Gefur þú sérstakan kost á þér í heimastjórn?
Einstaklingum sem hafa áhuga á því að sitja í heimastjórn og vilja gefa sérstaklega kost á sér til býðst að kynna sig og sín áherslumál í gegnum heimasíður sveitarfélaganna.
Frambjóðendum er boðið að senda mynd af sér og stuttan kynningartexta að hámarki 200 orð á netfangið muggsstofa@vesturbyggd.is. Þar þarf að koma fram fullt nafn og heimilisfang frambjóðanda. Kynningar á frambjóðendum verða birtar á heimasíðum Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Kynningar verða birtar jafnóðum og þær berast, tekið verður við kynningum til fimmtudagsins 2. maí kl. 12:00.