Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #255

Fundur haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, 14. febrúar 2013 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði
    • Þórir Sveinsson skrifstofustjóri

    Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 255. fundar mánudaginn 25. febrúar 2013 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði.
    Forseti bæjarstjórnar Friðbjörg Matthíasdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir séu við fundarboðun. Svo var ekki.

    Til kynningar

    1. Bæjarstjórn - 254

    5.tölul. Lagt fram svar ÞS við fyrirspurn AJ um sorphirðumál. Samþykkt að vísa svarinu til næsta fundar bæjarráðs.
    Fundargerðin lögð fram til kynningar.

      Málsnúmer 1301003F

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      Fundargerðir til staðfestingar

      2. Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 35

      Fundargerðin er í 1. tölulið.
      Fundargerðin samþykkt samhljóða.

        Málsnúmer 1212001F

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 36

        Fundargerðin er í 2. töluliðum.
        Til máls tóku: GE og forseti.
        Fundargerðin samþykkt samhljóða.

          Málsnúmer 1301013F

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Bæjarráð - 667

          Fundargerðin er í 20. töluliðum.
          Til máls tóku: ÁS, AJ, forseti og GE.
          8.tölul. vísað til 12. dagskrárliðar.
          12.tölul. Bæjarstjórn samþykkir þær tillögur sem fram koma í greinargerð Björns Jóhannessonar hrl. og lýsir ánægju sinni með að niðurstaða er fengin.
          Fundargerðin staðfest samhljóða.

            Málsnúmer 1301008F 2

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Bæjarráð - 668

            Fundargerðin er í 7. töluliðum.
            Til máls tóku: AJ, ÁSG, skrifstofustjóri, GE og forseti.
            2.tölul. vísað til 10. dagskrárliðar.
            3.tölul. vísað til 11. dagskrárliðar.

            5.tölul.: Bæjarstjórn Vesturbyggð lýsir yfir þungum áhyggjum af atvinnumálum á Bíldudal nú þegar fyrir liggur að öllu starfsfólki fiskvinnslufyrirtækisins Arnfirðings ehf. hefur verið sagt upp störfum. Það er grafalvarleg staða fyrir lítinn byggðakjarna þegar um 10% af íbúum missir vinnu sína, sér í lagi þar sem atvinnulíf er fábreytt fyrir og fjöldi annarra starfa hafa tapast á undangengnum mánuðum.
            6.tölul.: ”Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 77.000.000 kr., í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr., 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að endurfjármagna afborganir sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga á árinu 2013 að fjárhæð 70 milljónir auk þess að fjármagna fráveitu- og vatnsveituframkvæmdir að fjárhæð 7 milljónir króna, sbr. 3 gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
            Jafnframt er Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra Vesturbyggðar, kt. 100674-3199 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Vesturbyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.“
            Fundargerðin staðfest samhljóða.

              Málsnúmer 1302001F 2

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              6. Bæjarráð - 669

              Fundargerðin er í 8. töluliðum.
              Til máls tóku: Forseti og ÁS.
              Fundargerðin staðfest samhljóða.

                Málsnúmer 1302003F 2

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                7. Skipulags- og byggingarnefnd - 175

                Fundargerðin er í 7. töluliðum.
                Til máls tóku: ÁS og forseti.
                ÁS vék af fundi undir 6.tölul. og 7.tölul. vegna tengsla við aðila máls.
                Eftirfarandi liðir fundargerðarinnar voru teknir sérstaklega til afgreiðslu:
                3.tölul.: Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir snjóflóðavörnum á Patreksfirði.
                Með bréfi dags. 23.05.2012 og með vísan til 13. gr. laga nr. 123/2010 sótti Vesturbyggð um framkvæmdaleyfi til gerðar þvergarðs til varnar ofanflóðum og grjóthruni ofan byggðar á svæði milli Vatneyrar og Geirseyrargils á Patreksfirði í samræmi við ákvæði reglugerðar um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.
                Bæjarstjórn Vesturbyggðar bindur veitingu framkvæmdaleyfisins skilyrðum sem snúa að framkvæmd, tilhögun framkvæmda, mótvægisaðgerðum og vöktun. Bæjarstjórn leggur áherslu á að rask á umhverfi og starfsemi í kring verði sem minnst á byggingartímanum og tekið verði tillit til athugasemda sem fram komu frá íbúum á fundi með Ofanflóðasjóði þann 10. maí 2012. Bæjarstjórn Vesturbyggðar óskar eftir að gerð verði úttekt af óháðum aðila á ástandi mannvirkja á áhrifasvæði framkvæmdanna áður en garðurinn verði byggður og aftur að framkvæmdum loknum.
                Skilmálar með framkvæmdaleyfi í tengslum við skipulagsáætlanir Vesturbyggðar eru:
                Áður en framkvæmdaleyfi verður veitt skal hæðarmæla botnplötur allra húsa sem standa næst varnargarðinum og hallamálsmæla útveggi húsa. Við lokaúttekt verksins skal framkvæma samskonar mælingar. Í allt að sex ár eftir lokaúttekt mun Vesturbyggð framkvæma mælingar annað hvert ár. Jafnframt skulu framkvæmdar til samanburðar, mælingar á nokkrum húsum, sem einnig standa í brekkunni en verða ekki fyrir áhrifum vegna framkvæmdanna.
                Þar sem hluti núverandi skógræktar á svæðinu verður fjarlægð vegna framkvæmda skal planta einu tré annars staðar innan svæðisins fyrir hvert tré sem fellt verður.
                Einnig mælir bæjarstjórn með eftirfarandi skilmálum um sérstakt verklag vegna framkvæmdaleyfis: Að framkvæmdatími ofan grunnskóla verði aðallega yfir sumarmánuðina þegar starfsemi grunnskóla liggur niðri. Samráð skal haft við skólastjórnendur og bæjaryfirvöld eins og nauðsyn krefur. Lögð verður áhersla á að verktaki gæti þess vel að raska hvergi landi utan framkvæmdasvæðisins, auk svæðis fyrir vinnubúðir. Öll umferð vegavinnutækja verður bönnuð utan framkvæmda-svæðisins. Öll tilhögun við efnistöku og vinnslu verður í samráði við landeigendur og Umhverfisstofnun. Frágangur á efnistökusvæðum verður samkvæmt verklagsreglum í ritinu ”Námur, efnistaka og frágangur“. Framkvæmdaraðilar áforma að hanna svæðið í fullu samráði við Minjastofnun Íslands. Framkvæmdirnar munu hins vegar skemma þrjár minjar sem staðsettar eru fyrir ofan Heilbrigðisstofnunina á Patreksfirði. Tvær rústir og einn garður.[18.17,19]. Nokkuð af svæðinu er hulið þykkum og torfærum skógi og hugsanlega gætu minjar leynst þar. Einnig skal bent á að minjar eru oft ekki sýnilegar á yfirborði. Ef minjar koma fram við framkvæmdir skal umsvifalaust stöðva framkvæmdir og hafa samband við Minjastofnun Íslands. Einnig áréttar bæjarstjórn að vatnsmagn í Mikladalsá, Litladalsá, Stekkagili og í hlíðinni ofan framkvæmda-svæðisins verði ekki vanmetið og tryggt verði að ræsing vatns sé örugglega næg.
                Að öðru leyti samþykkir bæjarstjórn Vesturbyggðar veitingu framkvæmdaleyfisins.
                5.tölul.: Deiliskipulag Patrekshöfn.
                Athugasemdir Skipulagsstofnunar frá 10.1.2013 og Olíudreifingar í tölvupóstum frá 28.1.2013 voru teknar fyrir. Uppdráttum og greinargerð var breytt í samræmi við athugasemdir.
                Bæjarstjórn Vesturbyggðar felur byggingarfulltrúa að ganga frá tillögunni til afgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
                6.tölul.: Aðalskipulagsbreyting Krossholt/Langholt.
                Lögð fram að nýju aðalskipulagsbreyting Krossholt/Langholt á Barðaströnd. Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 19. september 2012 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir Vesturbyggð. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 var auglýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna Krossholt/Langholt, Barðaströnd. Skipulagsuppdrættir og greinargerð lágu frammi á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 75, Patreksfirði og hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, Reykjavík frá 21. nóvember 2012 til 9. janúar 2013. Ennfremur voru gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.vesturbyggd.is. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 9. janúar 2013. Umsagnir bárust frá Skógrækt ríkisins, Umhverfisstofnun, Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða, Fiskistofu, Húsafriðunarnefnd og Fornleifavernd ríkisins. Búið er að taka tillit til umsagna þessara stofnana.
                Einnig barst bréf, dags. 8. janúar 2013, frá Ólafi H. Magnússyni, fyrirsvarsmanni jarðarinnar Kross í Vesturbyggð, með athugasemdum við fyrirliggjandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018. Athugasemdir Ólafs eru í fimm töluliðum og eru svör við athugasemdum birt við sömu töluliði. Einnig lögð fram umsögn Björns Jóhannessonar hrl. f.h. Vesturbyggðar um
                athugsemdir Ólafs.
                1. Athugasemdir um að óheimilt sé að breyta skipulagi svæðis þar sem framkvæmt hefur verið í ósamræmi við skipulag fyrr en hin ólöglega framkvæmd hefur verið fjarlægð, jarðrask afmáð eða starfsemi hætt.
                Bókun bæjarstjórnar. Í 55. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki kemur m.a. fram að ef byggingarframkvæmd brýtur í bága við skipulag þá geti byggingarfulltrúi krafist þess að mannvirkið verði fjarlægt, jarðrask afmáð eða starfsemi hætt. Sinni eigandi ekki þeirri kröfu er heimilt að vinna slík verk á hans kostnað. Samsvarandi ákvæði er einnig að finna í 53. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem fram kemur að sé framkvæmt í andstöðu við gildandi skipulag getur skipulagsfulltrúi krafist þess að hin ólöglega framkvæmd sé fjarlægð, jarðrask afmáð eða starfsemi hætt. Mikilvægt er að hafa í huga að hér er um heimildarákvæði að ræða en ekki skylduákvæði eins og var í eldri skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.

                2. Athugasemdir sem lúta að skilgreiningu svæðis sem landbúnaðarsvæði.
                Bókun bæjarstjórnar. Tekið skal fram vegna þessarar athugasemdar að breyting var gerð á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 í október 2011, sbr. auglýsingu Skipulagsstofnunar, dags. 21. október 2011. Í breytingunni fólst að iðnaðarsvæði I2 varð að athafnasvæði A1 og verslunar- og þjónustusvæði V9. Einnig var gerð leiðrétting á kafla 2.3.5 í greinargerð aðalskipulags vegna tveggja lóða sem voru á iðnaðarsvæðinu I2. Þær voru 1 ha og 2 ha en urðu 1000m2 og 2000m2 með breytingunni.

                3. Skilyrði þess efnis að ekki verði notaður tilbúinn áburður til uppgræðslu á því svæði sem fyrirhugað er undir golfvöll.
                Bókun bæjarstjórnar. Ljóst er að rækta þarf upp stóran hluta þess svæðis sem fyrirhugað er undir golfvöll. Landið liggur m.a. austan árinnar Móru og æskilegt er að ekki verði þar notaður tilbúinn áburður til uppgræðslu til að fyrirbyggja hættuna af því að lífríki árinnar raskist með því að óæskileg efni berist í ánna. Ekki liggur fyrir hvort né að hversu miklu leyti tilbúinn áburður hefur hingað til verið notaður á þessu svæði en rétt þykir að gæta fyllstu varúðar í þessum efnum. Í umsögn Fiskistofu um breytingu á aðalskipulaginu er lögð rík áhersla á það að tryggt verði að skolp eða yfirborðsmengun berist ekki inn á vatnsvæði Móru og Hagavaðals og að framkvæmdir á svæðinu ógni ekki lífi ferskvatnsfiska á svæðinu.

                4. Ósamræmi milli tillagna að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi varðandi fjölda frístundalóða.
                Bókun bæjarstjórnar. Rétt er að ósamræmi er varðandi fjölda frístundalóða á svæðinu vestan Móru annars vegar í tillögu að breytingu á aðalskipulagi og hins vegar í fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu. Tillögunni verður breytt.

                5. Athugasemdir varðandi forsendur og markmið breytinga á aðalskipulagi.
                Bókun bæjarstjórnar. Forsendur breytinga á aðalskipulaginu eru fyrst og fremst að skilgreina núverandi landnotkun á svæðinu, og jafnframt að koma til móts við eftirspurn aðila sem vilja styrkja byggðina og þá þjónustu sem þar er fyrir og að auka atvinnumöguleika á svæðinu.

                Með vísan til fyrirliggjandi umsagnar Björns Jóhannessonar hrl. er lagt til að aðalskipulagstillagan verði samþykkt. Að öðru leyti vísar bæjarstjórn til umsagnar Björns Jóhannessonar hrl. og gerir umsögn hans að sinni.
                Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir tillöguna og felur byggingarfulltrúa að ganga frá tillögunni til afgreiðslu skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
                7.tölul.: Deiliskipulag Krossholt Langholt.
                Lagt fram að nýju deiliskipulag Krossholt/Langholt á Barðaströnd. Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 19. september 2012 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Krossholt/Langholt fyrir Vesturbyggð.
                Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 var auglýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi vegna Krossholt/Langholt, Barðaströnd. Skipulagsuppdrættir og greinargerð lágu frammi á skrifstofu Vesturbyggðar Aðalstræti 75, Patreksfirði og hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, Reykjavík frá 21. nóvember 2012 til 9. janúar 2013. Ennfremur voru gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.vesturbyggd.is. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 9. janúar 2013. Umsagnir bárust frá Skógrækt ríkisins, Umhverfisstofnun, Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða, Fiskistofu, Húsafriðunarnefnd, Vegagerðinni og Fornleifavernd ríkisins. Búið er að taka tillit til umsagna fyrrnefndra stofnana. Athugasemdir frá Unnari Þór Böðvarssyni bárust og er búið að verða við athugasemdum Unnars. Einnig barst bréf dags. 8. janúar 2013 frá Ólafi H. Magnússyni, fyrirsvarsmanni jarðarinnar Kross í Vesturbyggð, með athugasemdum við fyrirliggjandi tillögu að umræddu deiliskipulagi. Athugasemdir Ólafs eru í tíu töluliðum og eru svör við athugasemdum birt við sömu töluliði. Einnig lögð fram umsögn Björns Jóhannessonar hrl. f.h. Vesturbyggðar um athugsemdir Ólafs.

                1. Athugasemdir um að óheimilt sé að breyta skipulagi svæðis þar sem framkvæmt hefur verið í ósamræmi við skipulag fyrr en hin ólöglega framkvæmd hefur verið fjarlægð, jarðrask afmáð eða starfsemi hætt.
                Bókun bæjarstjórnar. Í 55. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki kemur m.a. fram að ef byggingarframkvæmd brýtur í bága við skipulag þá geti byggingarfulltrúi krafist þess að mannvirkið verði fjarlægt, jarðrask afmáð eða starfsemi hætt. Sinni eigandi ekki þeirri kröfu er heimilt að vinna slík verk á hans kostnað. Samsvarandi ákvæði er einnig að finna í 53. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem fram kemur að sé framkvæmt í andstöðu við gildandi skipulag getur skipulagsfulltrúi krafist þess að hin ólöglega framkvæmd sé fjarlægð, jarðrask afmáð eða starfsemi hætt. Mikilvægt er að hafa í huga að hér er um heimildarákvæði að ræða en ekki skylduákvæði eins og var í eldri skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.

                2. Athugasemdir sem lúta að skilgreiningu svæðis sem landbúnaðarsvæðis.
                Bókun bæjarstjórnar. Tekið skal fram vegna þessarar athugasemdar að breyting var gerð á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 í október 2011, sbr. auglýsingu Skipulagsstofnunar, dags. 21. október 2011. Í breytingunni fólst að iðnaðarsvæði I2 varð að athafnasvæði A1 og verslunar- og þjónustusvæði V9. Einnig var gerð leiðrétting á kafla 2.3.5 í greinargerð aðalskipulags vegna tveggja lóða sem voru á iðnaðarsvæðinu I2. Þær voru 1 ha og 2 ha en urðu 1000 m2 og 2000 m2 með breytingunni.

                3. Mótmæli varðandi notkun á heitu vatni til bygginga á nýju byggingarsvæði vestan Móru.
                Bókun bæjarstjórnar. Í grein 2.5. kemur fram að hitaveita er á staðnum og að hún sé í eigu Vesturbyggðar. Vesturbyggð mun virða að öllu leyti þá samninga sem í gildi hafa verið varðandi nýtingu á heitu vatni á svæðinu. Nýting á heitu vatni til nýrra bygginga á svæðinu mun því verða háð því að samkomulag náist við eigendur um nýtingu vatnsins. Í ljósi framkominna athugasemda þykir rétt að fella út fyrrgreint ákvæði í greinargerð með deiliskipulagstillögunni um að nýtt byggingarsvæði vestan Móru muni tengjast núverandi kerfi.

                4. Mótmæli varðandi skipulag á fjórum nýjum lóðum norðan við núverandi íbúðarbyggð.
                Bókun bæjarstjórnar. Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir fjórum nýjum lóðum norðan við núverandi íbúðarbyggð á Krossholtum. Þessar lóðir eru á stórum hluta utan þess lands sem er í eigu Vesturbyggðar. Ástæða þess að gert er ráð fyrir þessum nýju lóðum í deiliskipulagstillögunni er að þetta eru mjög góðar byggingarlóðir og auðvelt að tengja þær við núverandi gatna- og veitukerfi á svæðinu. Skipulags- og byggingarnefnd lagði til að umræddar lóðir yrðu skilgreindar sem mögulegar íbúðarlóðir sé horft til framtíðar og áleit nefndin það landeigendum jarðarinnar Kross í hag. Nýting þessa svæðis sem byggingalóða er háð samþykki landeigenda, en sé ekki vilji til þess að hálfu landeigenda að bæta við fyrrgreindum lóðum, er auðvelt að fella þær út úr deiliskipulagstillögunni. Í ljósi framkominna athugasemda landeigenda þykir rétt að gera þá breytingu á deiliskipulagstillögunni að ekki verði gert ráð fyrir þessum fjórum nýju byggingarlóðum norðan við núverandi íbúðabyggð á Krossholtum.

                5. Athugasemdir varðandi ákvæði greinar 4.2. um að samþykktar byggingarnefndarteikningar fyrir lóð undir landbúnaðartengda þjónustu gildi sem skipulagsskilmálar fyrir fyrrgreinda lóð.
                Bókun bæjarstjórnar. Í greinargerð með deiliskipulagstillögunni kemur fram að um bygginguna gilda samþykktar byggingarnefndarteikningar sem skipulagsskilmálar fyrir fyrrgreinda lóð, sem ætluð er undir landbúnaðartengda ferðaþjónustu. Núverandi bygging er 221,1m2 og mænishæð byggingarinnar miðað við gólfkóta 4,21m. Heimilt er að stækka bygginguna til norðurs og skal útlit viðbyggingar vera í samræmi við núverandi byggingu hvað varðar útlit og efnisval. Niðurstaða Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 2. september 2011 í málinu nr. 43/2011 byggðist eingöngu á því að fyrrgreind bygging hafi ekki fallið að skilgreindri landnotkun gildandi aðalskipulags og því hafi ekki verið fullnægt skilyrði fyrir veitingu byggingarleyfis, sem sett er í 1. tl. 1. mgr. 13. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, um að mannvirkið og notkun þess skuli samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.

                6. Athugasemdir sem lúta að því að skilgreina þurfi betur nýtingu lóðar, einkum útisvæðis svo og þá starfsemi sem á að vera í þeirri byggingu sem hefur verið reist af Móru ehf. og ætluð er fyrir landbúnaðartengda ferðaþjónustu. Vísað er í þessu sambandi til kafla 4.5.2 í skipulagsreglugerð nr. 400/1998.
                Bókun bæjarstjórnar. Í greinargerð með deiliskipulagstillögunni kemur fram að innan lóðar fyrir ferðaþjónustu séu gerðar kröfur um að allur frágangur og umgengni sé til fyrirmyndar. Sex bílastæði skulu fylgja lóðinni þar af eitt fyrir hreyfihamlaða. Um lóðina gildir samþykkt um búfjárhald í Vesturbyggð frá 24. apríl 2011. Varðandi aðra nýtingu á útisvæði vestan Móru skal tekið fram að gert er ráð fyrir gönguleiðum meðfram Móru, en ekki er gert ráð fyrir öðrum sérstökum útisvæðum.

                7. Athugasemdir varðandi fjarlægð fyrirhugaðrar bygginga á verslunar- og þjónustusvæði frá stofnvegi.
                Bókun bæjarstjórnar. Í lok janúar s.l. tók gildi ný skipulagsreglugerð nr. 90/2013, en þar segir m.a. ,,Utan þéttbýlis skal ekki staðsetja íbúðir eða frístundahús nær stofn- og tengivegum en 100 m og ekki nær öðrum þjóðvegum eða almennum vegum en 50 m eins og þeir eru skilgreindir í aðalskipulagi. Aðrar byggingar skal ekki staðsetja nær stofn- og tengivegum og öðrum þjóðvegum og almennum vegum en 50 m eins og þeir eru skilgreindir í aðalskipulagi. Heimilt er að víkja frá þessum ákvæðum þegar um er að ræða verslunar- og þjónustubyggingar en gæta skal ákvæða vegalaga um veghelgunarsvæði.

                8. Athugasemdir sem lúta að því að sú starfsemi og byggð sem fyrirhuguð er vestan árinnar Móru valdi ekki truflun fyrir veiðimenn og að þeir geti athafnað sig án vandkvæða. Þá er ítrekað að allar framkvæmdir innan 100 metra frá ánni séu háðar samþykki Fiskistofu.
                Bókun bæjarstjórnar. Ekkert i fyrirhugaðri deiliskipulagstillögu gefur tilefni til að ætla að fyrirhuguð starfsemi eða byggð vestan árinnar Móru komi til með að valda truflun fyrir veiðimenn eða að þeir geti ekki athafnað sig með eðlilegum hætti við veiðar í ánni. Leitað hefur verið umsagnar Fiskistofu um deiliskipulagstillöguna. Í umsögn Fiskistofu kemur fram að stofnunin hafi ekki athugasemdir við tillöguna.

                9. Athugasemdir um að óljóst sé með staðsetningu á rotþróm.
                Bókun bæjarstjórnar. Í greinargerð með tillögu að deiliskipulagi er m.a. fjallað um veitukerfi. Í grein 2.5. er m.a. fjallað um fráveitu austan Móru en þar segir: ,,Frárennslislagnir verða í götustæðum. Stærð og umfang hreinsimannvirkis er háð samþykkis Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða.” Varðandi fráveitu vestan Móru segir í greinargerðinni ”Staðsetning á rotþróm og frárennslislögnum fyrir hvern bústað er ekki sýnt á skipulagsuppdrætti en verða sýndar á byggingarnefndarteikningum.”

                10. Athugasemdir varðandi fyrirkomulag sorphirðu fyrir lóðarhafa vestan Móru.
                Bókun bæjarstjórnar. Gerð er grein fyrir fyrirkomulagi sorphirðu í grein 2.5 í greinargerð með tillögu að deiliskipulagi. Þar kemur fram að vestan Móru skulu lóðarhafar sjá um að koma sorpi á gámastæði á vegum Vesturbyggðar sem verði staðsett við aðkomuveg inn á svæðið.

                Með vísan til fyrirliggjandi umsagnar Björns Jóhannessonar hrl. er lagt til að deiliskipulagið verði samþykkt.
                Að öðru leyti vísar bæjarstjórn til umsagnar Björns Jóhannessonar hrl. og gerir umsögn hans að sinni.
                Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir tillöguna og felur byggingarfulltrúa að ganga frá tillögunni til afgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
                Fundargerðin staðfest samhljóða.

                  Málsnúmer 1301005F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  8. Fræðslunefnd - 92

                  Fundargerðin er í 6. töluliðum.
                  Til máls tóku: Forseti, GE og ÁS.
                  Fundargerðin staðfest samhljóða.

                    Málsnúmer 1302007F

                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                    Almenn erindi

                    9. Siðareglur bæjarstjórnar Vesturbyggðar

                    Lagðar fram ”Siðareglur kjörinna fulltrúa í Vesturbyggð“.
                    Til máls tóku: AJ og forseti.
                    Bæjarstjórn vísar siðareglum til seinni umræðu í bæjarstjórn.

                      Málsnúmer 1301022 4

                      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                      10. Athugasemd við vegna samþykktar um hundahald.

                      Lögð fram breytingartillaga á ”Samþykkt um hundahald í Vesturbyggð“.
                      Til máls tóku: Forseti, AJ, ÁSG og ÁS.
                      Bæjarstjórn vísar breytingartillögu um ”Samþykkt um hundahald í Vesturbyggð“ til bæjarráðs.

                        Málsnúmer 1210077 6

                        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                        11. Búfjársamþykkt, athugasemdir

                        Lögð fram breytingartillaga á Búfjársamþykkt í Vesturbyggð.
                        Bæjarstjórn vísar breytingartillögu um Búfjársamþykkt í Vesturbyggð til seinni umræðu í bæjarstjórn.

                          Málsnúmer 1211097 12

                          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                          Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00