Hoppa yfir valmynd

Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps #45

Fundur haldinn í Miðtúni 1, Tálknafirði, 14. júlí 2016 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði

    Inga Hlín Valdimarsdóttir safnvörður Minjasafns Egils Ólafssonar á Hnjóti sat fundinn.

    Almenn mál

    1. Kosning formanns/varaformanns

    Friðbjörg Matthíasdóttir kosinn formaður.
    Magnús Jónsson kosinn varaformaður.

      Málsnúmer 1607022

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Skipun nefndarmanna

      Stjórn MEÓ skipa:
      Friðbjörg Matthíasdóttir
      Magnús Jónsson
      Ásgeir Jónsson
      Indriði Indriðason
      Ásgeir Sveinsson
      Egill Ólafsson

        Málsnúmer 1607023

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Verkefni MEÓ

        Inga Hlín safnvörður fór yfir verkefni MEÓ og næstu skref.
        Talsverð fjölgun hefur verið á gestum á safninu frá fyrra sumri.
        Sumardagskrá safnsins hefur verið send út í öll hús á sunnanverðum Vestfjörðum.

        Lögð fram kostnaðaráætlun fyrir viðgerðir á safnahúsnæðinu frá Tv-Verk ehf.
        Samtals 1406 þúsund krónur. Stjórn samþykkir að taka framkomnu tilboði.
        Stjórn samþykkir að leita tilboða í dren og nýjar hurðar á safnahúsinu.

        Lagt fram tilboð í eftirlitsmyndavélakerfi fyrir safnið, kr. 65 þúsund. Samþykkt að kaupa kerfið.

        Lögð fram ósk frá erfingjum fyrrum eigenda Willis jeppa sem færður var safninu (hinn svokallaði Sveinseyrarjeppi)að erfingjarnir fái jeppann aftur til uppgerðar. Stjórn samþykkir erindið fyrir sitt leyti með fyrirvara um samþykki fulltrúa erfingja í stjórninni. Forstöðumaður upplýsti að áhugi væri fyrir því að jeppinn verði til sýnis hluta úr sumri á safninu þegar viðgerð lýkur.

          Málsnúmer 1607024

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Fjármál MEÓ

          Safnvörður fór yfir stöðu fjármála MEÓ og er hún almennt góð, en sveitarfélögin Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur lögðu til aukið rekstrarfé fyrir safnið fyrir árið 2016.

            Málsnúmer 1607025

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Önnur sameiginleg málefni

            Fulltrúi Tálknafjarðarhrepps í sameiginlegri svæðisskipulagsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps er Lilja Magnúsdóttir. Vesturbyggð á eftir að skipa tvo fulltrúa í nefndina.
            Ennfremur var rætt um að halda sameiginlegt íbúaþing sveitarfélaganna vegna undirbúnings fyrir aðalskipulagsvinnu sveitarfélaganna.

              Málsnúmer 1607026

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00