Fólk með fötlun

Sveit­ar­fé­lagið vinnur að því að fólki með fötlun sé tryggð sambærileg lífs­kjör og jafn­rétti á við aðra þjóð­fé­lags­þegna. Sveit­ar­fé­lagið sér um þjón­ustu við fólk með fötlun samkvæmt þjón­ustu­samn­ingi við Byggða­samlag Vest­fjarða um málefni fatlaðs fólk og er þjón­ustan marg­vísleg og hefur ávallt að mark­miði að fólki með fötlun séu sköpuð skil­yrði til að lifa sem eðli­leg­ustu lífi miðað við getu hvers og eins.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

MAS

magnusarnar@vesturbyggd.is/+354 450 2300

Fólk með fötlun á rétt á almennri þjón­ustu og aðstoð samkvæmt lögum um félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga og skal þeim veitt þjón­usta á almennum stofn­unum eftir því sem unnt er og við á. Að öðru leyti fer þjón­usta um málefni þeirra eftir lögum um málefni fatl­aðra.