Hoppa yfir valmynd

Bratta­hlíð

    • Mánudag 08:00 – 21:00
    • Þriðjudag 08:00 – 21:00
    • Miðvikudag 08:00 – 21:00
    • Fimmtudag 08:00 – 21:00
    • Föstudag 08:00 – 19:30
    • Laugardag 10:00 – 15:00
    • Sunnudag 10:00 – 15:00
    • Mánudag 08:00 – 21:00
    • Þriðjudag 08:00 – 21:00
    • Miðvikudag 08:00 – 21:00
    • Fimmtudag 08:00 – 21:00
    • Föstudag 08:00 – 19:30
    • Laugardag 10:00 – 15:00
    • Sunnudag 10:00 – 15:00
  • Aðalstræti 55, Patreksfjörður
    Sjá á korti

  • 1.290 kr. Stakur tími, almennt gjald

Glæsileg sundlaug er á Patreksfirði við íþróttamiðstöðina Bröttuhlíð. Laugin er úti og úr henni og heitum pottum við laugina er gott útsýni yfir Patreksfjörð. Þar er líka ágætlega tækjum búinn þreksalur og íþróttahús.

Ókeypis er í sund fyrir börn yngri en 6 ára. 67 ára og eldri greiða hálft gjald í sund, einnig öryrkjar gegn framvísun örorkuskírteinis. Sund og gufa eru innifalin í aðgangseyri að þreksal og íþróttasal Bröttuhlíðar (á ekki við um hóptíma).

Almenn mánaðarkort og árskort eru gefin út á nafn eða nöfn og er ekki hægt að samnýta þau með öðrum. Kortin gilda einnig í íþróttamiðstöðinni Byltu á Bíldudal.