Hoppa yfir valmynd

Skipulagsstofnun aukin framleiðsla Arnarlax beiðni um umsögn

Málsnúmer 1404009

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

10. apríl 2014 – Bæjarráð

Lögð fram beiðni um umsögn frá Skipulagsstofnun vegna umsóknar Arnarlax ehf um aukna framleiðslu fyrirtækisins á laxi í sjókvíum í Arnarfirði um 7.000 tonn. Samkvæmt upplýsingum frá Arnarlax ehf er fyrirtækið að láta vinna umhverfismat fyrir starfsemi sína í Arnarfirði. Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina en bendir á nýútkomna og samþykkta nýtingaráætlun.