Aðdragandinn
Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur eiga langa sögu af farsælu samstarfi sín á milli.
Upphaf sameiningarferlisins má rekja til valkostagreiningar á sameiningarkostum sem varpaði ljósi á að helstu áhersluatriði í sameiningaviðræðum væru þær sömu hjá sveitarfélögunum. Þar voru efst á lista bættar samgöngur á milli þéttbýliskjarna sveitarfélaganna með göngum undir Mikladal og Hálfdán.
Í framhaldinu var ákveðið að skipa verkefnisstjórn um mögulega sameiningu sveitarfélaganna sumarið 2022. Verkefnisstjórnin lagði síðan til við sveitarstjórnir sveitarfélaganna snemma árs 2023 að farið yrði í formlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna. Í febrúar 2023 var samþykkt á fundi sveitarstjórna beggja sveitarfélaga að hefja formlegar sameiningarviðræður sem enduðu á íbúakosningu um sameiningu í október sama ár. Afgerandi meirihluti íbúa kaus með sameiningunni.