Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #350

Fundur haldinn í fjarfundi, 19. ágúst 2020 og hófst hann kl. 17:00

Nefndarmenn
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
  • Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) formaður
  • Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
  • Magnús Jónsson (MJ) aðalmaður
  • María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) bæjarstjóri

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Hljóðupptaka
00:00 / 00:00

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 350. fundar miðvikudaginn 19. ágúst kl. 17:00.
Iða Marsibil Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
Þar sem um fjarfund er að ræða er fundurinn ekki opinn almenningi en upptaka frá fundinum verður sett inn á heimasíðu Vesturbyggðar.

Almenn erindi

1. Vestfjarðavegur (60) um Dynjandsheiði, Penna - Þverdalsvatn - umsókn um framkvæmdaleyfi

Lagt fram erindi Vegagerðarinnar frá 10. júlí 2020 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi til Vesturbyggðar skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir byggingu Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði um Penningsdal ofan við Pennuá og upp fyrir Þverdalsvatn, um 5.7km leið. Álit Skipulagsstofnunar um heildarframkvæmdina liggur fyrir dagsett 3. júlí 2020. Í umsókninni er einungis verið að sækja um leyfi fyrir hluta framkvæmdar sem er í samræmi við gildandi aðalskipulag Vesturbyggðar 2006-2018 og er óháð þeim valkostum sem lagðir hafa verið fram um Vatnsfjörð og Flókalund upp Penningsdal. Efni í framkvæmdina verður sótt í skeringar og meðfram vegi.

Meðfylgjandi umsókninni er framkvæmdalýsing og uppdrættir af fyrirhuguðum framkvæmdasvæðum.

Bæjarstjórn samþykkir að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Málsnúmer 2007046 4

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    2. Dufansdalur Efri - Umsókn um framkvæmdaleyfi, lagnaleið.

    Erindi frá Þórarni K. Ólafssyni og Arnhildi Ásdísi Kolbeins dags 15. júlí 2020. Í erindinu er sótt um framkvæmdaleyfi vegna lagningar 2 km háspennustrengs fyrir 11 kV dreifingu fyrir Dufansdal Efri sem og frístundabyggð í Dufansdal. Strengleiðin mun að hluta til fara um land Dufansdals Neðri og mun verða fengin heimild landeiganda fyrir því að plægja lögnina niður, þar sem hún þverar mela og neðsta hluta í túni býlisins. Með framkvæmdaleyfisumsókninni fylgdi yfirlitsuppdráttur af strengleiðinni og framkvæmdalýsing.

    Bæjarstjórn samþykkir að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar skriflegt samþykki landeiganda og jákvæð umsögn Minjavarðar og Fiskistofu liggja fyrir. Bæjarstjórn tekur undir með skipulags- og umhverfisráði og kallar eftir uppmælingu af legu strengsins í heild þegar framkvæmd er lokið. Framkvæmdaraðili skal gæta þess að rask á framkvæmdasvæðinu verði lágmarkað og vel gengið frá eftir framkvæmdir.

      Málsnúmer 2007042 2

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      3. Langahlíð 16A. Umsókn um byggingarleyfi.

      Erindi frá Hrafnshól ehf, dags. 12. ágúst 2020. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 257,4 m2 fjögurra íbúða húsi á tveimur hæðum að Lönguhlíð 16A, Bíldudal. Erindinu fylgja teikningar unnar af Studio F - arkitektum, dags. 21.júlí 2020.

      Bæjarstjórn tekur undir með skipulags- og umhverfisráði og samþykkir byggingaráformin með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna framkvæmdina fyrir aðliggjandi lóðarhöfum. Útfæra þarf bílastæði fyrir húsin fyrir grenndarkynningu.

        Málsnúmer 2008007 4

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        4. Langahlíð 16B. Umsókn um byggingarleyfi.

        Erindi frá Hrafnshól ehf, dags. 12. ágúst 2020. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 257,4 m2 fjögurra íbúða húsi á tveimur hæðum að Lönguhlíð 16B, Bíldudal. Erindinu fylgja teikningar unnar af Studio F - arkitektum, dags. 21. júlí 2020.

        Bæjarstjórn tekur undir með skipulags- og umhverfisráði og samþykkir byggingaráformin með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna framkvæmdina fyrir aðliggjandi lóðarhöfum. Útfæra þarf bílastæði fyrir húsin fyrir grenndarkynningu.

          Málsnúmer 2008008 4

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          5. Sigtún 2. Umsókn um lóð.

          Erindi frá Eddu S. Ólafsdóttur o.fl. dags 10. ágúst 2020. Í erindinu er sótt um byggingarlóðina að Sigtúni 2, Patreksfirði. Samkvæmt umsókn er áætlaður upphafstími framkvæmda eftir 4-6 ár.

          Lóðin stendur á skilgreindu B - hættusvæði ofanflóða.

          Til máls tóku: Forseti, MÓÓ, bæjarstjóri, FM og MJ.

          Bæjarstjórn samþykkir úthlutun lóðarinnar en vekur jafnframt athygli umsækjenda á því að samkvæmt núgildandi ákvæðum í lóðarleigusamningum skuli framkvæmdir vera hafnar innan árs og lokið innan þriggja ára frá útgáfu lóðarleigusamnings.

            Málsnúmer 2008005 2

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            6. Mikladalsvegur 5. Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings.

            Erindi frá Eggert Björnssyni, dags. 10. ágúst 2020. Í erindinu er sótt um endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Mikladalsveg 5, Patreksfirði. Erindinu fylgir tillaga að nýrri afmörkun lóðar.

            Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun lóðarleigusamningsins og nýja afmörkun.

              Málsnúmer 2008002 2

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              7. Aðalstræti 11. Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings.

              Erindi frá Unnsteini L. Jenssyni, dags. 17. júlí 2020. Í erindinu er sótt um endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Aðalstræti 11, Patreksfirði. Erindinu fylgir tillaga byggingarfulltrúa að nýrri afmörkun lóðar.

              Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun lóðarleigusamningsins.

                Málsnúmer 2007048 2

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                8. Ósk um endurnýjun á lóðarleigusamningi

                Erindi frá Strönd ehf, dags. 30. júlí 2020. Í erindinu er sótt um endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Saumastofuna Krossholtum Barðaströnd, landnr. 139840.

                Til máls tóku: Forseti, FM og bæjarstjóri.

                Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun lóðarleigusamningsins.

                  Málsnúmer 2007062 2

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  9. Smiðjustígur 1. Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings.

                  Erindi frá Pétri Bjarnasyni, dags. 10. ágúst 2020. Í erindinu er sótt um endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Smiðjustíg 1, Bíldudal. Erindinu fylgir tillaga byggingarfulltrúa að nýrri afmörkun lóðar.

                  Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun lóðarleigusamningsins.

                    Málsnúmer 2008004 2

                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                    10. Aðalstræti 10. Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings.

                    Þórkatla Soffía Ólafsdóttir víkur af fundi á meðan erindið er tekið til afgreiðslu.

                    Erindi frá Oddi Þ. Rúnarssyni, dags. 11. ágúst 2020. Í erindinu er sótt um endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Aðalstræti 10, Patreksfirði.

                    Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun lóðarleigusamningsins.

                    Þórkatla Soffía Ólafsdóttir kemur aftur inná fundinn.

                      Málsnúmer 2008006 2

                      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                      Fundargerð

                      11. Skipulags og umhverfisráð - 75


                      12. Hafna- og atvinnumálaráð - 22

                      Forseti víkur af fundi á meðan fundargerð hafna- og atvinnumálaráðs er tekin til umfjöllunar og afhendir fundarstjórn til varaforseta.

                      Lögð fram til kynningar fundargerð 22. fundar hafna- og atvinnumálaráðs sem haldinn var 17. ágúst 2020. Fundargerðin er í 4 liðum.

                      Forseti kemur aftur inná fundinn og tekur við fundarstjórn af varaforseta.

                      Málsnúmer 2007004F

                      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                      Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40