Hoppa yfir valmynd

Undirbúningsstjórn vegna sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps #6

Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 8. apríl 2024 og hófst hann kl. 16:00

Nefndarmenn
  • Guðrún Eggertsdóttir (GE) aðalmaður
  • Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
  • Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
  • Jón Árnason (JÁ) formaður
  • Lilja Magnúsdóttir (LM) varaformaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) embættismaður
  • Ólafur Þór Ólafsson (ÓÞÓ) embættismaður
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir (ÞSS) embættismaður

Fundargerð ritaði
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar

Jón Árnason sat fundinn í gegnum fjarfundabúnað. Ráðgjafar KPMG Bryndís Gunnlaugsdóttir og Lilja Ósk Alexandersdóttir sátu fundinn einnig í gegnum fjarfundabúnað.

Almenn erindi

1. Skilaskýrsla undirbúningsstjórnar til sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar

Lögð fyrir drög að skilaskýrslu undirbúningsstjórnar til nýs sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

Ráðgjafi sveitarfélagsins vegna sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps fór yfir drög að skilaskýrslu undirbúningsstjórnar til nýs sameinaðs sveitarfélags. Áfram verður unnið að drögum að skilaskýrslu undirbúningsstjórnar og verður hún lögð fram að nýju á næsta fundi undirbúningsstjórnar.

Undirbúningsstjórn samþykkti sérstaklega tillögu að staðsetningu starfsfólks sem fyrir sameiningu heyrir beint undir sveitarstjóra Tálknafjarðarhrepps í sameiginlegu skipuriti sameinaðs sveitarfélags.

    Málsnúmer 2404002 2

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    2. Laun kjörinna fulltrúa í sameinuðu sveitarfélagi

    Umræða um laun kjörinna fulltrúa í sameinuðu sveitarfélagi.

    Formaður undirbúningsstjórnar vegna sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps leggur til við undirbúningsstjórn að formaður og varaformaður, ásamt verkefnastjóra, sveitar- og bæjarstjórum komi fram með tillögu að breytingum á launum kjörinna fulltrúa í nýju sveitarfélagi.

    Undirbúningsstjórn samþykkir tilllögu formanns um undirbúning tillögu að breytingum á launum kjörinna fulltrúa í nýju sveitarfélagi og að tillagan verði lögð fram á fundi undirbúningsstjórnar.

      Málsnúmer 2404003 2

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      3. Sveitarfélaganúmer nýs sameinaðs sveitarfélags

      Rætt um sveitarfélaganúmer nýs sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

      Undirbúningsstjórn samþykkir samhljóða að nýtt sameinað sveitarfélag muni bera núverandi sveitarfélaganúmer Tálknafjarðarhrepps 4604.

        Málsnúmer 2404008

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        4. Upplýsingagjöf verkefnastjóra

        Verkefnastjóri um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar fer yfir stöðu vinnunnar.

        Ákveðið var að halda næsta fund undirbúningsstjórnar vegna sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps þriðjudaginn 23. apríl n.k.

          Málsnúmer 2402014 3

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00