Hoppa yfir valmynd

Skipulags og umhverfisráð #30

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 16. janúar 2017 og hófst hann kl. 16:00

    Fundargerð ritaði
    • Elfar Steinn Karlsson forstöðum. tæknideildar

    Almenn erindi

    1. Umsagnarbeiðni - Aðalstræti 31

    Lagt fram bréf frá Sýslumanninum á Vestfjörðum með ósk um umsögn um útgáfu gistileyfis fyrir Svörtuloft ehf. að Aðalstræti 31, 450 Patreksfirði, kt.411015-1060, dags. 07.12.2016. Sótt er um leyfi fyrir gististað í flokki III, fyrir allt að 30 gesti.

    Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu gistileyfis enda sé húsið í samræmi við samþykkta uppdrætti.

      Málsnúmer 1612017 2

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Strandgata 2, samþykki fyrir girðingu.

      Erindi frá Einari Sveini f.h. Íslenska Kalkþörungafélagsins. Í erindinu er leitað samþykkis Vesturbyggðar sem aðliggjandi lóðarhafa að Strandgötu 2 fyrir girðingu sem félagið hyggst reisa á lóðarmörkum.

      Skipulags- og umhverfisráð bendir á að í skilmálum gildandi deiliskipulagi hafnarsvæðis á Bíldudal skuli gert ráð fyrir 2,0m breiðri gangstétt innan lóðarmarka Strandgötu 2 er snýr að Strandgötu.

      Skipulags- og umhverfisráð beinir erindinu áfram til hafnarstjórnar Vesturbyggðar.

        Málsnúmer 1612026 2

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Einherji umsókn um byggingarleyfi Strandgata 13

        Erindi frá Einherja ehf. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir gluggaskiptum að Strandgötu 13, og þeir færðir til upprunalegs horfs. Erindinu fylgja uppdrættir.

        Skipulags- og umhverfisráð samþykkir erindið og felur byggingarfulltrúa útgáfu byggingarleyfis.

          Málsnúmer 1612030

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Engjar 1, umsókn um lóð.

          Erindi frá Jóhannesi Héðinssyni og Sonju Ísafold eigendum Engja 1, Patreksfirði. Í erindinu er sótt um lóð undir eignirnar, en enginn lóðaleigusamningur er í gildi.

          Skipulags- og umhverfisráð beinir því til Bæjarstjórnar Vesturbyggðar að samþykkja útleigu lóðar undir eignirnar.

            Málsnúmer 1701013

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Dalbraut 1. Umsókn um byggingarleyfi, breytt útlit og innra skipulag

            Guðmundur V. Magnússon vék af fundi undir afgreiðslu málsins.

            Erindi frá Jóni G. Magnússyni f.h. Búbíl ehf vegna Dalbrautar 1, Bíldudal. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra fyrirkomulagi sem og útliti hússins.
            Gert er ráð fyrir tveimur gistiherbergjum í kjallara með útgangi í SA, einnig verði útbúin aðstaða fyrir starfsmenn og þvott. Á 1.hæð verði matsalur færður í NA helming hússins og þremur gistiherbergjum er bætt í NA hluta hæðarinnar, þar af eitt útbúið fyrir hreyfihamlaða. Á 2.hæð er einu herbergi bætt við og annað fær sér baðherbergi.
            Helstu útlitsbreytingar eru á suðaustur hlið hússins þar sem gluggar fyrir ný herbergi bætast við og inngangshurðir við kjallara. Glugga á 2.hæð SV verður lokað. Einnig er gert ráð fyrir því að húsið verði klætt og einangrað að utan. 1. og 2. hæð klædd með standandi báru málmklæðningu og kjallari klæddur með múrkerfi. Erindinu fylgir byggingarlýsing, afstöðumynd, grunnmynd, útlitsteikningar unnið af hugsjón, dags. 12.01.2017 sem og greinagerð um val og hönnun brunavarna, unnin af Eflu verkfræðistofu, dags 12.01.2017.

            Skipulags- og umhverfisráð samþykkir erindið með fyrirvara um grenndarkynningu og felur byggingarfulltrúa útgáfu byggingarleyfis að henni undangenginni.

              Málsnúmer 1701014

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:10