Hoppa yfir valmynd

Skipulags og umhverfisráð - 7

Málsnúmer 1503001F

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

18. mars 2015 – Bæjarstjórn

Fundargerðin er í 8. töluliðum.
Til máls tóku: MJ, bæjarstjóri og forseti.
4.tölul.: Ofanflóðavarnir ofan byggðar á Bíldudal, beiðni um umsögn á framkvæmdinni.
Tekin fyrir umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna kynningarskýrslu vegna ofanflóðavarna ofan byggðar á Bíldudal í Vesturbyggð.

Bæjarstjórn leggur áherslu á að rask gagnvart íbúum og umhverfi verði sem minnst á framkvæmdartíma og leggur einnig áherslu á að endanleg útfærsla á aðkomu að Sælundi 1 og 3 verði unnin í sátt við íbúa og bæjaryfirvöld, sem og framkvæmdir við almenningsgarð sveitarfélagsins á Bíldudal, svokallaða Tungu. Bæjarstjórn vill auk þessa að við endanlega hönnun bílastæðis við Dalbraut 32, verði haft til hliðsjónar að ekki skapist ónæði fyrir íbúa vegna umferðar um garðana. Af fenginni reynslu leggur bæjarstjórn til að gerð verði könnun á grunnvatnsstreymi/jarðvatni við húsin sem standa næst fyrir-huguðum framkvæmdum og skoðað hvort að fyrirhugaðar varnir geti haft neikvæð veðurfarsleg áhrif á byggðina (aukinn vindstyrkur, hnútar o.s.frv.).

Að öðru leyti gerir bæjarstjórn Vesturbyggðar ekki athugasemdir við þær ofanflóðavarnir sem hér eru til umsagnar.

6.tölul. Bæjarstjórn þakkar Arnfirðingafélaginu í Reykjavík fyrir frábært framtak að standa fyrir uppgerð á June Munktell bátavél, sem komið verður niður við Smiðjuna á Bíldudal.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.