Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #386

Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 13. september 2023 og hófst hann kl. 17:00

Nefndarmenn
  • Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) aðalmaður
  • Guðrún Eggertsdóttir (GE) aðalmaður
  • Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
  • Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir (SSS) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir (ÞSS) bæjarstjóri

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Hljóðupptaka
00:00 / 00:00

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 386. fundar miðvikudaginn 13. september 2023 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.

Jón Árnason forseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.

Forseti bar undir fundinn að tekin verði fyrir afbrigði á dagskrá, liður 7 málsnr. 2304013 - Strandgata 10-12. Ósk um breytingu á deiliskipulagi, stækkun byggingarreits og liður 9 málsnr. 2309030 - Deiliskipulag Bíldudalshöfn - Breyting, sameining lóða og byggingarreita falla út. Dagskrárliðir 8 færist upp um einn lið og verður númer 7 og dagskrárliðir 10 - 16 færast upp um tvo og verða númer 8 - 14.

Samþykkt samhljóða.

Almenn erindi

1. Skýrsla bæjarstjóra

Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.

Til máls tóku: Forseti og Bæjarstjóri.

    Málsnúmer 2209029 15

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    2. Kosning um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar

    Tillaga samstarfsnefndar vegna sameiningarviðræðna Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar um að kosning um sameiningu sveitarfélaganna fari fram 9. október 2023 til 28. október 2023 og að kosningaaldur miðist við 16 ár. Einnig leggur samstarfsnefndin til að drög að kjörseðli verði samþykkt og að sameiginlegri kjörstjórn verði falið að ákveða staðsetningu og fjölda kjörstaða, skiptingu í kjördeildir og opnunartíma kjörstaða.

    Mál frá 10. fundi samstarfsnefndar vegna sameiningarviðræðna Tálknafjarðar og Vesturbyggðar sem fór fram 23.08.2023.

    Til máls tók: Forseti

    Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir samhljóða tillögu samstarfsnefndar varðandi framkvæmd kosninga um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

      Málsnúmer 2309036

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      3. Urðargata 21 - umsókn um lóð.

      Þórkatla Soffía Ólafsdóttir vék af fundi.

      Tekið fyrir erindi frá Oddi Þ. Rúnarssyni, dags. 5. ágúst 2023. Í erindinu er sótt um byggingarlóðina að Urðargötu 21a. Umsækjandi hafði áður fengið úthlutaðri lóðinni að Urðargötu 21b. Á 108. fundi skipulags- og umhverfisráðs var samþykkt að sameina lóðirnar.

      Skipulags- og umhverfisráð tók erindið fyrir á 109. fundi sínum þar sem það lagði til við bæjarstjórn að úthlutunin verði samþykkt og sameining lóðanna grenndarkynnt.

      Til máls tók: Forseti

      Bæjarstjórn samþykkir úthlutun og sameiningu lóðanna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

      Þórkatla Soffía Ólafsdóttir kom aftur inná fundinn.

        Málsnúmer 2206011 6

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        4. Túngata 16. Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings.

        Tekið fyrir erindi frá Magdalenu Lawicki, dags. 8. ágúst 2023. Í erindinu er óskað eftir endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Túngötu 16, Patreksfirði. Erindinu fylgir nýtt lóðablað unnið af byggingarfulltrúa Vesturbyggðar.

        Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 109. fundi sínum þar sem það lagði til við bæjarstjórn að endurnýjun lóðarleigusamningsins verði samþykkt.

        Til máls tók: Forseti

        Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun lóðarleigusamningsins.

          Málsnúmer 2308006 2

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          5. Hagi - Breytingar á lóðum

          Tekið fyrir erindi frá Björgu G. Bjarnadóttur, dags. 2. september 2023. Í erindinu er óskað eftir breytingu á lóðum innan marka Haga, Barðaströnd. Breytingin er eftirfarandi:

          Hagi II, L201209. Lóðin var 3ha en verður rúmir 41ha eftir breytingu.
          Tungumúli, L223387. Lóðin var 0,7ha en verður 3,2ha eftir breytingu.
          Grænhóll 1, L225786. Lóðin var 0,3ha en verður um 1ha eftir breytingu.
          Höfði, L218799. Lóðin var 1ha en verður 15,7ha eftir breytingu.

          Erindinu fylgja ný mæliblöð.

          Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 109. fundi sínum þar sem það lagði til við bæjarstjórn að stækkun lóðanna verði samþykkt.

          Til máls tók: Forseti

          Bæjarstjórn samþykkir stækkun lóðanna.

            Málsnúmer 2309027 2

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            6. Deiliskipulag Langholts og Krossholts - breyting veglagning

            Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi Langholts-Krossholts, dags. 7. september 2023. Tillagan felur í sér að breyta legu aðkomuvegar um svæðið en áður skilgreint vegstæði þykir ekki ákjósanlegt vegna bleytu. Afmörkun og stærð tveggja lóða breytast með færslu vegarins. Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulaginu.

            Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 109. fundi sínum þar sem það lagði til við bæjarstjórn að tillagan fái málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verði fyrir lóðarhöfum með lóðanúmerum L221147, L233020, L139840, L139837, L233022 og L221595.

            Til máls tók: Forseti

            Bæjarstjórn samþykkir að tillagan fái málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verði fyrir lóðarhöfum með lóðanúmerum L221147, L233020, L139840, L139837, L233022 og L221595.

              Málsnúmer 2308050 4

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              7. Göngustígur í Selárdal

              Tekið fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi Selárdals. Breytingin gengur út á að skilgreina stikaða gönguleið frá Brautarholti niður í fjöru í Selárdal. Grenndarkynning var auglýst með athugasemdafresti til 22. júlí 2023. Umsögn Minjastofnunar Íslands liggur fyrir sem gerði ekki athugasemdir við breytingartillöguna.

              Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 109. fundi sínum þar sem það lagði til við bæjarstjórn að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

              Til máls tók: Forseti

              Bæjarstjórn samþykkir að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

                Málsnúmer 2304054 5

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                Til kynningar

                8. Kjörstjórn fyrir væntanlega íbúakosningar um sameiningu

                Kynntar eru fundargerðir kjörstjórnar frá 1. fundi sem haldinn var 27. júní sl., 2. fundi sem haldinn var 23. ágúst sl, 3. sem haldinn var 31. ágúst sl. og 4. fundi sem haldinn var 6. september sl.

                Til máls tók: Forseti

                  Málsnúmer 2306056 2

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  Fundargerð

                  9. Bæjarráð - 967


                  10. Fasteignir Vesturbyggðar - 81

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 81. fundar Fasteigna Vesturbyggðar, fundurinn var haldinn 29. ágúst 2023. Fundargerð er í 2 liðum.

                  Til máls tók: Forseti

                  Málsnúmer 2303006F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  11. Menningar- og ferðamálaráð - 30

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 30. fundar menningar- og ferðamálaráðs, fundurinn var haldinn 31. ágúst 2023. Fundargerð er í 4 liðum.

                  Til máls tók: Forseti

                  Málsnúmer 2308006F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  12. Vestur-Botn - 10

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 10. fundar Vestur-Botns, fundurinn var haldinn 5. september 2023. Fundargerð er í 2 liðum.

                  Til máls tók: Forseti

                  Málsnúmer 2304005F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  13. Hafna- og atvinnumálaráð - 52

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 52. fundar hafna- og atvinnumálaráðs, fundurinn var haldinn 7. september 2023. Fundargerð er í 4 liðum.

                  Til máls tók: Forseti

                  Málsnúmer 2309001F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  14. Skipulags og umhverfisráð - 109

                  Lögð fram til kynningar fundargerð 109. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 11. september 2023. Fundargerð er í 7 liðum.

                  Til máls tók: Forseti

                  Málsnúmer 2309004F

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:24