Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #321

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 30. apríl 2018 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði
    • Þórir Sveinsson skrifstofustjóri

    Fundargerðir til staðfestingar

    1. Bæjarstjórn - 320

    Fundargerðin lögð fram til kynningar.

      Málsnúmer 1804003F

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      Fundargerð

      2. Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 52

      Fundargerðin er í 4. töluliðum.
      Til máls tóku: Forseti, ÁS og HT.
      1.tölul.: Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti. Bæjarstjórn vísar tillögu samráðsnefndar um 6 millj.kr. viðhaldsverkefni til viðauka við fjárhagsáætlun 2018. Hlutur Vesturbyggðar í verkefninu er 4,5 millj.kr.
      2.tölul. Íþróttafulltrúi. Bæjarstjórn staðfesti tillögu samráðsnefndar að íþróttafulltrúi verði ráðinn til sveitarfélaganna.
      Fundargerðin lögð fram til kynningar.

        Málsnúmer 1804007F

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Bæjarráð - 833

        Fundargerðin er í 14. töluliðum.
        Til máls tóku: Bæjarstjóri, HT, NÁJ, forseti og Gerður B. Sveinsdóttir verkefnastjóri samfélagsuppbyggingar.
        2.tölul. Fjárhagsáætlun 2018 - viðaukar. Bæjarstjórn samþykkir viðauka 1, 2 og 3 við fjárhagsáætlun 2018.
        Fundargerðin samþykkt samhljóða.

          Málsnúmer 1804005F

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Fræðslu og æskulýðsráð - 41

          Fundargerðin er í 5. töluliðum.
          Til máls tóku: ÁS, GBS, HT og forseti.
          2.tölul. Skólaferðalög í grunnskólum Vesturbyggðar. Bæjarstjórn vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2019.
          Fundargerðin samþykkt samhljóða.

            Málsnúmer 1804006F

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Skipulags og umhverfisráð - 46

            Fundargerðin er í 9. töluliðum.
            NÁJ lét bóka að hún hafi ekki tekið þátt í afgreiðslu 3.tölul. dagskrár vegna tengsla við aðila máls.
            Til máls tóku: MJ, GÆÁ og GBS.
            4.tölul. Deiliskipulag hafnarsvæðis á Bíldudal. Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með fyrirvara um lagfæringar til samræmis við athugasemdir. Skiplagsfulltrúa falið að vinna áfram að málinu skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
            5.tölul. Deiliskipulag íbúðabyggðar og ofanflóðavarnargarða, Urðir, Mýrar. Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til forkynningar í samræmi við 4.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og standi forkynningin a.m.k. í eina viku sem verði með áberandi hætti ásamt því að kynna umsagnaraðilum tillöguna.
            9.tölul. Flókalundur - deiliskipulag. Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagið fyrir Flókalund ásamt umhverfiskýrslu. Tillagan verði auglýst samkv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og umhverfiskýrslan auglýst samkv. 7.gr. laga um umhverfismat áætlana. Tillagan og umhverfisskýrslan verði sendar til umsagnaraðila.

            Fundargerðin samþykkt samhljóða.

              Málsnúmer 1803010F

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              Almenn erindi

              6. Ársreikningur 2017.

              Lagður fram til seinni umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2017 ásamt sundurliðunarbók.
              Til máls tók: Forseti.
              Bæjarstjórn lagði fram bókun: „Niðurstaða ársreiknings Vesturbyggðar fyrir árið 2017 er betri en fjárhagsáætlun ársins 2017 með viðaukum gerði ráð fyrir, og skilar samstæða Vesturbyggðar A og B-hluti, 35,7 millj.kr. jákvæðum rekstrarafgangi. Skýrist það einkum af hærri framlögum úr Jöfnunarsjóði, auknum þjónustutekjum og lægri fjármagnskostnaði. Framkvæmdir voru miklar í sveitarfélaginu á liðnu ári. Tekjur sveitarfélagsins og launakostnaður eru hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2017, sem skýrist af einskiptis 40 millj.kr. greiðslu til Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga. Skuldahlutfall í árslok 2017 var 113% og lækkar á milli ára en í árslok 2016 var það 119%. Í árslok 2015 var skuldahlutfallið 115% og 110% í árslok 2014.“

              Helstu lykiltölur úr ársreikningi samstæðu Vesturbyggðar:

              -Niðurstaða rekstrar er jákvæð um 35,7 millj.kr. og skuldahlutfall nemur 113% í árslok 2017. Þetta hlutfall var 119% í árslok 2016.
              -Bókfærðar heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins eru 123 millj.kr. hærri í árslok 2017 en í árslok 2016.
              -Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2017 námu rekstrartekjur A og B-hluta 1.494 millj. kr. samanborið við 1.314 millj. kr. á árinu 2016. Aukning tekna milli ára nemur því 180 millj. kr.
              -Rekstrargjöld A og B-hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld, annar rekstrarkostnaður og afskriftir námu á árinu 2017 1.400 millj. kr. en voru 1.159 millj. kr. á árinu 2016. Hækkun frá fyrra ári 241 millj. kr.
              -Í ársreikningi kemur fram að rekstrarniðurstaða A-hluta er neikvæð um 15 millj.kr. á árinu 2017 en var jákvæð um 34 millj. kr. á árinu 2016. Rekstrarniðurstaða A-hluta hefði verið jákvæð um 25 millj.kr. hefði ekki komið til einskiptis greiðsla til Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga.
              -Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir og Fasteignir Vesturbyggðar ehf. teljast til B-hluta sveitarfélagsins. Rekstrarniðurstaða allra B-hluta stofnana er jákvæð og í heild sinni var hún jákvæð um 51 millj. kr.
              -Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B-hluta árið 2017 námu 58 millj. kr. en fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 55 millj. kr. árið 2016.
              -Samkvæmt sjóðstreymisyfirliti nam veltufé frá rekstri A og B-hluta 122 millj. kr. á árinu 2017 samanborið við 169 millj. kr. á árinu 2016. Að teknu tilliti til breytinga á rekstrartengdum eignum og skuldum nam handbært fé frá rekstri A og B-hluta 146 millj. kr. á árinu 2017 samanborið við handbært fé frá rekstri 164 millj. kr. á árinu 2016.
              -Neikvæðar fjárfestingarhreyfingar (fjárfestingar umfram söluverð seldra eigna) á árinu 2017 í A og B-hluta námu 254 millj. kr. samanborið við 244 millj. kr. neikvæðar fjárfestingarhreyfingar á árinu 2016.
              -Lántökur umfram afborganir langtímalána námu 81 millj. kr. samanborið við afborganir umfram lántökur 116 millj. kr. árið áður.
              -Handbært fé lækkaði um 28 millj. kr. á milli ára og nam það 52 millj. kr. í árslok 2017.“
              Bæjarstjórn samþykkir samhljóða ársreikning bæjarsjóðs Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2017.

                Málsnúmer 1804003 4

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                7. Samgöngumál á sunnanverðum Vestfjörðum.

                Bæjarstjórn Vesturbyggðar skorar á Alþingi að afgreiða framkvæmdaleyfi á Vestfjarðavegi 60 með því að samþykkja lagafrumvarp sem liggur fyrir Alþingi, þingskjal nr. 667, 461. mál sem er lagt fram undir forystu Haraldar Benediktssonar 1. þingmanns NV kjördæmis.

                Eins og staðan er í dag þá mun aldrei nást fullkomin samstaða um legu þjóðvegar við Breiðafjörð og stjórnsýslan mun ekki finna aðra lausn á vegagerð í Gufudalssveit, það er löngu orðið ljóst. Allar aðrar tillögur um vegstæði munu verða kærðar og síðan stöðvaðar af ríkisstofnunum. Reynslan sýnir það. Lagasetning er eina lausnin á þessu ótrúlega máli sem hefur verið á flakki milli stofnana í yfir áratug síðan ákvörðun Jónínu Bjartmarz þáverandi umhverfisráðherra var kærð til héraðsdóms og svo Hæstaréttar þar sem dómur féll gegn samfélaginu á Vestfjörðum.

                Vestfirðingar hafa beðið allt of lengi eftir sjálfsögðum vegabótum. Það er sama hvar borið er niður; á sunnanverðum Vestfjörðum, norðanverðum Vestfjörðum og á Ströndum.

                En nú er ekki eftir neinu að bíða. Það þarf aðeins að taka ákvörðun um að standa með fólkinu og umhverfinu á Vestfjörðum.

                  Málsnúmer 1604038 3

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:50