Breiðafjörð enda mikilvægt fyrir sveitarfélög við Breiðafjörð. En ekki síður að unnin verði nýtingaráætlun fyrir Breiðafjörð, álíka þeirri sem unnin hefur verið fyrir Arnarfjörð. Það skiptir miklu máli að hafa samræmdar reglur um uppbyggingu og nýting verndarsvæðisins og að sveitarfélögin við Breiðafjörð séu sammála um hvernig eigi að standa að nýtingu, uppbyggingu og vernd svæðisins.

          Að öðru leyti gerir bæjarstjórn ekki athugasemd við fyrirliggjandi drög að verndaráætlun Breiðafjarðar.
          Fundargerðin samþykkt samhljóða.

            Málsnúmer 1401007F

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Bæjarráð - 698

            Fundargerðin er í 15. töluliðum.
            Til máls tóku: Bæjarstjóri, ÁS, GE, forseti, ÁSG, MÓH, JÁ og GIB.
            Fundargerðin samþykkt samhljóða.

              Málsnúmer 1402002F

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              6. Skipulags- og byggingarnefnd - 185

              Fundargerðin er í 13. töluliðum.
              Til máls tóku: ÁS, forseti, GE og MÓH.
              8.tölul.: Lagt fram til kynningar. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
              11.tölul. Bæjarstjórn vísar erindinu til 8. dagskrárliðar.
              Fundargerðin samþykkt samhljóða.

                Málsnúmer 1312007F

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                Almenn erindi

                7. Bæjarmálasamþykkt Vesturbyggðar

                Lagt fram drög að ”Samþykkt um stjórn Vesturbyggðar“.
                Til máls tóku: Forseti, GE og ÁS.
                Bæjarmálafélagið Samstaða lagði fram tillögu við síðari umræðu fjárhagsáætlunar 2014 er varðar breytingu á 1. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp Vesturbyggðar:
                ”1. Lagt er til fækkun bæjarfulltrúa úr sjö í fimm.
                2. Bæjarráð verði lagt niður og verkefni þess færist á fimm manna bæjarstjórn sem
                fundi tvisvar sinnum í mánuði.“
                Bókun Samstöðu: ”Tillagan er í samræmi við heimild í 11. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 þar sem segir til um 5-7 fulltrúa í sveitarstjórn í sveitarfélögum með íbúafjölda undir 2.000 manns.“
                Tillagan felld með 4:3.

                Bókun D-lista: ”Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Vesturbyggðar telja að tillagan gangi þvert á anda nýrra sveitarstjórnarlaga þar sem hvatt er til aukins lýðræðis í sveitarfélögum. Við teljum fækkun fulltrúa ekki vera skref í lýðræðisátt enda eru sveitarfélög með fleiri íbúa en 800 almennt með 7 fulltrúa í sveitarstjórn og þau sveitarfélög sem íhugað hafa að fara leið fækkunar fulltrúa hafa hætt við þær breytingar. Þá hefur stefnan verið sú að eftir sameiningu sveitarfélaga hefur gjarnan verið horft til þess að hafa heldur fleiri fulltrúa en færri í sveitarstjórn. Með því móti gefst fámennari hlutum sveitarfélags frekar færi á því að eiga fulltrúa í sveitarstjórn. Vesturbyggð er dreift sveitarfélag og fækkun bæjarfulltrúa mun leiða til þess að færri munu eiga sér talsmenn í sveitarstjórn og að umtalsverður lýðræðishalli getur átt sér stað. Þá er hægt að leiða líkum að því að umtalsverður kostnaðarauki verði við þessar breytingar vegna fjölgunar funda og fulltrúa sem þá sitja.“

                Samstaða lagði fram andsvar við bókun D-lista: ”Samstaða hafnar rökum meirihlutans um aukinn lýðræðishalla við framkomna tillögu og um aukinn kostnað með fækkun fulltrúa úr 7 í 5 og fækkun funda úr 4 í 2, þau standast ekki skoðun.
                En jafnframt lýsum við ánægju með nýjar samþykktir sem unnar voru í sátt og samvinnu.“

                Bæjarstjórn samþykkir ”Samþykkt um stjórn Vesturbyggðar“ og felur bæjarstjóra að senda samþykktirnar til innanríkisráðuneytisins til staðfestingar. 47. gr. samþykktarinnar um ”Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.“ taki þó ekki gildi fyrr en þegar ný sveitarstjórn tekur við af núverandi sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum í maí nk.

                  Málsnúmer 1312062 4

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  8. Skipulagsstofnun boð um þátttöku í samráðsvettfangi vegna mótunar landslagsstefnu 2015-2026

                  Lagt fram bréf dags. 20. janúar 2014 frá Skipulagsstofnun þar sem boðið er til samráðsvettvangs vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015-2026.
                  Til máls tók: Forseti.
                  Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að tilkynna fulltrúa Vesturbyggðar í samráðsvettvangnum.

                    Málsnúmer 1401060 2

                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                    Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00