Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #287

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 26. ágúst 2015 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði
    • Þórir Sveinsson skrifstofustjóri

    Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 287. fundar miðvikudaginn 26. ágúst 2015 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði. Forseti bæjarstjórnar Friðbjörg Matthíasdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
    Forseti óskaði eftir afb

    Fundargerðir til kynningar

    1. Bæjarstjórn - 286

    Fundargerðin lögð fram til kynningar.

      Málsnúmer 1506004F

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Bæjarráð - 737

      Fundargerðin er í 9. töluliðum.
      Til máls tók: ÁS.
      Fundargerðin lögð fram til kynningar.

        Málsnúmer 1506009F

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Bæjarráð - 738

        Fundargerðin er í 9. töluliðum.
        Fundargerðin lögð fram til kynningar.

          Málsnúmer 1507003F

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Bæjarráð - 739

          Fundargerðin er í 9. töluliðum.
          Fundargerðin lögð fram til kynningar.

            Málsnúmer 1507007F

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            Fundargerðir til staðfestingar

            5. Bæjarráð - 740

            Fundargerðin er í 12. töluliðum.
            Til máls tóku: Forseti, bæjarstjóri, ÁS, HT, HS og MJ.
            10.tölul. 1507054 - Umsóknir um foreldragreiðslur 2015.
            Lögð fram breytingartillaga bæjarstjórnar við ”Reglur Vesturbyggðar um foreldragreiðslur vegna gæslu barns hjá öðrum en dagforeldrum“. Breytingin fellst í því að hægt verði að sækja um foreldragreiðslur þegar barn einstæðra foreldra hefur náð sex mánaða aldri og barn foreldra í hjúskap eða í sambúð hefur náð níu mánaða aldri. Forsendur eru að sótt hafi verið um leikskólavist fyrir viðkomandi barn á leikskóla í sveitarfélaginu og að forráðamenn barnsins eigi lögheimili og hafi aðsetur í sveitarfélaginu. Foreldragreiðslur falla niður þegar barn nær 14 mánaða aldri eða hefur dvöl á leikskóla í sveitarfélaginu.
            Breytingartillagan samþykkt samhljóða.

            Fundargerðin samþykkt samhljóða.

              Málsnúmer 1508002F

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              6. Skipulags og umhverfisráð - 11

              Fundargerðin er í 6. töluliðum.
              Til máls tók: MJ.
              Fundargerðin samþykkt samhljóða.

                Málsnúmer 1507001F

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                7. Skipulags og umhverfisráð - 12

                Fundargerðin er í 2. töluliðum.
                Til máls tóku: MJ, HT, bæjarstjóri og forseti.
                Fundargerðin samþykkt samhljóða.

                  Málsnúmer 1507008F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  8. Skipulags og umhverfisráð - 13

                  Fundargerðin er í 11. töluliðum.
                  Til máls tóku: MJ, bæjarstjóri, ÁS, GBS, forseti og HT.
                  5. tölul. 1508008 - Umsókn um stofnun lóðar úr landi Grænhóls, Grjóthólar.
                  Bæjarstjórn samþykkir samhljóða stofnun lóðarinnar.
                  6. tölul. 1508009 - Umsókn um stofnun lóðar úr landi Haga, Tungumúli.
                  Bæjarstjórn samþykkir samhljóða stofnun lóðarinnar.
                  8. tölul. 1506002 - Deiliskipulag við Brjánslækjarhöfn.
                  Tekin fyrir lýsing að deiliskipulagtillögum við Brjánslæk, dags. 20. ágúst 2015. Um er að ræða tvær deiliskipulagstillögur við Brjánslæk sem settar eru fram í einni lýsingu, unnin af Gingi teiknistofa ehf. og egg arkitektar ehf. Samkvæmt lýsingunni eru þetta tvær sjálfstæðar deiliskipulagstillögur annars vegar við Brjánslækjarhöfn og Flókatóftir og hins vegar við Prestsetrið.
                  Lýsing á svæðunum kemur fram í skipulagslýsingunni og er á eftirfarandi hátt:
                  3.1 DEILISKIPULAG - VIÐ BRJÁNSLÆKJARHÖFN OG VIÐ FLÓKATÓFTIR.
                  Landið innan afmörkunarlínu skipulagssvæða er í eigu ríkissjóðs. Svæðinu verður lýst hér í tvennu lagi. Svæðið í kringum höfnina (norðurhluti) er u.þ.b. 3,0 ha. að stærð og svæðið í kringum Flókatóftirnar (suðurhluti) er u.þ.b. 3,6 ha. að stærð. Heildarstærð skipulagssvæðisins alls er því u.þ.b. 6,6 ha.
                  Við Brjánslækjarhöfn er gerð tillaga að nýjum varnargarði u.þ.b. 123 m að lengd og breikkun á núverandi varnargarði. Núverandi flotbryggja fyrir smábáta verður færð frá suðri til norðurs í skjóli við nýjan varnargarð. Gamla ferjubryggjan verður fjarlægð. Í tengslum við ferðaþjónustu og ferjusiglingar er gert ráð fyrir uppbyggingarmöguleika vestan og ofan við núverandi fiskvinnsluhús þar sem sýndur er byggingareitur ásamt bílastæðasvæði. Í framtíðinni getur þá núverandi þjónustu- og afgreiðsluhús fyrir ferjuna fluttst niður fyrir veg. Tillaga er gerð að landfyllingu austan við núverandi fiskvinnsluhús með möguleika á viðbyggingu og fyrir stærra athafnasvæði. Rör eða háfur verður reistur fyrir hausaþurrkunarstöðina og skal hæð hans vera ákveðin í samráði við Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða.
                  Við Flókatóftir er gerð tillaga um að þau hús sem nú standa á svæðinu verði fjarlægð, þ.e. sumarhúsið og skreiðarhjallurinn. Í stað þeirra verður gerð tillaga að byggingareit fyrir lítið þjónustuhús, þar sem m.a. salernisaðstöðu og áhaldageymslu verður komið fyrir. Bílastæði verða staðsett næst þjónustuhúsi.

                  3.2 DEILISKIPULAG BRJÁNSLÆKUR 1 - VIÐ PRESTSETRIÐ.
                  Svæði það sem er innan umrædds deiliskipulagsvæðis er í eigu ríkissjóðs. Stærð skipulagssvæðis er u.þ.b. 1,5 ha. þar sem aðaldeiliskipulagssvæðið liggur, en heildarsvæðið þar sem göngustígarnir liggja eru alls 6,5 ha.

                  Gerð er tillaga að bæta við nýjum notkunarflokki: Frístundabyggð (F6) - sjá nánar í kafla 2.1.4 á bls. 5, þar sem gerð er tillaga að breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018. Deiliskipulagstillagan sýnir nýja lóð vestan við prestsetrið með byggingareit fyrir smáhýsi / gistihús fyrir ferðamenn ásamt þjónustuhúsi. Vinna er í gangi við húsakönnun og eru kirkjan og prestbústaður hluti af þeirri vinnu. Prestbústaðnum verður breytt í sýningarrými og kaffihús. Bílastæði verða gerð í tengslum við sýninguna, kaffihús og smáhýsin. Byggðir verða upp göngustígar sem tengja svæðið við Flókatóftir og höfnina.

                  Bæjarstjórn samþykkir skipulagslýsinguna með fyrirvara um samþykki hafnar- stjórnar og felur skipulagsfulltrúa að senda hana til umsagnaraðila og kynna hana skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem deiliskipulagið kallar einnig á breytingu á aðalskipulagi þá er skipulagsfulltrúa falið að hefja breytingu á aðalskipulagi.
                  9. tölul. 1508039 - Skipulagsmál - lokun Bjarkargötu.
                  Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulags- og umhverfisráðs að loka ekki Bjarkargötu.
                  10. tölul. 1309018 - Hættumatslínur á Bíldudal.
                  Bæjarstjórn leggur áherslu á að hraða vinnu við gerð deiliskipulags fyrirhugaðs iðnaðarsvæðis á Bíldudal vegna aukinnar eftirspurnar eftir lóðum.

                  Fundargerðin samþykkt samhljóða.

                    Málsnúmer 1508001F

                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                    Almenn erindi

                    9. Gjaldskrár 2015

                    Lögð fram gjaldskrá slökkviliðs Vesturbyggðar.
                    Til máls tók: Forseti.
                    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá fyrir slökkvilið Vesturbyggðar.

                      Málsnúmer 1410101 8

                      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                      10. Búfjársamþykkt Vesturbyggðar

                      Lögð fram ”Samþykkt um búfjárhald í Vesturbyggð“.
                      Til máls tóku: ÁS, HS og forseti.
                      Bæjarstjórn samþykkir 6:1 ”Samþykkt um búfjárhald í Vesturbyggð“. ÁS lét bóka að hann hafi greitt atkvæði á móti.

                        Málsnúmer 1211097 12

                        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                        Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00