Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #388

Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 15. nóvember 2023 og hófst hann kl. 17:00

Nefndarmenn
  • Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
  • Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) varamaður
  • Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) aðalmaður
  • Guðrún Eggertsdóttir (GE) aðalmaður
  • Tryggvi Baldur Bjarnason (TBB) varamaður
  • Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir (SSS) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir (ÞSS) bæjarstjóri

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Hljóðupptaka
00:00 / 00:00

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 388. fundar miðvikudaginn 15. nóvember 2023 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.

Friðbjörn Steinar Ottósson varaforseti setti fundinn í fjarveru forseta og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.

Almenn erindi

1. Skýrsla bæjarstjóra

Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.

Til máls tóku: Varaforseti og bæjarstjóri.

    Málsnúmer 2209029 15

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    2. Fjárhagsáætlun 2024 - 2027

    Lögð er fram, til fyrri umræðu, tillaga að fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2024, auk 4ra ára áætlun fyrir árin 2024-2027.

    Til máls tók: Varaforseti

    Bæjarstjórn vísar frumvarpi að fjárhagsáætlun 2024 og 4ra ára áætlun 2024-2027 til seinni umræðu sem verður miðvikudaginn 13. desember nk. kl. 17:00.

    Samþykkt samhljóða

      Málsnúmer 2306021 11

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      3. Álagningarhlutfall útsvars 2024

      Lögð fyrir tillaga bæjarráðs frá 971. fundi ráðsins þar sem lagt er til að álagningarhlutfall útsvars haldist óbreytt frá fyrra ári í 14,74%

      Til máls tók: Varaforseti

      Bæjarstjórn samþykkir að tillögu bæjarráðs að útsvarshlutfall fyrir 2024 haldist óbreytt frá fyrra ári í 14,74%

      Samþykkt samhljóða

        Málsnúmer 2310049 2

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        4. Fjárhagsáætlun 2024 - gjaldskrár

        Lagðar fyrir gjaldskrár Vesturbyggðar fyrir árið 2024.

        Gjaldastuðlar á árinu 2024 eru eftirfarandi:

        Fasteignaskattur A-flokkur 0,55%
        Fasteignaskattur B-flokkur 1,32%
        Fasteignaskattur C-flokkur 1,65%
        Vatnsgjald íbúðarhúsnæði 0,28%
        Vatnsgjald annað húsnæði 0,50%
        Fráveitugjald íbúðarhúsnæði 0,28%
        Fráveitugjald annað húsnæði 0,50%
        Lóðaleiga íbúðarhúsnæði 1,00%
        Lóðaleiga annað húsnæði 3,75%

        Til máls tók: Varaforseti

        Bæjarstjórn vísar gjaldskrám 2024 til seinni umræðu sem verður miðvikudaginn 13. desember nk. kl. 17:00.

        Samþykkt samhljóða.

          Málsnúmer 2311039 4

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          5. Formlegar sameiningarviðræður milli Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar

          Lögð er fram til kynningar fundargerð 13. fundar samstarfsnefndar vegna sameiningaviðræðna Tálknafjarðahrepps og Vesturbyggðar, sem haldinn var 30. október 2023. Í fundargerðinni er m.a. farið yfir niðurstöður íbúakosninga um sameiningu sveitarfélaganna. Kjörsókn í Vesturbyggð var 54,98% og sögðu 82,35% já við sameiningunni. Kjörsókn í Tálknafjarðarhrepp var 72,14% og sögðu 95,86% já við sameiningunni. Sameiningin var því samþykkt í báðum sveitarfélögum.

          Á framangreindum fundi samstarfsnefndar beindi nefndin því til sveitarstjórna sveitarfélaganna að kjósa þrjá fulltrúa í undirbúningsstjórn en verkefni undirbúningsstjórnar er að undirbúa formlega sameiningu sveitarfélaganna, þ.á m. fyrirkomulag kosninga til sveitarstjórnar og gildistöku sameiningar. Til að tryggja samfellu í verkefninu leggur samstarfsnefndin til að sömu fulltrúar taki sæti í undirbúningsnefnd og voru í samstarfsnefnd.

          Til máls tók: Varaforseti

          Bæjarstjórn tilnefnir Þórkötlu Soffíu Ólafsdóttur, Jón Árnason og Guðrúnu Eggertsdóttur sem fulltrúa Vesturbyggðar í stjórn til undirbúnings nýs sveitarfélags

          Samþykkt samhljóða.

            Málsnúmer 2302039 9

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            6. Dufansdalur, Borun fyrir köldu vatni, umsókn um framkvæmdaleyfi

            Lögð fram umsókn Árna Kópssonar dagsett 26.10.2023 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir borun eftir köldu vatni í Dufansdal.

            á 111, fundi skipulags- og umhverfisráðs lagði ráðið til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að samþykkt að verði að veita framkvæmdaleyfi til borunar eftir köldu vatni sbr. umsókn. Skipulags- og umhverfisráð mat sem svo að framkvæmdin væri þess eðlis að heimilt sé að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Þá verði skipulagfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfið.

            Til máls tók: Varaforseti

            Bæjarstjórn samþykkir að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

              Málsnúmer 2310058 2

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              7. Sælulundur og Sjónarhóll - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir vegtengingu.

              Lögð fram umsókn Gunnars Ingva Bjarnasonar dagsett 24.10.2023 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuvegi að frístundalóðunum að Sælulundi og Sjónarhól á Barðaströnd. Með umókninni fylgja samþykki Vegagerðarinnar sem og landeiganda Haga fyrir tengingunni.

              Á 111. fundi skipulags- og umhverfisráðs lagði ráðið til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að samþykkt verði að veita framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuveginum sbr. umsókn. Skipulags- og umhverfisráð mat sem svo að framkvæmdin væri þess eðlis að heimilt væri að falla frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda enda liggi fyrir samþykki landeigenda og Vegagerðarinnar. Þá verði skipulagfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfið.

              Til máls tók: Varaforseti

              Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuveginum sbr. umsókn. Þá verði skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfið.

              Samþykkt samhljóða

                Málsnúmer 2310052 2

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                8. Deiliskipulag Langholts og Krossholts - breyting veglagning

                Tekið fyrir eftir grenndarkynningu breyting á deiliskipulagi Langholt-Krossholt. Breytingin var grenndarkynnt frá 18. septemeber til 16. október 2023. Fyrir liggur umsögn Minjastofnunar sem gerði enga athugasemd sem og athugasemd frá Heimi Ingvarssyni og Valdísi Ragnarsdóttur sem gerðu athugasemd við breytta veglagningu.

                Í athugasemd Heimis Ingvarssonar og Valdísar M. Ragnarsdóttur var lýst yfir áhyggjum af staðsetningu aðkomuvegar að sumarhúsa- og smábýlalóðum á Langholti, áhyggjur voru af ónæði, ryki,og drullumengun alveg við húsið. Ráðið leggur til að aðkomuvegur verði færður við SV horn lóðarinnar eins og lóðamerki sveitarfélagsins leyfa og telur að þannig verði komið til móts við athugasemdina eins og kostur er.

                Á 111.fundi Skipulags- og umhverfisráðs lagði ráðið til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að skipulagsfulltrúa verði falið að svara þeim sem gerðu athugasemdir og að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

                Til máls tók: Varaforseti

                Bæjarstjórn samþykkir að skipulagsfulltrúa verði falið að svara þeim sem gerðu athugasemdir og að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

                Samþykkt samhljóða

                  Málsnúmer 2308050 4

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  9. Deiliskipulag Bíldudalshöfn - Breyting, sameining lóða og byggingarreita.

                  Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bíldudalshafnar. Breytingin felst í því að sameinaðar eru lóðir Strandgötu 14a, 14c og 14d í eina lóð undir heitinu Strandgata 14a. Strandgata 10-12 er minnkuð og hýsir nú einungis vatnshreinsistöð og geyma tengda meltuvinnslu. Í skipulaginu er lagt til að lóð sem áður var Strandgata 14e verði að Strandgötu 14c.

                  Skipulags- og umhverfisráð lagði til á 111. fundi sínum þann 8. nóvember að húsnúmerum verði breytt samkvæmt eftirfarandi í skipulaginu:
                  Núverandi Strandgata 10-12 verði Strandgata 8.
                  Strandgata 14A verðir Strandgata 10.
                  Strandgata 14B verði Strandgata 12.
                  Strandgata 14C verði Hafnarteigur 4B.

                  Á 54. fundi Hafna- og atvinnumálaráðs lagði ráðið til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að tillagan verði afgreidd skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.v. ofangreindar breytingar.

                  Til máls tók: Varaforseti

                  Bæjarstjórn samþykkir að tillagan verði afgreidd skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim breytingum sem hafna- og atvinnumálaráð lagði til.

                  Samþykkt samhljóða

                    Málsnúmer 2309030 7

                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                    Fundargerð

                    10. Bæjarráð - 971

                    Lögð fram til kynningar fundargerð 971. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 25. október 2023. Fundargerð er í 25 liðum.

                    Til máls tóku: Varaforseti og bæjarstjóri

                    Málsnúmer 2310007F

                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                    11. Bæjarráð - 972

                    Lögð fram til kynningar fundargerð 972. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 13. nóvember 2023. Fundargerð er í 26 liðum.

                    Til máls tóku: Varaforseti og ÞSÓ

                    Málsnúmer 2311001F

                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                    12. Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 68

                    Lögð fram til kynningar fundargerð 68. fundar samráðsnefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps, fundurinn var haldinn 17. október 2023. Fundargerð er í 7 liðum.

                    Til máls tók: Varaforseti

                    Málsnúmer 2310006F

                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                    13. Skipulags og umhverfisráð - 111


                    14. Hafna- og atvinnumálaráð - 54


                    Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:39