Heilsa & frístundir
Náttúran býður upp á fjölda möguleika til heilsubótar en í sveitarfélaginu er lögð áhersla á heilsueflandi samfélag. Sveitarfélagið og félagasamtök eiga og reka sundlaugar, þreksali, golfvelli og félagsmiðstöðvar svo öll ættu að finna sér eitthvað við hæfi. Yfir vetrartímann er oft troðin gönguskíðabraut.