Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #338

Fundur haldinn í Ráðhúsi Vesturbyggðar, 4. september 2019 og hófst hann kl. 19:30

Fundinn sátu
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Guðrún Eggertsdóttir (GE) varamaður
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) staðgengill bæjarstjóra
  • Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) formaður
  • Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
  • Magnús Jónsson (MJ) aðalmaður
  • María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir staðgengill bæjarstjóra

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 338. fundar miðvikudaginn 4. september 2019 kl. 19:30 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Friðbjörg Matthíasdóttir er fjarverandi en í hennar stað sat fundinn Guðrún Eggertsdóttir. Guðrún hefur óskað eftir því að fá að sitja fundinn í fjarfundi og er það borið upp til samþykktar. Það er samþykkt samhljóða.
Forseti bæjarstjórnar Iða Marsibil Jónsdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.

Almenn erindi

1. Strandgata 10-12. Umsókn um byggingarleyfi, vatnshreinsistöð.

Tekið fyrir eftir auglýsingu breyting á deiliskipulagi Bíludalshafnar, aukið nýtingarhlutfall.
Breytingartillagan var grenndarkynnt frá 8. ágúst til 6. september, þar sem fyrir liggur samþykki aðliggjandi lóðarhafa og umsagnir liggja fyrir er auglýsingartími styttur eins og heimild er fyrir í 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Óskað var umsagnar frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða sem gerði engar athugasemdir við breytingartillöguna. Athugasemd barst frá Skrímslasetrinu og frá Kalkþörungaverksmiðjunni. Athugasemdir leiddu ekki til efnislegra breytinga á tillögunni en þess verður gætt við uppsetningu að samráð verði haft við nærliggjandi lóðarhafa um bestu mögulega útfærslu.

Til máls tóku: Forseti, MJ, ÁS, GE, ÞSÓ, MÓÓ og JÁ.

Bæjarstjórn tekur undir bókun hafna- og atvinnumálaráðs sem bendir á að hinum megin við götuna þar sem vatnshreinsistöð er fyrirhuguð er mikilvægt svæði í bæjarlífinu, ráðið leggur til við framkvæmdaraðila að lóðin að Strandgötu 10-12 verði girt af svo sómi sé að. Ennfremur leggur ráðið áherslu á að góð umgengni verði höfð að leiðarljósi á athafnasvæði stöðvarinnar.

Að tillögu skipulags- og umhverfisráðs og hafnar- og atvinnumálaráðs samþykkir bæjarstjórn tillöguna og að hún fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Málsnúmer 1907095 8

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00