Hoppa yfir valmynd

Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps #63

Fundur haldinn í fjarfundi, 2. febrúar 2022 og hófst hann kl. 17:30

Nefndarmenn
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Bjarnveig Guðbrandsdóttir (BG) aðalmaður
  • Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) formaður
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ) sveitarstjóri
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) bæjarstjóri

Fundargerð ritaði
  • Rebekka Hilmarsdóttir bæjarstjóri

Almenn mál

1. Endurskoðun samgönguáætlunar

Lögð fram jarðgangaáætlun Vestfjarða. Rætt um áherslur sveitarfélaganna í samgöngumálum á sunnanverðum Vestfjörðum og endurskoðun samgönguáætlunar.

Á sama tíma og Vestfirðir eru auglýstir sem einn af eftirsóknarverðustu áfangastöðum heimsins sumarið 2022, þá eru samgönguinnviðir á sunnanverðum Vestfjörðum ónýtir og að helstu náttúruperlum Vestfjarða, eins og Látrabjargi og Rauðasandi, liggja úr sér gengnir malarvegir. Samráðsnefnd leggur áherslu á að við endurskoðun samgönguáætlunar verði samgönguinnviðir á sunnanverðum Vestfjörðum bættir en svæðið hefur setið á hakanum um áratugaskeið þegar kemur að vegaframkvæmdum. Þrátt fyrir að framlög til vegaframkvæmda á Vestfjörðum í heild sinni hafi aukist þá hafa sunnanverðir Vestfirðir setið eftir og með þeim miklu umsvifum sem nú hafa orðið í atvinnulífi á svæðinu og mikilli fjölgun íbúa eru margir vegkaflar á svæðinu óboðlegir allt árið um kring, m.a. vegna viðhaldsskorts og skorti á framlögum til vetrarþjónustu. Sem dæmi um þá alvarlegu stöðu sem nú er á samgönguinnviðum á sunnanverðum Vestfjörðum þá er vegurinn um Mikladal ónýtur, vegurinn siginn og vegaxlir illa farnar. Þá hafa síðustu 3 mánuði orðið fjórar bílvelltur á veginum um Mikladal, en vegakaflinn er fjölfarnasti vegur á Vestfjörðum. Mikilvægt er því að tryggja viðunandi framlög til viðhalds og þjónustu ásamt því að framlag verði veitt til að hefja án tafar rannsóknir og undirbúning vegna jarðgangagerðar undir Mikladal og Hálfdán.

Einnig verði í samgönguáætlun mælt fyrir um verulega aukin framlög til Vegagerðarinnar til að sinna nauðsynlegri vetrarþjónustu og lengja þjónustutíma til að bregðast við aukinn umferð m.a. þungaflutninga sem og að tryggja vetrarþjónustua á þeim leiðum sem framkvæmdir standa nú yfir á, s.s. á Dynjandisheiði. Þá verði gert ráð fyrir framlagi til endurnýjunar ferjunnar Baldurs sem siglir um Breiðafjörð og þar með tryggt öryggi farþega sem og greiðar samgöngur frá og til sunnanverðra Vestfjarða allt árið um kring.

Þá verði framkvæmdum m.a. við Bíldudalsveg af Dynjandisheiði og ofan í Arnarfjörð flýtt og þar tryggð vetrarþjónusta. Einnig verði veitt framlag í að bæta vegkafla frá Bíldudalsflugvelli og að þorpinu á Bíldudal, en vegurinn er ónýtur, vegaxlir illa farnar og vegurinn einbreiður. Þá verði áfram hugað að viðhaldi Bíldudalsflugvallar og veitt framlag til að bæta aðflug m.a. í myrkri vegna sjúkraflugs.

Samráðsnefnd leggur einnig áherslu á að tryggð verði framlög í hafnarbótasjóð til að standa undir nauðsynlegum framkvæmdum við hafnarmannvirki sveitarfélaganna, m.a. til að bregðast við aukinni atvinnustarfsemi í höfnum sveitarfélaganna tveggja sem tilkomin eru vegna aukinna umsvifa í fiskeldi og tengdum atvinnugreinum.

    Málsnúmer 2202005 4

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    2. Brunavarnir í Vesturbyggð og á Tálknafirði

    Lagt fram til kynningar minnisblað frá Jóni Guðlaugssyni, dags. 7. desember 2021 vegna tillagna um úrbætur á slökkviliðum Vesturbyggðar og Tálknafjarðahrepps. Sveitarstjóri Tálknafjarðahrepps fór yfir næstu skref í undirbúningi vegna mögulegrar stofnunar byggðasamlags fyrir brunavarnir á sunnanverðum Vestfjörðum. Bæjarstjóra og sveitarstjóra falin áframhaldandi undirbúningur verkefnisins.

      Málsnúmer 2110028 6

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      3. Almenningssamgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum

      Rætt um stöðu samninga vegna almenningssamgangna á sunnanverðum Vestfjörðum.

      Um almenningssamgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum eru í gildi samningur um leið 1 sem rennur út 31. ágúst 2022, samningur um leið II sem hefur verið sagt upp, samningur Vegagerðarinnar við sveitarfélögin um framlag til almenningssamgangna milli sveitarfélaganna sem rennur út í október 2022 og samningur sveitarfélaganna við Vestfjarðastofu um tiltekin verkefni á sviði almenningssamgangna í gegnum byggðaáætlun.

      Sveitarstjóra og bæjarstjóra falið að ræða við Vegagerðina um framtíðarsýn ríkisins varðandi almenningssamgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum.

        Málsnúmer 2101015 6

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        4. Framhaldsskólanám á sunnanverðum Vestfjörðum

        Lögð fram til kynningar beiðni sveitarfélaganna dags. 18. janúar 2022 þar sem óskað er eftir fundi með mennta- og barnamálaráðherra til að ræða stöðu framhaldsskólanáms á sunnanverðum Vestfjörðum.

          Málsnúmer 2109016 4

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          5. Breytingar í barnaverndarþjónustu

          Lagt fram minnisblað sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 1. febrúar 2022 um umdæmisráð barnaverndar. Rætt um stöðu mála vegna breytinga á barnaverndarþjónustu sveitarfélaga og samtal sveitarfélaganna á Vestfjörðum um barnaverndarþjónustu og umdæmisráð barnaverndar. Sveitarstjóri og bæjarstjóri fóru yfir stöðu samtalsins milli sveitarfélaganna og næstu skref.

            Málsnúmer 2202003 2

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            6. Covid-19

            Rætt um stöðu covid-19 á sunnanverðum Vestfjörðum.

              Málsnúmer 2202004

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45