Hoppa yfir valmynd
  • Þjónusta
  • Mannlíf
  • Stjórnsýsla
  • Íbúagátt
    • English
    • Polski
  • Leit
  • Íbúagátt
  • English
  • Polski
  1. Stjórnsýsla
  2. Bæjarstjórn & nefndir
  3. Fundargerðir
  4. Bæjarstjórn

Bæjarstjórn #351

Fundur haldinn í fjarfundi, 16. september 2020 og hófst hann kl. 17:00

Nefndarmenn
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
  • Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) formaður
  • Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
  • Magnús Jónsson (MJ) aðalmaður
  • María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Elfar Steinn Karlsson (ESK) byggingarfulltrúi
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) bæjarstjóri

Fundargerð ritaði
  • Elfar Steinn Karlsson byggingafulltrúi og hafnarstjóri

Hljóðupptaka
00:00 / 00:00

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 351. fundar miðvikudaginn 16. september kl. 17:00.
Iða Marsibil Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
Þar sem um fjarfund er að ræða er fundurinn ekki opinn almenningi en upptaka frá fundinum verður sett inn á heimasíðu Vesturbyggðar.

Almenn erindi

1. Stjórnskipan Vesturbyggðar - skipan í ráð og nefndir

Forseti bar upp tillögur um breytingar á nefndarskipan, Anna Vilborg Rúnarsdóttir tekur sæti sem aðalmaður í menningar- og ferðamálaráði í stað Estherar Gunnarsdóttir. Þá er Ásgeir Sveinsson tilnefndur sem varamaður í menningar- og ferðamálaráði.

Til máls tók: Forseti, FM.

    Málsnúmer 2005004 4

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    2. Strandgata 17A. Ósk um nýjan lóðarleigusamning, breytt stærð lóðar.

    Tekin fyrir beiðni um stækkun lóðar Strandgötu 17a á Patreksfirði. Samþykkt var á 73. fundi skipulags- og umhverfisráðs að grenndarkynna stækkun lóðar umhverfis Strandgötu 17a. Grenndarkynnningin var auglýst 20. júlí með athugasemdafrest til 18. ágúst. Ein athugasemd barst við grenndarkynninguna og lýtur hún að lóðarmörkum Strandgötu 17a og 19. Gerð er athugasemd við bílastæði sem hafa fylgt Strandgötu 19 og gildandi lóðarleigusamningur kveður á um. Skipulags- og umhverfisráð samþykkti grenndarkynninguna á 76. fundi sínum m.v. innkomnar athugasemdir og fól byggingarfulltrúa að vinna nánari útfærslu lóðarmarka Strandgötu 17a og Strandgötu 19. Jafnframt lagði skipulags- og umhverfisráð til við bæjarstjórn að endurnýjaðir verði lóðarleigusamningar við Strandgötu 17a og Strandgötu 19.

    Til máls tók: Forseti,ÁS

    Ásgeir Sveinsson óskaði eftir að víkja af fundi við afgreiðslu málsins.

    Bæjarstjórn tekur undir bókun skipulags- og umhverfisráðs og samþykkir grenndarkynninguna sem og endurnýjun lóðarleigusamninga fyrir Strandgötu 17a og 19.

      Málsnúmer 2006027 4

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      3. Umsókn um framkvæmdaleyfi - OV

      Tekið fyrir Erindi frá Orkubúi Vestfjarða, dags. 7. september 2020. Í erindinu er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir plægingu háspennustrengs frá Sandodda í Sauðlaukadal og að Kvígindisdal. Erindinu fylgir samþykki viðkomandi landeigenda sem og uppdrættir er sýna lagnaleiðina.

      Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á 76. fundi sínum að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar jákvæð umsögn Minjavarðarliggur fyrir.

      Til máls tók: Forseti.

      Bæjarstjórn Vesturbyggðar tekur undir bókun skipulags- og umvherfisráðs og samþykkir að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga þegar jákvæð umsögn minjavarðar liggur fyrir.

        Málsnúmer 2009031 2

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        4. Skólavist á milli sveitarfélaga - samkomulag

        Tekið fyrir samkomulag um skólavist milli sveitarfélaga, á milli Vesturbyggðar og Tálknafjarðahrepps. Samráðsnefnd sveitarfélaganna fjallaði um samkomulagið á 55. fundi sínum 3. september sl. og bæjarráð samþykkti samkomulagið fyrir sitt leyti og vísaði því til staðfestingu bæjarstjórnar.

        Til máls tók: Forseti.

        Bæjarstjórn samþykkir samkomulagið.

          Málsnúmer 2009026 3

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          5. Refasamningur Vesturbyggð

          Tekinn fyrir tölvupóstur Umhverfisstofnunar dags. 20. maí 2020 ásamt fylgiskjölum vegna refaveiði 2020-2022. Einnig er lögð fram til kynningar áætlun Vesturbyggðar vegna refaveiða árin 2020-2022. Bæjarráð samþykkti samninginn fyrir sitt leyti á 903. fundi ráðsins og vísaði honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

          Til máls tók: Forseti.

          Bæjarstjórn staðfestir samninginn.

            Málsnúmer 2006071 2

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            6. Skógræktarfélög í Vesturbyggð - samningar um styrki

            Teknir fyrir samningar um styrki við skógræktarfélög í Vesturbyggð. Á 886. fundi bæjarráðs 3. desember 2019 var bæjarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn skógræktarfélaganna um áframhaldandi fyrirkomulag á styrkveitingum til skógræktar í Vesturbyggð. Niðurstaða þess samtals eru samningar við Skógrækarfélag Bíldudals og Skógræktarfélag Patreksfjarðar. Samkvæmt samningunum veitir Vesturbyggð hvoru félagi fyrir sig styrk að fjárhæð 350.000 kr. á ári. Bæjarráð staðfesti samningana fyrir sitt leyti á 903. fundi ráðsins og vísaði þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

            Til máls tók: Forseti.

            Bæjarstjórn staðfestir samningana.

              Málsnúmer 2002085 2

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              7. Bygging fjögurra íbúða á Bíldudal - stofnframlög

              Lögð fram gögn vegna stofnunar Bæjartúns íbúðafélags hses. sem er húsnæðissjálfseignarstofnun sem starfar á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016 og laga um sjálfseignastofnanir sem stunda atvinnurekstur nr. 33/1999. Bæjarráð fól Bæjartúni íbúðafélagi hses. byggingu fjögurra íbúða á Bíldudal.

              Til máls tók: Forseti.

              Bæjarstjórn Vesturbyggðar tekur undir bókun bæjarráðs og staðfestir að stofnframlagi sem veitt var 30. júní 2020 verði afsalað til Bæjartúns hses. og bæjarstjóra falið að tilkynna það til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

                Málsnúmer 2008026 4

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                8. Formlegt erindi vegna umhverfisvottunar Vestfjarða

                Lögð fram aðgerðaráætlun vegna umhverfisvottunar Vestfjarða Earth Check, ásamt tillögum skipulags- og umhverfisráðs.

                Til máls tók: Forseti, FM.

                Bæjarstjórn Vesturbyggðar staðfestir aðgerðaráætlunina vegna umhverfisvottunar Vestfjarða í samræmi við tillögur skipulags- og umhverfisráðs.

                  Málsnúmer 2005010 5

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  Fundargerð

                  9. Bæjarráð - 901

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 901. fundar bæjarráðs sem haldinn var 20. ágúst 2020. Fundargerðin er í 1 lið.

                  Til máls tók: Forseti.

                  • 9.1. #2008021 – Umsóknir um skólavist utan lögheimilissveitarfélags

                  Málsnúmer 2008003F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  10. Fjallskilanefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðar - 23

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 23. fundar fjallskilanefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðar sem haldinn var 31. ágúst 2020. Fundargerðin er í 2 liðum.

                  Til máls tók: Forseti.

                  • 10.1. #2008019 – Fjallskil 2020
                  • 10.2. #2009001 – Eyðijarðir - fjallskil

                  Málsnúmer 2008004F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  11. Bæjarráð - 902

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 902. fundar bæjarráðs sem haldinn var 25. ágúst 2020. Fundargerðin er í 10 liðum.

                  Til máls tók: Forseti, MÓÓ

                  • 11.1. #2007012 – Traustur kjarni félagasamtök
                  • 11.2. #2008022 – Skýrsla um starfsemi Ofanflóðanefndar 2009-2017 - UMH20080025
                  • 11.3. #2005091 – Fjárhagsáætlun 2021 - 2024
                  • 11.4. #2008026 – Bygging fjögurra íbúða á Bíldudal - stofnframlög
                  • 11.5. #2004156 – Frístundabyggð undir Taglinu beiðni um úthlutun lóða
                  • 11.6. #2008020 – Uppbygging gamalla húsa á Bíldudal
                  • 11.7. #2008018 – Beiðni um niðurfellingu á fasteignagjöldum - Saumastofan Strönd ehf.
                  • 11.8. #2008010 – Vesturbyggð - Þjóðskógar
                  • 11.9. #2008027 – Mötuneyti Patreksfirði og Bíldudal - máltíðir á föstudögum
                  • 11.10. #1911002 – Úttekt á rekstri og skipulagi leik- og grunnskóla í Vesturbyggð

                  Málsnúmer 2008006F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  12. Bæjarráð - 903

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 903. fundar bæjarráðs sem haldinn var 7. september 2020. Fundargerðin er í 13 liðum.

                  Til máls tók: Forseti, Bæjarstjóri.

                  • 12.1. #2005090 – Rekstur og fjárhagsstaða 2020
                  • 12.2. #2009022 – Fundargerð nr. 886. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
                  • 12.3. #2008033 – Upplýsingabeiðni um fjarskiptainnviði
                  • 12.4. #2008034 – Handhafabreyting starfsleyfis Arnarlax ehf
                  • 12.5. #2009009 – Ársskýrsla 2019, greining á opinberu eftirliti og fundargerð 129. fundar heilbrigðisnefndar
                  • 12.6. #2007025 – Sala eigna 2020
                  • 12.7. #2009012 – Upplýsingar um alla samninga sveitarfélaga vegna samstarfs við önnur sveitarfélög
                  • 12.8. #2009026 – Skólavist á milli sveitarfélaga - samkomulag
                  • 12.9. #2002091 – Fyrirspurn. Mögulegt urðunarsvæði.
                  • 12.10. #2008039 – Héraðsskjalasafn fyrir Barðastrandarsýslur - fyrirspurn
                  • 12.11. #2006071 – Refasamningur Vesturbyggð
                  • 12.12. #2002085 – Skógræktarfélög í Vesturbyggð - samningar um styrki
                  • 12.13. #2009010 – Nýtt fiskveiðiár 2020-2021 úthlutað aflamark

                  Málsnúmer 2009001F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  13. Samráðsnefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 55

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 55. fundar samráðsnefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðahrepps sem haldinn var 3. september 2020. Fundargerðin er í 4 liðum.

                  Til máls tók: Forseti.

                  • 13.1. #2009026 – Skólavist á milli sveitarfélaga - samkomulag
                  • 13.2. #2009027 – Samgöngumál á sunnanverðum Vestfjörðum
                  • 13.3. #2009028 – Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti - ársreikningur 2019
                  • 13.4. #2009029 – Starfshættir samráðsnefndar

                  Málsnúmer 2009002F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  14. Skipulags og umhverfisráð - 76

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 76. fundar skipulags- og umhverfisráðs sem haldinn var 10. september 2020. Fundargerðin er í 7 liðum.

                  Til máls tók: Forseti.

                  • 14.1. #2005010 – Formlegt erindi vegna umhverfisvottunar Vestfjarða
                  • 14.2. #1909059 – Umsókn um lóð undir eldsneytisafgreiðslu - Bíldudal.
                  • 14.3. #2009031 – Umsókn um framkvæmdaleyfi - OV
                  • 14.4. #2006027 – Strandgata 17A. Ósk um nýjan lóðarleigusamning, breytt stærð lóðar.
                  • 14.5. #2008003 – Bjarkargata. Umsókn um lóð fyrir bílskúr.
                  • 14.6. #2002190 – Umsókn um stöðuleyfi. Brautarholt.
                  • 14.7. #2002127 – Vesturbyggð - Aðalskipulag 2018-2030

                  Málsnúmer 2009003F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  15. Hafna- og atvinnumálaráð - 23

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 23. fundar hafna- og atvinnumálaráðs sem haldinn var 14. september 2020. Fundargerðin er í 8 liðum.

                  Til máls tók: Forseti.

                  • 15.1. #2009041 – Patrekshöfn - markaðssetning vegna skemmtiferðaskipa
                  • 15.2. #2009036 – Hafnarsvæði Bíldudal. Umsókn um stöðuleyfi.
                  • 15.3. #2009035 – Strandgata 7, Bíldudal. Umsókn um stöðuleyfi.
                  • 15.4. #2002127 – Vesturbyggð - Aðalskipulag 2018-2030
                  • 15.5. #2009032 – Frumvarp um breytingar á 5,3 prósent kerfinu
                  • 15.6. #2009010 – Nýtt fiskveiðiár 2020-2021 úthlutað aflamark
                  • 15.7. #2009043 – Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2020-2021
                  • 15.8. #2009037 – Fundargerð nr. 425 - Hafnarsamband Íslands

                  Málsnúmer 2009005F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:42


                  Vesturbyggð

                  Ráðhús Aðalstræti 75, Patreksfjörður

                  +354 450 2300 vesturbyggd@vesturbyggd.is kt. 510694 2369


                  2018 & 2019 Opinberi vefur ársins

                  2018 Vefur ársins

                  2020 Jafnlaunavottun