Allt um kosn­ing­arnar

Laug­ar­daginn 4. maí 2024 verður kosið annars vegar til sveit­ar­stjórnar sameinaðs sveit­ar­fé­lags Tálkna­fjarð­ar­hrepps og Vest­ur­byggðar og hins vegar til heima­stjórna.

Hver er munurinn?

Kosn­ingar til sveit­ar­stjórnar fylgja kosn­inga­lögum en kosn­ingar til heima­stjórna fylgja reglu­gerð um íbúa­kosn­ingar sveit­ar­fé­laga. Sveit­ar­stjórnir Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarð­ar­hrepps hafa samþykkt reglur um kosn­ingar til heima­stjórna í sameinuðu sveit­ar­fé­lagi. Munurinn fyrir kjós­endur felst aðal­lega í kosn­ing­ar­aldri og hvar skuli kjósa áður en kemur að kjör­degi. Kosn­ing­ar­aldur til sveit­ar­stjórnar er 18 ár en til heima­stjórna er hann 16 ár.

Utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum fer fram á skrif­stofum sýslu­manna um allt land fram til föstu­dagsins 3. maí en kjör­dagur er laug­ar­daginn 4. maí. Atkvæði í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum þarf að senda til Vest­ur­byggðar eða Tálkna­fjarð­ar­hrepps ef kosið er annars staðar en á Vest­fjörðum. Hjá sýslu­manni Vest­fjarða á Ísafirði og Hólmavík má skilja atkvæðið eftir á skrif­stofum þeirra og því verður komið til Patreks­fjarðar fyrir kjördag.

Í heima­stjórn­ar­kosn­ing­unum er kosið í ráðhúsi Vest­ur­byggðar frá og með föstu­deg­inum 19. apríl til og með föstu­dagsins 03.maí fyrir allar fjórar heima­stjórn­irnar og á kjör­degi 4. maí í öllum kjör­deildum sveit­ar­fé­lag­anna. Jafn­framt má óska eftir að fá að greiða atkvæði i póst­kosn­ingu þar sem kjós­andi fær sendan atkvæða­seðil, ýmist í pósti eða rafrænt samkvæmt reglum þar um. Kjörgengir til heima­stjórnar eru allir íbúar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag en íbúar 16-18 ára geta kosið í heima­stjórn­ar­kosn­ing­unum.

Nánari upplýs­ingar um atkvæða­rétt og utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu eru hér fyrir neðan.


Má ég kjósa?

Hægt er að fletta upp hvort maður megi kjósa á heima­síðu Þjóð­skrár.

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar

Kjörgengir eru:

  • Allir íslenskir ríkis­borg­arar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, og sem skráðir eru með lögheimili í öðru hvoru sveit­ar­fé­laginu 38 dögum fyrir kjördag.
  • Þeir náms­menn á Norð­ur­lönd­unum sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag eiga kosn­ing­ar­rétt í því sveit­ar­fé­lagi þar sem lögheimili þeirra var skráð við brott­flutning. Sama gildir um maka og börn þeirra sem dveljast með þeim í viðkom­andi landi. Athugið að frestur fyrir umsóknir náms­manna búsetta á Norð­ur­lönd­unum til að fá að kjósa var 25. mars síðast­liðinn.
  • Allir danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkis­borgara sem eiga lögheimili í öðru hvoru sveit­ar­fé­laginu og hafa náð 18 ára aldri á kjördag.
  • Aðrir erlendir ríkis­borg­arar sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag, hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag og eru skráðir með lögheimili í öðru hvoru sveit­ar­fé­laginu.

Heima­stjórn­ar­kosn­ingar

Kjörgengir eru:

  • Allir íslenskir ríkis­borg­arar sem náð hafa 16 ára aldri á kjördag, og sem skráðir eru með lögheimili í öðru hvoru sveit­ar­fé­laginu 22 dögum fyrir kjördag.
  • Allir danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkis­borgara sem eiga lögheimili í öðru hvoru sveit­ar­fé­laginu og hafa náð 16 ára aldri á kjördag.
  • Aðrir erlendir ríkis­borg­arar sem hafa náð 16 ára aldri á kjördag, hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag og eru skráðir með lögheimili í öðru hvoru sveit­ar­fé­laginu.

Hvar á ég að kjósa á kjördag?

Hægt er að fletta upp sínum kjör­stað á heima­síðu Þjóð­skrár.

Kosið verður til sveit­ar­stjórnar og heim­stjórna á kjördag á eftir­far­andi stöðum:

  • Patreks­fjörður – Kosið í Félags­heimili Patreks­fjarðar (FHP) Kjör­deildin opnar kl. 10:00.
  • Bíldu­dalur – Kosið í félags­heim­ilinu Bald­urs­haga Kjör­deildin opnar kl. 12:00.
  • Kross­holt – Kosið í Birki­mels­skóla á Barða­strönd. Kjör­deildin opnar kl. 12:00.
  • Tálkna­fjörður – Kosið í Tálkna­fjarð­ar­skóla. Kjör­deildin opnar kl. 10:00.

Íbúar fyrrum Rauðasands­hrepps eru skráðir í kjör­deild­inni á Patreks­firði.


Hvenær er hægt að kjósa á kjördag?

Á Patreks­firði og Tálkna­firði opnar kjör­deild kl. 10:00, á Bíldudal og Kross­holtum opnar hún kl. 12:00.

Samkvæmt 91. gr. kosn­ing­ar­laga nr. 112/2021 má ekki slíta kjör­fundi fyrr en átta klukku­stundir eru liðnar frá því að hann hófst og ekki fyrr en hálf klukku­stund er liðin frá því að kjós­andi gaf sig síðast fram. Kjör­fundi má þó slíta er allir sem á kjör­skrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukku­stundir ef öll kjör­stjórnin og umboðs­menn eru sammála um það, enda sé þá hálf klukku­stund liðin frá því að kjós­andi gaf sig síðast fram. Kjör­fundi skal þó slíta eigi síðar en kl. 22 á kjördag. Þeir kjós­endur sem hafa gefið sig fram fyrir þann tíma eiga þó rétt á að greiða atkvæði.


Hvað ef ég kemst ekki á kjördag?

Sveita­stjórn­ar­kosn­ingar – utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla

Utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla hefst föstu­daginn 5. apríl 2024.

Hægt er að kjósa utan kjör­fundar á skrif­stofu sýslu­manns Vest­fjarða að Aðalstræti 92 á Patreks­firði á afgreiðslu­tíma:

  • Mánu­daga til fimmtu­daga kl. 09:30-12:00 og 13:00-15:00
  • Föstu­daga kl. 09:30-12:00

Þá er einnig hægt að kjósa utan kjör­fundar á skrif­stofum sýslu­manna um allt land fram til föstu­dagsins 3.maí. Atkvæði í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum þarf að senda til Vest­ur­byggðar eða Tálkna­fjarð­ar­hrepps ef kosið er annars staðar en á Vest­fjörðum. Hjá sýslu­manni Vest­fjarða á Ísafirði og Hólmavík má skilja atkvæðið eftir á skrif­stofum þeirra og því verður komið til Patreks­fjarðar fyrir kjördag.

Heima­stjórn­ar­kosn­ingar

Kosið er í ráðhúsi Vest­ur­byggðar að Aðalstræti 75 á Patreks­firði á opnun­ar­tíma:

  • Mánu­daga til fimmtu­daga kl. 10:00-12:30 og 13:00-15:00
  • Föstu­daga kl. 10:00-13:00

Kosning hefst föstu­daginn 19. apríl 2024.

Póst­kosning

Sjái íbúi sér ekki fært að mæta á kjör­stað er hægt að óska eftir því að greiða atkvæði sitt með póst­kosn­ingu. Slík beiðni skal berast skrif­stofum sveit­ar­fé­lag­anna í tölvu­pósti eða í síma og skal taka fram hvort kjör­gögn eigi að berast til viðkom­andi aðila í almennum bréf­pósti eða í tölvu­pósti. Sé kosið í póst­kosn­ingu ber íbúi ábyrgð á að koma kjör­seðli á kjör­stað fyrir lokun kjör­staða, 4. maí.


Hvar og hvenær verða atkvæði talin?

Talning atkvæða úr sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum fer fram í Félags­heimili Patreks­fjarðar laug­ar­daginn 4. maí og opnar taln­ing­ar­staður kl. 21:00. Einnig verða atkvæði í heima­stjórn­ar­kosn­ing­unum talin á sama stað á sama tíma. Hægt er að fylgjast með taln­ing­unni á staðnum og verða úrslit í öllum kosn­ing­unum kynnt að taln­ingu lokinni. Jafn­framt verða úrslit kynnt á heima­síðu sveit­ar­fé­lag­anna.


Hver eru í framboði?

Hér má sjá fram­boðs­lista til sveit­ar­stjórnar og hér má sjá hver hafa sérstak­lega gefið kost á sér í heima­stjórnir.


Spurningum mínum er enn ósvarað. Hvert get ég snúið mér?

Hægt er að senda fyrir­spurnir á sameining@vest­ur­byggd.is. Þá má einnig hringja í ráðhús Vest­ur­byggðar á opnun­ar­tíma í síma 450 2300 eða á skrif­stofu Tálkna­fjarð­ar­hrepps á opnun­ar­tíma í síma 450 2500. Einnig má senda skilaboð á Vest­ur­byggð á Face­book.