Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 18. mars 2015 og hófst hann kl. 17:00
Fundargerð ritaði
- Þórir Sveinsson skrifstofustjóri
Fundargerðir til staðfestingar
2. Bæjarráð - 726
Fundargerðin er í 12. töluliðum.
Til máls tóku: Forseti, bæjarstjóri, ÁS og ÁDF.
6.tölul. Bæjarstjórn ítrekar ósk um staðfestingu á nýjum hættumatslínum fyrir Búðargil, Bíldudal.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1502009F
3. Bæjarráð - 727
Fundargerðin er í 19. töluliðum.
Til máls tóku: ÁS, bæjarstjóri og forseti.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1503004F
4. Velferðarráð - 4
5. Fræðslu og æskulýðsráð - 12
Fundargerðin er í 5. töluliðum.
Til máls tók: Bæjarstjóri.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1503006F
6. Skipulags og umhverfisráð - 7
Fundargerðin er í 8. töluliðum.
Til máls tóku: MJ, bæjarstjóri og forseti.
4.tölul.: Ofanflóðavarnir ofan byggðar á Bíldudal, beiðni um umsögn á framkvæmdinni.
Tekin fyrir umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna kynningarskýrslu vegna ofanflóðavarna ofan byggðar á Bíldudal í Vesturbyggð.
Bæjarstjórn leggur áherslu á að rask gagnvart íbúum og umhverfi verði sem minnst á framkvæmdartíma og leggur einnig áherslu á að endanleg útfærsla á aðkomu að Sælundi 1 og 3 verði unnin í sátt við íbúa og bæjaryfirvöld, sem og framkvæmdir við almenningsgarð sveitarfélagsins á Bíldudal, svokallaða Tungu. Bæjarstjórn vill auk þessa að við endanlega hönnun bílastæðis við Dalbraut 32, verði haft til hliðsjónar að ekki skapist ónæði fyrir íbúa vegna umferðar um garðana. Af fenginni reynslu leggur bæjarstjórn til að gerð verði könnun á grunnvatnsstreymi/jarðvatni við húsin sem standa næst fyrir-huguðum framkvæmdum og skoðað hvort að fyrirhugaðar varnir geti haft neikvæð veðurfarsleg áhrif á byggðina (aukinn vindstyrkur, hnútar o.s.frv.).
Að öðru leyti gerir bæjarstjórn Vesturbyggðar ekki athugasemdir við þær ofanflóðavarnir sem hér eru til umsagnar.
6.tölul. Bæjarstjórn þakkar Arnfirðingafélaginu í Reykjavík fyrir frábært framtak að standa fyrir uppgerð á June Munktell bátavél, sem komið verður niður við Smiðjuna á Bíldudal.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1503001F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 283. fundar miðvikudaginn18. mars 2015 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði. Forseti bæjarstjórnar Friðbjörg Matthíasdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.