Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #291

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 9. desember 2015 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði
    • Þórir Sveinsson skrifstofustjóri

    Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 291. fundar miðvikudaginn 9. desember 2015 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði. Forseti bæjarstjórnar Friðbjörg Matthíasdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.

    Fundargerðir til staðfestingar

    1. Bæjarstjórn - 290

    Fundargerðin lögð fram til kynningar.

      Málsnúmer 1511005F

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Bæjarráð - 752

      Fundargerðin er í 5. töluliðum.
      Til máls tóku: Bæjarstjóri, skrifstofustjóri, forseti og ÁS.
      Fundargerðin samþykkt samhljóða.

        Málsnúmer 1512003F

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Fræðslu og æskulýðsráð - 18

        Fundargerðin er í 5. töluliðum.
        Til máls tóku: Bæjarstjóri, ÁDF, ÁS, HT og forseti.
        1.tölul.: Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um lengda viðveru.
        Fundargerðin samþykkt samhljóða.

          Málsnúmer 1512001F

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Hafnarstjórn - 141

          Fundargerðin er í 2. töluliðum.
          Til máls tóku: Bæjarstjóri og GÆÁ.
          Fundargerðin samþykkt samhljóða.

            Málsnúmer 1511009F

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Skipulags og umhverfisráð - 17

            Fundargerðin er í 3. töluliðum.
            Til máls tóku: MJ, bæjarstjóri, ÁS, forseti, ÁDF, GÆÁ, NÁJ og skrifstofustjóri.
            1.tölul. Ósk um staðfestingu á lóðamörkum ? Aðalstræti 62.
            Bæjarstjórn staðfestir samhljóða lóðarmörk Aðalstrætis 62, Patreksfirði.
            Bæjarstjórn ítrekar fyrri bókanir sínar að stefnt sé að því að eignarlóðir í þéttbýli verði í eigu sveitarfélagsins vegna skipulagsástæðna. Skipulagsfulltrúa falið að vinna að málinu.
            3.tölul. Framkvæmdaleyfi Klif ? 2015.
            Bæjarstjórn staðfestir samhljóða að veita endurnýjað framkvæmdaleyfi, samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir ofanflóðavarnir neðan við Klif, Patreksfirði.
            Fundargerðin samþykkt samhljóða.

              Málsnúmer 1512002F

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              Almenn erindi

              6. Fjárhagsáætlun 2016

              Lagt fram frumvarp til seinni umræðu að fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2016; yfirlitsblöð, rekstrarreikningur, efnahagur og sjóðstreymi, listi sérgreindra rekstrar- og fjárfestingartillagna, fasteignagjöld, skattar og gjaldskrár og 4ra ára áætlun 2016-2019. Lagðar fram breytingartillögur þannig að heildartekjur hækki um 10,0 millj.kr. og heildarútgjöld hækki um 16,7 millj.kr. eða nettóbreyting um 6,7 millj.kr.
              Til máls tóku: Bæjarstjóri, forseti, GÆÁ, ÁS, HT, NÁJ, MJ, ÁDF og skrifstofustjóri.
              Bæjarstjóri flutti yfirlit yfir breytingar frá fyrri umræðu:
              Reksturinn fyrir fjármagnsliði er jákvæður um rúmar 87,5 millj.kr., fjármagnsliðir eru tæpar 83,3 millj.kr. og rekstrarniðurstaðan því jákvæð um 4,2 millj.kr. Veltufé úr rekstri er 119,8 millj.kr. Fjárfestingar eru 351 millj.kr., afborganir langtímalána 120 millj.kr. og lántökur 374 millj.kr.

              Fjárhagsáætlun 2016, framlagðar breytingartillögur frá fyrri umræðu, rekstraryfirlit, rekstrarreikningur, efnahagsreikningur og sjóðstreymi, 4ra ára áætlun 2016-2019, útsvarsprósenta 14,52%, álagningarstuðlar fasteignagjalda, reglur um niðurfellingu fasteignagjalda til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega, styrkir til félagasamtaka vegna menningar-, björgunar- eða íþróttastarfsemi til greiðslu fasteignaskatts og fráveitugjalds, og þjónustugjaldskrár samþykkt samhljóða.

                Málsnúmer 1507059 13

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00