Hoppa yfir valmynd

Velferðarráð #8

Fundur haldinn í Aðalstræti 75, neðri hæð, 2. febrúar 2016 og hófst hann kl. 16:30

    Fundargerð ritaði
    • Elsa Reimarsdóttir Félagsmálastjóri

    Almenn erindi

    1. Barnaverndarmál

    Yfirlit yfir vinnslu barnaverndarmála.

      Málsnúmer 1602006

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Ester matstæki í barnavernd/félagsþjónustu

      Félagsmálastjóri hefur sótt tvö námskeið í Ester mati á vegum Barnaverndarstofu. Þriðja og síðasta námskeiðið verður haldið í apríl og verður þá einnig boðið upp á grunnnámskeið fyrir aðra starfsmenn barnaverndar/félagsþjónustu.

      ESTER - mat er skipulögð matsaðferð sem byggir á rannsóknum og er notað af til þess sérstaklega þjálfuðum sérfræðingum til að kanna rannsaka hvort viss hegðun og eiginleikar finnast hjá barni og fjölskyldu þess. Þeir áhættuþættir sem eru metnir eru þess eðlis að þeir geta aukið hættu og þeir verndandi þættir geta minnkað hættu á langvarandi andfélagslegri hegðun hjá barninu. Tilgangur með ESTER-mati er að gera sýnilegra það sem barnið eða mögulega fjölskylda þess þarf aðstoð með.

        Málsnúmer 1510037

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Reglur Velferðarráðs Vestur-Barðastrandarsýslu um greiðslu lögmannskostnaðar í barnaverndarmálum.

        Drög að reglum um greiðslu lögmannskostnaðar í barnaverndarmálum lögð fyrir. Samþykkt samhljóða.

          Málsnúmer 1602008

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Jafnréttisstefna

          Jafnréttisstefna og aðgerðaráætlun Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps 2014-2018 lögð fyrir til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

            Málsnúmer 1602009

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Fjárhagsaðstoð

            Umsókn um fjárhagsaðstoð vegna sérstakra aðstæðna allt að upphæð 100.000 kr. til NN. Bókað í trúnaðarbók.

            Upphæðir fjárhagsaðstoðar 2016 skv. reglum
            Einn í heimili 150.990,00
            Hjón 241.584,00
            Býr hjá foreldrum 75.495,00

              Málsnúmer 1602010

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30