Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 26. apríl 2023 og hófst hann kl. 17:00
Nefndarmenn
- Valdimar Bernódus Ottósson (VBO) varamaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Einar Helgason (EH) varamaður
- Guðrún Eggertsdóttir (GE) aðalmaður
- Gunnþórunn Bender (GB) varamaður
- Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir (SSS) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Þórdís Sif Sigurðardóttir (ÞSS) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
Málsnúmer 2209029 9
2. Ársreikningur 2022
Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2022 ásamt endurskoðunarskýrslu. Bæjarfulltrúar hafa fengið kynningu á niðurstöðum ársins 2022 ásamt endurskoðunarskýrslu frá endurskoðanda sveitarfélagins Sigurjóni Arnarsyni.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi 2022 til seinni umræðu.
Málsnúmer 2301013 3
3. Grund Selárdal, ósk um breytta skráningu.
Erindi frá Eini Steini Björnssyni, dags. 3. febrúar 2023. Í erindinu er sótt um breytta skráningu á Grund, Selárdal. Sótt er um að skráningu eignarinnar sé breytt úr sumarhúsi í íbúðarhús.
Erindið var tekið fyrir á 105. fundi skipulags- og umhverfisráðs þar sem lagt var til við bæjarstjórn að erindið yrði samþykkt.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir erindið og felur bygginafulltrúa að gera viðeigandi breytingar á skráningu hússins.
Málsnúmer 2302019 3
4. Járnhóll 8. Umsókn um lóð.
Lagt fyrir erindi frá Landsneti hf. dags. 21. mars 2023. Í erindinu er sótt um byggingarlóðina að Járnhól 8, Bíldudal. Sótt er um lóðina til byggingar tengivirkis Landsnets.
Erindið var tekið fyrir á 105. fundi skipulags- og umhverfisráðs þar sem ráðið lagði til við bæjarstjórn að samþykkja úthlutun lóðarinnar en vakti jafnframt athygli bæjarstjórnar á því að klára þarf veglagningu að lóðinni skv. deiliskipulagi.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri.
Bæjarstjórn tekur jákvætt í erindið en telur ekki forsendur til að samþykkja úthlutun lóðarinnar að svo stöddu. Bæjarstjórn frestar ákvörðun málsins og felur bæjarstjóra að setja sig í samband við umsækjanda vegna veglagningar að lóðinni sem ekki er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Málsnúmer 2302065 2
5. Aðalskipulag Bíldudal, breyting á þéttbýlisuppdrætti.
Tekin fyrir breyting á þéttbýlisuppdrætti Vesturbyggðar 2018-2035 á Bíldudal. Breytingin fjallar um að bætt er við iðnaðarsvæði á þéttbýlisuppdrátt fyrir Bíldudal. Um er að ræða hreinisvirki sem þjóna á íbúðarsvæði ÍB12.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn á 105. fundi sínum þann 11.04.2023 að breyting á Aðalskipulagi Vesturbyggðar verði auglýst skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Forseti.
Bæjartjórn samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2303064 4
6. Hóll, Bíldudal. Deiliskipulag Íbúabyggðar.
Tekið fyrir bréf Skipulagsstofnunar dagsett 27. febrúar 2023 er varðar afgreiðslu deiliskipulags íbúðarsvæðis Hóls á Bíldudal. Í bréfinu var gerð athugasemd við að bæjarstjórn auglýsti deiliskipulagið í B-deild Stjórnartíðinda. Deiliskipulagið hafði áður verið auglýst og lagfært m.t.t. fyrri ábendinga Skipulagsstofnunar og breytt á þann hátt að lítið fjölbýli og hreinsivirki voru fjarlægð úr tillögu deiliskipulags. Með þeim aðgerðum samræmdist tillagan ekki ákvæðum Aðalskipulags Vesturbyggðar 2018-2035.
Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 105. fundi sínum þann 11.04.2023 og lagði til við bæjarstjórn að deiliskipulagið yrði auglýst að nýju með hreinsivirki samhliða breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar um sama efni. Málsmeðferð verði skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir að deiliskipulagið verði auglýst að nýju með hreinsivirki samhliða breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggar 2018-2035 um sama efni. Málsmeðferð verði skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 2110023 13
7. Bíldudalsvegur nr. 63 um Mikladal, umsókn um framkvæmdaleyfi.
Fyrir liggur erindi frá Vegagerðinni dagsett 5.04.2023. Í erindinu er óskað eftir breytingu á áður samþykktu framkvæmdaleyfi vegna Bíldudalsvegar um Mikladal. Breytingin felur í sér að vinna efni í burðarlag innan vinnusvæðisins. Heildarmagn þess efnis sem um ræðir er 8.800 m3 og mun nú efnið koma innan vinnusvæðisins með því að breikka skeringu um 6 metra. Áður átti efnið að koma úr námu á Hvalskeri.
Skipulags- og umhverfisráð tók breytinguna fyrir á 105. fundi sínum þann 11.04.2023 og lagði til við bæjarstjórn að breyting á framkvæmdaleyfi yrði heimiluð og fól skipulagsfulltrúa að gera viðbót við gildandi framkvæmdaleyfi sem innifelur þessa skeringu.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn heimilar breytingu á framvæmdaleyfi og felur skipulagsfulltrúa gera viðbót við gildandi framkvæmdaleyfi sem innifelur skeringuna.
Málsnúmer 2203046 4
8. Hafnarteigur 4 - viðbætir við lóðarleigusamning, stækkun lóðar.
Lagður fram til samþykktar viðbætur við lóðarleigusamning Íslenska Kalkþörungafélagsins ehf að Hafnarteig 4 á Bíldudal. Samningurinn er varðandi viðbótarathafnarsvæði til handa Íslenska Kalkþörungafélaginu ehf. í samræmi við Verksmiðjubyggingarsvæðissamning frá 2006.
Hafna- og atvinnumálaráð tók málið fyrir á 48. fundi sínum og lagði til við bæjarstjórn að samningur um viðbætur við lóð Íslenska Kalkþörungafélagsins að Hafnarteig 4 verði samþykktur. Þá lagði ráðið ríka áherslu á að gengið verði snyrtilega um svæðið, þá skulu framkvæmdir vera komnar af stað við uppbyggingu svæðisins innan tveggja ára.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir að ofangreindar breytingar verði gerðar á samningi um lóð Íslenska Kalkþörungafélagsins að Hafnarteig 4 og tekur undir áherslur hafna- og atvinnumálaráðs um að gengið verði snyrtilega um svæðið og framkvæmdir verði konnar af stað innan tveggja ára.
Málsnúmer 2303052 2
9. Strandgata 10-12. Ósk um breytingu á deiliskipulagi, stækkun byggingarreits.
Tekin fyrir umsókn Arnalax um breytingu á deiliskipulagi Hafnarsvæðis á Bíldudal dags. 5.4.2023.
Breytingin gengur út að að stækka byggingarreit við Strandgötu 10-12 til þess að koma fyrir stækkun á vatnshreinsistöð. Áformað er að bæta við tveimur 8x2 metra löngum tönkum sem ætlaðir eru til betri hreinsunar frá stöðinni.
Skipulags- og umhverfisráð lagði til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þá tók hafna- og atvinnumálaráð undir bókun skipulags- og umhverfisráðs og leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal fyrir lóðarhöfum að Hafnarteig 4, Strandgötu 5, 6 og 7.
Til máls tók: Forseti.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal fyrir lóðarhöfum að Hafnarteig 4, Strandgötu 5, 6 og 7.
Málsnúmer 2304013 5
Fundargerðir til kynningar
10. Bæjarráð - 959
Lögð fram til kynningar fundargerð 959. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 28. mars 2023. Fundargerð er í 24 liðum.
Til máls tók: Forseti.
- 10.1. #2302087 – Framkvæmdaáætlun ársins 2023
- 10.2. #2303041 – Móttökuáætlun fyrir íbúða af erlendum uppruna - bæklingur.
- 10.3. #2302009 – Tilkynning um kæru 20-2023 vegna útgefins nýtingarleyfi til nýtingar jarðhita á Krossholti á Barðaströnd
- 10.4. #2302095 – Áhrif orkuskipta á hafnarsvæði, skýrsla
- 10.5. #2303049 – Neysluvatnssýni Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða 2023
- 10.6. #2211041 – Sveitarfélag ársins 2023
- 10.7. #2301036 – Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2023
- 10.8. #2302074 – Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2023
- 10.9. #2303031 – Til samráðs - Endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
- 10.10. #2302081 – Til samráðs - Frumlag til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61-2003 (gjaldtaka og fleira).
- 10.11. #2303022 – Mál nr. 782 um breytingu á lögum málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs, þjónustustöðvar).
- 10.12. #2210049 – Heimastjórnir í Vesturbyggð
- 10.13. #2303025 – Mál nr. 126 um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál. Ósk um umsögn.
- 10.14. #2303026 – Mál nr. 128 um grunnskóla (framlög til sjálfstætt rekinna grunnskóla). Ósk um umsögn.
- 10.15. #2303027 – Mál nr. 165 um brottfall laga um orlof húsmæðr, nr. 53-1972, með síðari breytingum.
- 10.16. #2303028 – Mál nr. 795 um aðgerðaráætlun gegn hatursorðræðu fyrir árin 2023-2026
- 10.17. #2303040 – Til samráðs - Drög að stefnu í málefnum sveitarfélaga ( hvítbók).
- 10.18. #2209022 – Ósk um upplýsingar um stöðu slökkviliðs og vinnslu brunavarnaáætlunar
- 10.19. #2303050 – Vegagerð við Járnhól, vegna úthlutunar lóða
- 10.20. #2303036 – Sameiginlegt bréf innviðaráðherra og formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna tillagna verkefnisstjórnar um bættar starfsaðstæður kjörinna fulltrúa
- 10.21. #2207026 – Innleiðing Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna
- 10.22. #2302068 – Stofnframlag HMS til umsóknar vor 2023
- 10.23. #2302056 – Styrkvegir 2023 umsóknir
- 10.24. #2303044 – Fallinn ljósastaur Bíldudal skortur á viðhaldi
Málsnúmer 2303008F
11. Bæjarráð - 960
Lögð fram til kynningar fundargerð 960. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 24. apríl 2023. Fundargerð er í 16 liðum.
Til máls tók: Forseti.
- 11.1. #2301013 – Ársreikningur 2022
- 11.2. #2304021 – Mál nr. 914 um tillögu til þingsályktunar um landbúnaðarstefnu til ársins 2040. Ósk um umsögn.
- 11.3. #2304028 – Umhverfisstofnun reglubundið eftirlit ný gjaldskrá
- 11.4. #2303033 – Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Vestfjarðar 2023
- 11.5. #2301036 – Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2023
- 11.6. #2303055 – Tillaga kjörnefndar á fulltrúa í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
- 11.7. #2303053 – Eftirlitsskýrslur vatnsveita Bíldudal 2023
- 11.8. #2304032 – Grenjavinnsla 2023
- 11.9. #2304014 – Stefnumótun lagareldis - boð til samráðs
- 11.10. #2304026 – Styrktarsjóður EBÍ 2023
- 11.11. #2303061 – Hóll - Golfskáli, umsókn um samþykki byggingaráforma.
- 11.12. #2303045 – Fyrirspurn - Svæði yst við Tjarnarbraut og Lönguhlíð á Bíldudal
- 11.13. #2303011 – Akstur utan vegar á Þúfneyri
- 11.14. #2304023 – Mál nr. 861 um stjórn fiskveiða (svæðaskipting strandveiða). Ósk um umsögn.
- 11.15. #2303057 – Mál nr. 80 um breytingu á lögum um fjöleignarhús, nr. 26-1994 (gæludýrahald). Ósk um umsögn.
- 11.16. #2304022 – Mál nr. 915 um tillögu til þingályktunar um matvælastefnu til ársins 2040
Málsnúmer 2304002F
Fundargerð
12.
Skipulags og umhverfisráð - 105
Lögð fram til kynningar fundargerð 105. fundar skipulags og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 11. apríl 2023. Fundargerð er í 16 liðum.
Til máls tók: Forseti.
- 12.1. #2303011 – Akstur utan vegar á Þúfneyri
- 12.2. #2303064 – Aðalskipulag Bíldudal, breyting á þéttbýlisuppdrætti.
- 12.3. #2110023 – Hóll, Bíldudal. Deiliskipulag Íbúabyggðar.
- 12.4. #2202042 – Fjósadalur deiliskipulag sorpsöfnunnarsvæði
- 12.5. #2303059 – Vinnslutillaga aðalskipulags Tálknafjarðar 2019-2039, ósk um umsögn.
- 12.6. #2304010 – Ytri Bugur, Langholt. Umsókn um samþykki byggingaráforma.
- 12.7. #2203046 – Bíldudalsvegur nr. 63 um Mikladal, umsókn um framkvæmdaleyfi.
- 12.8. #2304013 – Strandgata 10-12. Ósk um breytingu á deiliskipulagi, stækkun byggingarreits.
- 12.9. #2302019 – Grund Selárdal, ósk um breytta skráningu.
- 12.10. #2303035 – Brekkuvellir lóð 1 - ósk um breytt heiti.
- 12.11. #2302065 – Járnhóll 8. Umsókn um lóð.
- 12.12. #2303045 – Fyrirspurn - Svæði yst við Tjarnarbraut og Lönguhlíð á Bíldudal
- 12.13. #2303048 – Hafnarteigur 4, girðingar umhverfis athafnasvæði Ískalks
- 12.14. #2303061 – Hóll - Golfskáli, umsókn um samþykki byggingaráforma.
- 12.15. #2303051 – Umsókn um lóð - Hafnarteigur 4a og Strandgata 14E
- 12.16. #2303063 – Brjánslækur 3. Umsókn um samþykki byggingaráforma
Málsnúmer 2303005F
13.
Hafna- og atvinnumálaráð - 48
Lögð fram til kynningar fundargerð 48. fundar hafna- og atvinnumálaráðs, fundurinn var haldinn 18. apríl 2023. Fundargerð er í 8 liðum.
Til máls tók: Forseti.
- 13.1. #2303060 – Verbúðin, Patreksfirði. Ósk um endurskoðaðan leigusamning.
- 13.2. #2303052 – Hafnarteigur 4 - viðbætir við lóðarleigusamning, stækkun lóðar.
- 13.3. #2303051 – Umsókn um lóð - Hafnarteigur 4a og Strandgata 14E
- 13.4. #2303048 – Hafnarteigur 4, girðingar umhverfis athafnasvæði Ískalks
- 13.5. #2304013 – Strandgata 10-12. Ósk um breytingu á deiliskipulagi, stækkun byggingarreits.
- 13.6. #2304018 – Umsagnarbeiðni - breyting eldissvæða og aukning heildarlífmassa í Arnarfirði fyrir Arnarlax
- 13.7. #2103034 – Breiðafjarðarferjan Baldur
- 13.8. #2301041 – Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands 2023
Málsnúmer 2304001F
14.
Menningar- og ferðamálaráð - 27
Lögð fram til kynningar fundargerð 27. fundar menningar- og ferðamálaráðs, fundurinn var haldinn 30. mars 2023. Fundargerð er í 2 liðum.
Til máls tóku: Forseti og GE.
- 14.1. #2303046 – Umsókn í Barnamenningarsjóð fyrir Skrímslastopp í Arnarfirði
- 14.2. #2301002 – Tjaldsvæði Vesturbyggðar 2023
Málsnúmer 2303009F
15.
Fræðslu- og æskulýðsráð - 86
Lögð fram til kynningar fundargerð 86. fundar fræðslu- og æskulýðsráðs, fundurinn var haldinn 13. mars 2023. Fundargerð er í 3 liðum.
Til máls tók: Forseti.
- 15.1. #2303018 – Starfsáætlun Fræðslu- og æskulýðsráðs
- 15.2. #2303029 – Patreksskóli, skólalóð endurnýjun og viðhald
- 15.3. #2303013 – Ráðstöfun fjármuna í grunnskóla, áframhaldandi vinna
Málsnúmer 2302008F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 382. fundar miðvikudaginn 26. apríl 2023 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Ásgeir Sveinsson annar varaforseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
Jón Árnason boðaði forföll, í hans stað sat fundinn Gunnþórunn Bender. Friðbjörn Steinar Ottósson boðaði forföll, í hans stað situr fundinn Einar Helgason. Anna Vilborg Rúnarsdóttir boðaði forföll í hennar stað situr fundinn Valdimar Bernódus Ottósson.