Hoppa yfir valmynd

Hafnarstjórn #139

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 3. september 2015 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði
    • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri

    Almenn erindi

    1. Deiliskipulag - Við Brjánslækjarhöfn

    Tekin fyrir lýsing að deiliskipulagtillögum við Brjánslæk, dags. 20. ágúst 2015. Um er að ræða tvær deiliskipulagstillögur við Brjánslæk sem settar eru fram í einni lýsingu, unnin af Gingi teiknistofa ehf. og egg arkitektar ehf. Samkvæmt lýsingunni eru þetta tvær sjálfstæðar deiliskipulagstillögur annars vegar við Brjánslækjarhöfn og Flókatóftir og hins vegar við Prestsetrið.

    Lýsing á svæðunum kemur fram í skipulagslýsingunni og er á eftirfarandi hátt:
    3.1 DEILISKIPULAG - VIÐ BRJÁNSLÆKJARHÖFN OG VIÐ FLÓKATÓFTIR.
    Landið innan afmörkunarlínu skipulagssvæða er í eigu ríkissjóðs. Svæðinu verður lýst hér í tvennu lagi. Svæðið í kringum höfnina (norðurhluti) er u.þ.b. 3,0 ha. að stærð og svæðið í kringum Flókatóftirnar (suðurhluti) er u.þ.b. 3,6 ha. að stærð. Heildarstærð skipulagssvæðisins alls er því u.þ.b. 6,6 ha.
    Við Brjánslækjarhöfn er gerð tillaga að nýjum varnargarði u.þ.b. 123 m að lengd og breikkun á núverandi varnargarði. Núverandi flotbryggja fyrir smábáta verður færð frá suðri til norðurs í skjóli við nýjan varnargarð. Gamla ferjubryggjan verður fjarlægð. Í tengslum við ferðaþjónustu og ferjusiglingar er gert ráð fyrir uppbyggingarmöguleika vestan og ofan við núverandi fiskvinnsluhús þar sem sýndur er byggingareitur ásamt bílastæðasvæði. Í framtíðinni getur þá núverandi þjónustu- og afgreiðsluhús fyrir ferjuna fluttst niður fyrir veg. Tillaga er gerð að landfyllingu austan við núverandi fiskvinnsluhús með möguleika á viðbyggingu og fyrir stærra athafnasvæði. Rör eða háfur verður reistur fyrir hausaþurrkunarstöðina og skal hæð hans vera ákveðin í samráði við Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða.
    Við Flókatóftir er gerð tillaga um að þau hús sem nú standa á svæðinu verði fjarlægð, þ.e. sumarhúsið og skreiðarhjallurinn. Í stað þeirra verður gerð tillaga að byggingareit fyrir lítið þjónustuhús, þar sem m.a. salernisaðstöðu og áhaldageymslu verður komið fyrir. Bílastæði verða staðsett næst þjónustuhúsi.

    3.2 DEILISKIPULAG BRJÁNSLÆKUR 1 - VIÐ PRESTSETRIÐ.
    Svæði það sem er innan umrædds deiliskipulagsvæðis er í eigu ríkissjóðs. Stærð skipulagssvæðis er u.þ.b. 1,5 ha. þar sem aðaldeiliskipulagssvæðið liggur, en heildarsvæðið þar sem göngustígarnir liggja eru alls 6,5 ha.

    Gerð er tillaga að bæta við nýjum notkunarflokki: Frístundabyggð (F6) - sjá nánar í kafla 2.1.4 á bls. 5, þar sem gerð er tillaga að breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018. Deiliskipulagstillagan sýnir nýja lóð vestan við prestsetrið með byggingareit fyrir smáhýsi / gistihús fyrir ferðamenn ásamt þjónustuhúsi. Vinna er í gangi við húsakönnun og eru kirkjan og prestbústaður hluti af þeirri vinnu. Prestbústaðnum verður breytt í sýningarrými og kaffihús. Bílastæði verða gerð í tengslum við sýninguna, kaffihús og smáhýsin. Byggðir verða upp göngustígar sem tengja svæðið við Flókatóftir og höfnina.

    Athugasemdir hafnarstjórnar.
    1. Athuga þarf landamerki.
    2. Stækka þarf deiliskipulagssvæðið í samræmi við hafnarsvæði Brjánslækjarhafnar.

    Að öðru leyti samþykkir hafnarstjórn Vesturbyggðar skipulagslýsinguna.

      Málsnúmer 1506002 2

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. SASV vegna áætlunarsiglingar

      Rætt um áætlunarsiglingar í Vesturbyggð.

        Málsnúmer 1411054 2

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Framkvæmdir 2015

        Rætt um framkvæmdir 2015. Forstöðurmaður Tæknideildar kynnti framkvæmdir sumarsins.
        Flotbryggju á Bíldudal.
        Flotbryggju á Patreksfirði.

        Rætt um aðstöðu fyrir björgunarskipið Vörðinn.

          Málsnúmer 1501037 13

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Dýpkun í Brjánslækjarhöfn

          Lagt fram bréf frá Gunnlaugi Grettissyni rekstrarstjóra Sæferða þar sem óskað er eftir dýpkun í Brjánslækjarhöfn. Hafnarstjóri lagði fram bréf til Hafnaráðs. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að senda bréf til Hafnaráðs þar sem óskað er eftir fjárveitingu til dýpkunar í Brjánslækjarhöfn.

            Málsnúmer 1509003

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Cruise Iceland

            Hafnarstjóri kynnti stöðu á Cruise Iceland samstarfi Hafna Vesturbyggðar.

              Málsnúmer 1509008 2

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              7. Dýpkun innsiglingar Patrekshafnar

              Lögð fram mælingagögn vegna innsiglingar Patrekshafnar.

              Til stendur að Hagtak ehf. verði á ferðinni á haustdögum og er þá stefnt að dýpkun.

                Málsnúmer 1507053

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                Fundargerðir til kynningar

                6. Hafnarsamband Ísl. fundargerð stjórnar nr.375

                Lögð fram fundargerð frá Hafnasambandi íslands til kynningar. Hafnarstjórn Vesturbyggðar tekur undir bókun Hafnasambands Íslands frá 22. maí 2015

                Hafnasamband Íslands skorar á ráðherra og umhverfis- og samgöngunefnd að auka fjármagn til framkvæmda í höfnum. Fjölmargar hafnir eru komnar í viðhaldsþörf og mikilvægt er að í samgönguáætlun og fjárlögum næstu ára verði tryggt fjármagn til framkvæmda til að tryggja öryggi sjófarenda. Nauðsynlegt er að það liggi fyrir mat á forgangsröðun verkefna sem verði unnið í samstarfi við hafnirnar. Stjórn Hafnasambands Íslands telur einnig að aukin gjöld á útgerðir í gegnum veiðigjöldin eigi að renna að hluta til, til hafnarsjóðanna svo hægt sé að viðhalda þeim innviðum sem eru mikilvægir svo útgerð geti haldið áfram að blómstra.

                  Málsnúmer 1506006

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00