Hoppa yfir valmynd

Skipulagsstofnun - framleiðsla á 4.000 tonnum. af laxi í Arnarfirði, beiðni um umsögn.

Málsnúmer 1701020

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.

7. febrúar 2017 – Bæjarráð

Lagt fram bréf dags. 5. janúar sl. frá Skipulagsstofnun og skýrsla með matsáætlun um framleiðslu á 4.000 tonnum af laxi í Arnarfirði á vegum Arctic Sea Farm með ósk um umsögn.
Sveitarfélagið Vesturbyggð gerir ekki efnislegar athugasemdir um matsáætlunina. Vesturbyggð minnir á mikilvægi þess að sveitarfélög hafi skipulagsvald yfir hafsvæði utan netalaga og áréttar mikilvægi þess að opinberar eftirlitsstofnanir sinni hlutverki sínu af alúð í þágu umhverfis og lífríkis sjávar m.a. með því að hafa fasta starfsstöð á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem á landssvæðinu er eitt umfangsmesta sjókvíaeldi í landinu.