Allt um kosningarnar
Laugardaginn 4. maí 2024 verður kosið annars vegar til sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar og hins vegar til heimastjórna.
Hver er munurinn?
Kosningar til sveitarstjórnar fylgja kosningalögum en kosningar til heimastjórna fylgja reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga. Sveitarstjórnir Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps hafa samþykkt reglur um kosningar til heimastjórna í sameinuðu sveitarfélagi. Munurinn fyrir kjósendur felst aðallega í kosningaraldri og hvar skuli kjósa áður en kemur að kjördegi. Kosningaraldur til sveitarstjórnar er 18 ár en til heimastjórna er hann 16 ár.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í sveitarstjórnarkosningum fer fram á skrifstofum sýslumanna um allt land fram til föstudagsins 3.maí en kjördagur er laugardaginn 4.maí. Atkvæði í sveitarstjórnarkosningum þarf að senda til Vesturbyggðar eða Tálknafjarðarhrepps ef kosið er annars staðar en á Vestfjörðum. Hjá sýslumanni Vestfjarða á Ísafirði og Hólmavík má skilja atkvæðið eftir á skrifstofum þeirra og því verður komið til Patreksfjarðar fyrir kjördag.
Í heimastjórnarkosningunum er kosið í ráðhúsi Vesturbyggðar frá og með föstudeginum 19. apríl til og með föstudagsins 03.maí fyrir allar fjórar heimastjórnirnar og á kjördegi 4. maí í öllum kjördeildum sveitarfélaganna. Jafnframt má óska eftir að fá að greiða atkvæði i póstkosningu þar sem kjósandi fær sendan atkvæðaseðil, ýmist í pósti eða rafrænt samkvæmt reglum þar um. Kjörgengir til heimastjórnar eru allir íbúar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag en íbúar 16-18 ára geta kosið í heimastjórnarkosningunum.
Nánari upplýsingar um atkvæðarétt og utankjörfundaratkvæðagreiðslu eru hér fyrir neðan.
Má ég kjósa?
Hægt er að fletta upp hvort maður megi kjósa á heimasíðu Þjóðskrár.
Sveitarstjórnarkosningar
Kjörgengir eru:
- Allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, og sem skráðir eru með lögheimili í öðru hvoru sveitarfélaginu 38 dögum fyrir kjördag.
- Þeir námsmenn á Norðurlöndunum sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag eiga kosningarrétt í því sveitarfélagi þar sem lögheimili þeirra var skráð við brottflutning. Sama gildir um maka og börn þeirra sem dveljast með þeim í viðkomandi landi. Athugið að frestur fyrir umsóknir námsmanna búsetta á Norðurlöndunum til að fá að kjósa var 25. mars síðastliðinn.
- Allir danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgara sem eiga lögheimili í öðru hvoru sveitarfélaginu og hafa náð 18 ára aldri á kjördag.
- Aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag, hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag og eru skráðir með lögheimili í öðru hvoru sveitarfélaginu.
Heimastjórnarkosningar
Kjörgengir eru:
- Allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 16 ára aldri á kjördag, og sem skráðir eru með lögheimili í öðru hvoru sveitarfélaginu 22 dögum fyrir kjördag.
- Allir danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgara sem eiga lögheimili í öðru hvoru sveitarfélaginu og hafa náð 16 ára aldri á kjördag.
- Aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa náð 16 ára aldri á kjördag, hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag og eru skráðir með lögheimili í öðru hvoru sveitarfélaginu.
Hvar á ég að kjósa á kjördag?
Hægt er að fletta því upp sínum kjörstað á heimasíðu Þjóðskrár.
Kosið verður til sveitarstjórnar og heimstjórna á kjördag á eftirfarandi stöðum:
- Félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal
- Félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd
- Félagsheimili Patreksfjarðar
- Tálknafjarðarskóla
Hvenær er hægt að kjósa á kjördag?
Upplýsingar verða birtar síðar.
Hvað ef ég kemst ekki á kjördag?
Sveitastjórnarkosningar – utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst föstudaginn 5. apríl 2024.
Hægt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofu sýslumanns Vestfjarða að Aðalstræti 92 á Patreksfirði á afgreiðslutíma:
- Mánudaga til fimmtudaga kl. 09:30-12:00 og 13:00-15:00
- Föstudaga kl. 09:30-12:00
Þá er einnig hægt að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna um allt land fram til föstudagsins 3.maí. Atkvæði í sveitarstjórnarkosningum þarf að senda til Vesturbyggðar eða Tálknafjarðarhrepps ef kosið er annars staðar en á Vestfjörðum. Hjá sýslumanni Vestfjarða á Ísafirði og Hólmavík má skilja atkvæðið eftir á skrifstofum þeirra og því verður komið til Patreksfjarðar fyrir kjördag.
Heimastjórnarkosningar
Kosið er í ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75 á Patreksfirði á opnunartíma:
- Mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00-12:30 og 13:00-15:00
- Föstudaga kl. 10:00-13:00
Kosning hefst föstudaginn 19. apríl 2024.
Póstkosning
Sjái íbúi sér ekki fært að mæta á kjörstað er hægt að óska eftir því að greiða atkvæði sitt með póstkosningu. Slík beiðni skal berast skrifstofum sveitarfélaganna í tölvupósti eða í síma og skal taka fram hvort kjörgögn eigi að berast til viðkomandi aðila í almennum bréfpósti eða í tölvupósti. Sé kosið í póstkosningu ber íbúi ábyrgð á að koma kjörseðli á kjörstað fyrir lokun kjörstaða, 4. maí.