Hoppa yfir valmynd

Fasteignir Vesturbyggðar #62

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 8. desember 2016 og hófst hann kl. 09:00

Fundargerð ritaði
  • Þórir Sveinsson skrifstofustjóri

Almenn mál

1. Sala íbúða

Lagður fram kaupsamningur vegna fasteignarinnar Sigtúns 63, Patreksfirði fastanr. 212-4016, söluverð 9,5 millj.kr.
Guðný Sigurðardóttir lét bóka að hún hafi ekki tekið þátt í afgreiðslu dagskrárliðarins vegna tengsla við aðila máls.
Stjórn Fasteigna Vesturbyggðar ehf samþykkir sölu Sigtúns 63.

Málsnúmer5

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


2. Rekstur og fjárfestingar - Fasteignir Vesturbyggðar ehf.

Lögð fram fjárhagsáætlun Fasteigna Vesturbyggðar ehf fyrir árið 2017.
Stjórn Fasteigna Vesturbyggðar ehf samþykkir fjárhagsáætlunina.
Stjórn Fasteigna Vesturbyggðar ehf samþykkir að Friðbjörg Matthíasdóttir, bæjarstjóri kt. 060269-4329 taki tímabundið við stöðu framkvæmdastjóra Fasteigna Vesturbyggðar ehf og hafi prókúru fyrir félagið.
Stjórn Fasteigna Vesturbyggðar ehf ítrekar að við leigu á íbúðum félagsins skuli leggja fram tryggingafé og/eða bankatryggingu sem nemur 3ja mánaðar leigu vegna mögulegra skemmda/vangreiðslu á leigu.
Stjórn Fasteigna Vesturbyggðar ehf samþykkir 10% hækkun leigugjalds/leigugrunns fyrir íbúðir sem leigðar eru frá og með 1. janúar 2017 og meðal ákvæða í nýjumn leigusamningum verði, auk vísitölutengingar, að leigugrunnur sé endurskoðaður við hver áramót.

Málsnúmer4

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


3. Tilboð vegna Aðalstræti 4 íbúð 102 fastnr.221-3898

Stjórn Fasteigna Vesturbyggðar ehf samþykkir að fela framkvæmdastjóra að semja við eigendur Aðalstrætis 4, íbúð 0102 fastanr. 221-3898 um kaup á eigninni á grundvelli umræðna á fundinum.

Málsnúmer3

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


4. Önnur mál.

Engin önnur mál.

Málsnúmer2

Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30