Hoppa yfir valmynd
  • Þjónusta
  • Mannlíf
  • Stjórnsýsla
  • Íbúagátt
    • English
    • Polski
  • Leit
  • Íbúagátt
  • English
  • Polski
  1. Stjórnsýsla
  2. Bæjarstjórn & nefndir
  3. Fundargerðir
  4. Bæjarstjórn

Bæjarstjórn #359

Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 28. apríl 2021 og hófst hann kl. 17:00

Nefndarmenn
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
  • Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) formaður
  • Jörundur Garðarsson (JG) varamaður
  • Magnús Jónsson (MJ) aðalmaður
  • María Ósk Óskarsdóttir (MÓÓ) aðalmaður
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Rebekka Hilmarsdóttir (RH) bæjarstjóri

Fundargerð ritaði
  • Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 359. fundar miðvikudaginn 28. apríl 2021 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Iða Marsibil Jónsdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.
Jón Árnason boðaði forföll í hans stað situr fundinn Jörundur Garðarsson.
Forseti bar undir fundinn að tekið verði fyrir afbrigði á dagskrá, liður 10 málsnr. 2002127 - Vesturbyggða - Aðalskipulag 2018-2035, fellur út af dagskrá þar sem hann er tvítekin, sama mál er líka undir lið 6 á dagskrá. Í stað liðar 10 sem fellur út kemur nýr dagskrárliður, málsnr. 2103038 - Auglýsing um ákvörðun ráðherra vegna neyðarstigs almannavarna af völdum Covid-19.
Samþykkt samhljóða.

Almenn erindi

1. Ársreikningur Vesturbyggðar 2020

Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2020 ásamt endurskoðunarskýrslu. Bæjarfulltrúar hafa fengið kynningu á niðurstöðum ársins 2020 ásamt endurskoðunarskýrslu frá endurskoðanda sveitarfélagins Haraldi Erni Reynissyni.

Til máls tók: Forseti

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi 2020 til seinni umræðu.

    • Samstæða Vesturbyggð 2020_Seinni umræða.pdf
    • Sundurliðunarbók Vesturbyggð - seinni umræða.pdf

    Málsnúmer 2104041 4

    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


    2. Fjárhagsáætlun 2021 - viðaukar

    Lagður fram viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2021 áamt minnisblaði byggingafulltrúa. Viðaukinn er vegna vinnu við fornleifaskráningu tengslum við afgreiðslu aðalskipulags Vesturbyggðar. Kostnaður við fornleifaskráningu er áætlaður 3,5 milljónir og er viðaukanum mætt með lækkun á handbæru fé í A hluta.

    Viðaukinn hefur þau áhrif á rekstrarniðurstöðu A og B hluta að hún fer úr 31 milljón króna tap í 34,5 milljón króna tap. Handbært fé lækkar um 3,5 milljónir í A og B hluta.

    Til máls tók: Forseti

    Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.

      • Viðauki 8.pdf

      Málsnúmer 2103010 15

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      3. Leikskólinn Araklettur - ráðning leikskólastjóra

      Lögð fram bókun fræðslu- og æskulýðsráðs frá 70. fundi ráðsins 29. mars sl. þar sem lagt er til að Guðmunda Julia Valdimarsdóttir verði ráðin í starf leikskólastjóra leikskólans Arakletts á Patreksfirði.

      Til máls tók: Forseti

      Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir að ráða Guðmundu Juliu Valdimarsdóttur sem leikskólastjóra leikskólans Arakletts og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs ásamt bæjarstjóra að ganga frá ráðningasamningi.

        Málsnúmer 2103061 2

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        4. Hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði

        Lagður fram til staðfestingar samningur um nýbyggingu og endurbætur á hjúkrunarrýmum á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði.

        Samkvæmt samningnum munu heilbrigðisráðuneytið og Vesturbyggð standa saman að byggingu og endurbótum á hjúkrunarrýmum á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði. Í niðurstöðu frumathugunnar Framkvæmdasýslu ríkisins frá mars 2021 er lagt til að byggja við stofnunina og gera endurbætur á hluta hennar. Í dag er heimilið með 11 hjúkrunarrýmum, þar eru fjögur einbýli, tvö tvíbýli og eitt þríbýli. Með stækkuninni verða 11 einbýli sem leysa munu öll tví- og þríbýli af hólmi.

        Til máls tók: Forseti

        Bæjarstjórn staðfestir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann fyrir hönd Vesturbyggðar.

          Málsnúmer 2004011 13

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          5. Vatnsveita Brjánslæk

          Lagt fram erindi frá Jóhanni Pétri Ágústssyni dags. 22. febrúar 2021. Í erindinu er óskað eftir umsögn Vesturbyggðar vegna umsóknar um styrk til Matvælastofnunar um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum, þar sem landeigendur hyggjast leggja vatnsveitu að lögbýlinu Brjánslæk á Barðaströnd.

          Bæjarráð tók málið fyrir á 918. fundi sínum 13. apríl sl. og bókaði að Vesturbyggð myndi ekki nýta heimild til starfrækslu vatnsveitu á svæðinu í samræmi við lög um vatnsveitur sveitarfélaga.

          Til máls tók: Forseti

          Bæjarstjórn staðfestir bókun bæjarráðs.

            Málsnúmer 2102078 2

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            6. Vesturbyggð - Aðalskipulag 2018-2035

            Lögð fram tillaga að endurskoðuðu Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035. Tillagan var forkynnt skv. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í lok árs 2020 og kynnt á íbúafundi 9. febrúar 2021.

            Tillagan hefur verið send til umsagnaraðila og umsagnir liggja fyrir frá eftirfarandi aðilum: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Náttúrufræðistofnun Íslands, Samgöngustofu, Vegagerðinni, Breiðafjarðarnefnd, Fiskistofu, Minjastofnun, Umhverfisstofnun, Landgræðslunni, Tálknafjarðarhreppi og Veðurstofu Íslands. Fyrir liggur samantekt skipulagsfulltrúa á innsendum umsögnum og mögulegum viðbrögðum.

            Skipulagsstofnun hefur heimilað auglýsingu á tillögunni, með bréfi dagsett 25. mars sl. þegar tekið hefur verið tillit til athugasemda stofnunarinnar eða að tillagan verði auglýst með athugasemdum Skipulagsstofnunar. Skipulags- og umhverfisráð og bæjarráð leggja til við bæjarstjórn að tillagan og umhverfisskýrsla verði auglýst skv. 31. gr skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt athugasemdum skipulagsstofnunar.

            Til máls tóku: Forseti og FM

            Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa tillöguna og umhverfisskýrsluna ásamt athugasemdum Skipulagsstofnunar í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.

              • SA1701_Bildu-A1-10000.pdf
              • SA1701_Patro-A1-10000.pdf
              • SA1701-Grg og themakort_smaekkad.pdf
              • SA1701-A0-75000-Vesturbyggð A1 150.000.pdf
              • SA1701-UMA og forsendur_nov2021.pdf

              Málsnúmer 2002127 17

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              7. Hitaveita Krossholti

              Tekið fyrir minnisblað um nýtingu á heitu vatni á Krossholtum, þar sem farið er yfir upplýsingar sem komu fram á fundi sveitafélagsins með Orkustofnun 11. mars sl. Í samræmi við fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2020 er fyrirhuguð lokun á veitingu heits vatns í fasteignir á Krossholtum þann 1. júní nk. Með vísan til nýrra upplýsinga frá Orkustofnun lagði bæjarráð til á 919. fundi sínum 26. apríl sl. að lokun fyrir veitingu heits vatns á Krossholtum verði frestað um ótilgreindan tíma á meðan sveitarfélagið sækir um nýtingaleyfi til Orkustofnunar og vinnur áfram að málinu.

              Til máls tók: Forseti

              Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að lokun hitaveitu verði frestað og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs umboð til að sækja um nýtingarleyfi til Orkustofnunar, ásamt því að tilkynna fasteignaeigendum um frestun lokunar á meðan unnið sé í málinu. Þegar frekari upplýsingar liggi fyrir vegna nýtingarleyfisins verði málið tekið til umræðu að nýju í bæjarstjórn.

                Málsnúmer 2006016 3

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                8. Útboð á sorphirðu fyrir Vesturbyggð

                Lögð fram drög að útboðs- og verklýsingu vegna sorphirðu og förgunar í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi. Verkefnið fellst í söfnun úr heimilissorpi, lífrænu og endurvinnslutunnum við öll heimili í sveitarfélögunum tveimur, auk reksturs gámasvæða í þéttbýli og gámavalla í dreifbýli. Útboðs- og verklýsing tekur mið af áherslum stjórnvalda um hringrásarhagkerfið, Þar sem leggja skal áherslu á að urðun sorps verði hætt á komandi árum ásamt aukinni flokkun og endurnýtingu á úrgangi frá heimilum og fyrirtækjum.

                Til máls tók: Forseti

                Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs ásamt vinnuhópi sveitarfélaganna að ganga frá útboðs- og verkefnalýsingunni fyrir hönd Vesturbyggðar.

                  • 2021-07-29_1517_Opnunarskýrsla.pdf

                  Málsnúmer 1910179 6

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  9. Efnisvinnsla Tagl - umsókn um framkvæmdaleyfi.

                  Erindi frá Vegagerðinni, dags. 16. apríl 2021. Í erindinu er óskað eftir heimild til efnistöku í námu við Tagl á Bíldudal, alls um 20.000 m3. Erindinu fylgir afstöðumynd af námunni sem og tölvupóstur frá jarðfræðingi Vegagerðarinnar. Skipulags- og umhverfisráð lagði til við bæjarstjórn Vesturbyggðar á 83. fundi sínum 21. apríl sl. að gefið verði út endurnýjað framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna efnisvinnslu í Tagli fyrir allt að 49.000m3, þar sem um er að ræða námu sem þegar er opin og umfangið þannig að hún er ekki háð umhverfismati. Bæjarráð heimilaði á 919. fundi sínum, 26. apríl sl. að heimila sölu á efni úr námunni til Vegagerðarinnar.

                  Til máls tóku: Forseti, JG og FM

                  JG lagði fram eftirfarandi bókun:

                  "Ekki skal heimila efnistöku í Taglinu umfram þá 49.000 rúmmetra sem nú eru til staðfestingar. Að þeirri efnistöku lokinni verði gengið frá svæðinu til framtíðar. Ég legg til að hafin verði þegar í stað undirbúningur að opnun sambærilegrar námu innan Vesturbyggðar á hentugri stað, enda er efnistaka þarna umdeild"

                  Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisráðs að gefið verði út endurnýjað framkvæmdaleyfi fyrir allt að 49.000 m3 vegna efnisvinnslu í Tagli skv. 13. gr. Skipulagslaga og hafin verði skoðun á því hvort hægt sé að finna hentugri stað til efnistöku á sambærilegu efni innan Vesturbyggðar.

                    Málsnúmer 1903090 3

                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                    10. Auglýsing um ákvörðun ráðherra vegna neyðarstigs almannavarna af völdum Covid-19

                    Lögð fram auglýsing nr. 534/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, með vísan til 3. mgr. 131. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011. Samkvæmt auglýsingunni veitir ráðherra sveitarstjórnum tímabundna heimild til að víkja frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga, svo sveitarstjórn sé starfhæf.
                    Lögð fram tillaga að tímabundinni heimild til breytinga á fyrirkomulagi funda bæjarstjórnar Vesturbyggðar og fastanefndum Vesturbyggðar, heimildin gildir til 31. júlí 2021.

                    Til máls tók: Forseti og FM.

                    Lagt er til að svo tryggja megi starfhæfi bæjarstjórnar Vesturbyggðar og til að auðvelda ákvarðanatöku að heimilt verði að notast við fjarfundabúnað á fundum bæjarstjórnar og hjá fastanefndum Vesturbyggðar. Engin takmörk verði á fjölda fundarmanna sem tekið geta þátt í fundum bæjarstjórnar og nefnda í fjarfundabúnaði. Einnig samþykkir bæjarstjórn Vesturbyggðar að ritun fundargerða fari í þeim tilfellum fram með öðrum hætti en mælt er fyrir um í leiðbeiningum innanríkisráðuneytisins um ritun fundargerða nr. 22/2013, frá 15. janúar 2013. Fundargerð skal deilt með öllum fundarmönnum á skjá við lok fundar og lesin yfir, hún skal svo send fundarmönnum til staðfestingar í tölvupósti eða undirrituð með rafrænum hætti.

                    Samþykkt samhljóða

                      Málsnúmer 2103038 3

                      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                      11. Dalbraut 30. Umsókn um leyfi fyrir bílskúr og lóðarstækkun.

                      Lagt fram erindi frá Lása ehf. dags. 11. apríl. Í erindinu er sótt um leyfi fyrir byggingu 60m2 bílskúrs SV við íbúðarhúsið að Dalbraut 30 og samsvarandi lóðarstækkun um 5 m til SV. Skipulags- og umhverfisráð tók jákvætt í erindið á 83. fundi sínum 21. apríl sl. og lagði til við bæjarstjórn að lóðin yrði stækkuð.

                      Til máls tók: Forseti

                      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða stækkun lóðar að Dalbraut 30 um 5 m til SV.

                        Málsnúmer 2104010 2

                        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                        12. Dufansdalur-Efri land 2, Ósk um stofnun lóðar

                        Lagt fram erindi frá Guðrúnu I. Halldórsdóttur og Brynhildi Halldórsdóttur ódags. Í erindinu er óskað eftir stofnun 11,7ha lóðar úr Dufansd. Efri land 2. Nýja lóðin skal heita Dufansdalur fremri. Erindinu fylgir lóðaruppdráttur sem og umsóknareyðublað. Skipulags- og umhverfisráð lagði til á 83. fundi sínum að stofnun lóðarinnar verði samþykkt.

                        Til máls tók: Forseti

                        Bæjarstjórn samþykkir samhljóða stofnun lóðarinnar Dufansdalur fremri.

                          Málsnúmer 2103051 2

                          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                          13. Dalbraut 43, Bíldudal. Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings.

                          Lagt fram erindi frá Landsbankanum hf. dags. 25. mars 2021. Í erindinu er sótt um endurnýjun á lóðarleigusamningi fyrir Dalbraut 43 á Bíldudal. Erindinu fylgir lóðaruppdráttur. Skipulags- og umhverfisráð lagði til á 83. fundi sínum að lóðaleigusamningurinn yrði samþykktur.

                          Til máls tók: Forseti

                          Bæjarstjórn samþykkir samhljóða endurnýjun lóðaleigusamnings fyrir Dalbraut 43 á Bíldudal.

                            Málsnúmer 2104027 2

                            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                            14. Umsókn um leyfi fyrir tímabundnu húsnæði við Völuvöll.

                            Forseti vék af fundi og fól varaforseta stjórn fundarins.

                            Lögð fram umsókn frá Arnarlax um leyfi fyrir tímabundnu húsnæði við Völuvöll. Erindið var tekið fyrir á 81. fundi skipulags- og umhverfisráðs þar sem samþykkt var að gera óverulega breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018. Skipulagsstofnun heimilaði óverulega breytingu á aðalskipulagi með afgreiðslubréfi, dagsett 10. mars 2021 en áður unnt er að staðfesta breytinguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þurfi að liggja fyrir yfirlýsing frá hagsmunaaðilum á svæðinu um að þeir geri ekki athugasemd við staðsetningu tímabundins húsnæðis á svæðinu. Breytingartillagan ásamt upplýsingum um áformin voru send til stjórnar Golfklúbbs Bíldudals, landeiganda jarðarinnar Litlu-Eyrar og fræðslu- og æskulýðsráðs Vesturbyggðar sem allir skiluðu umsögnum. Skipulags- og umhverfisráð lagði til að bæjarstjórn staðfesti óverulega breytingu á aðalskipulagi en vakti athygli bæjarstjórnar á því að tryggja þurfi aðkomu að svæðinu. Skipulags- og umhverfisráð lagði til að skipulagsfulltrúa yrði falið að senda óverulega breytingu ásamt umsögnum til Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga, og vakti athygli bæjarstjórnar á því að tryggja þarf aðkomu að svæðinu sbr. athugasemd landeigenda Litlu-Eyrar.

                            Þá ítrekar ráðið að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða og leggur til að í samningi um svæðið verði ákvæði um að Arnarlax skuli skila inn áætlun innan eins árs frá dagsetningu samningsins um hvernig Arnarlax hyggist mæta þeirri húsnæðisþörf til framtíðar sem tímabundna húsnæðinu er ætlað að mæta.

                            Til máls tóku: Varaforseti og FM

                            Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að senda óverulega breytingu ásamt umsögnum til Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga. Unnið verði með Arnarlax að tryggja aðkomu að svæðinu. Bæjarstjórn ítrekar að um byggingarleyfisskylda framkvæmd er að ræða og verður byggingaleyfi ekki veitt fyrr en gengið hafi verið frá samkomulagi við Arnarlax um skilyrði fyrir svæðinu, þar sem áhersla verði lögð á að vanda til verka við ásýnd og uppsetningu aðstöðunnar og náið samráð verði við Vesturbyggð um útfærsluna. Í samkomulaginu skal tilgreina stærð svæðisins, umfang mannvirkja, íbúafjölda, inniviði, tímalengd notkunar, frágang svæðis á notkunartíma og að notkunartíma loknum, þar sem leyfið er eingöngu veitt til þriggja ára. Þá tekur bæjarstjórn undir með skipulags- og umhverfisráði þá kröfu að Arnarlax skili inn áætlun innan eins árs frá dagsetningu samningsins um það hvernig Arnarlax hyggst mæta þeirri húsnæðisþörf til framtíðar sem tímabundna húsnæðinu er ætlað að mæta.

                            Varaforseti afhenti fundarstjórnina aftur til forseta.

                              Málsnúmer 2102001 8

                              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                              15. Orlofsbyggðin Flókalundi - Deiliskipulag

                              Tekin fyrir lýsing á deiliskipulagi Orlofsbyggðar Flókalundar, dagsett í mars 2021.

                              Innan skipulagssvæðisins eru alls fimmtán hús, þrettán þeirra eru orlofshús, eitt þjónustuhús fyrir sundlaug og loks þjónustuhús fyrir starfsemi orlofsbyggðarinnar.
                              Markmið stjórnar orlofsbyggðarinnar er að fjölga orlofshúsum á svæðinu um u.þ.b. 15 hús, ásamt því að gera ráð fyrir stækkun þjónustu- og sundlaugarhúsum. Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 83. fundi sínum 21. apríl sl. og fól skipulagsfulltrúa að óska umsagnar og auglýsa lýsinguna skv. 40 gr. skipulagslaga nr.123/2010 með fyrirvara um samþykki landeigenda.

                              Til máls tók: Forseti

                              Bæjarstjórn staðfestir bókun skipulags og umhverfisráðs.

                                Málsnúmer 2103054 2

                                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                                16. Umsókn um framkvæmdaleyfi til skógræktar á lögbýlinu Fossá m.Hamri Barðaströnd

                                Lagt fram erindi Bjarna Össurarsonar Rafnar og Sigrúnar Þorgeirsdóttur dags. 1. október 2020 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi til skógræktar í landi Fossár (landnúmer 139798) á 21.5 ha svæði. Meðfylgjandi erindinu er hnitsettur uppdráttur, fornleifaskráning og umsögn Minjavarðar.

                                Skógræktarsvæðið var áður nýtt sem beitiland en búskapur hefur ekki verið á jörðinni í fjölda ára. Svæðið er ekki á náttúruminjaskrá eða nýtur sérstakrar verndar skv. lögum um náttúruvernd. Alls voru skráðir 19 stakir minjastaðir innan og skammt utan svæðisins. 13 þeirra eru búsetuminjar jarðarinnar Fossár og 6 tengjast leið yfir Fossárháls. 17 minjar eru sýnilegar og 2 eru heimildir um minjar. Svæðið sem um ræðir er á Öskjudal, milli Bóllækjar og Öskjudalsár, ofan núverandi þjóðvegar. Sérstök aðgát skal höfð við framkvæmdir og rask í nágrenni skráðra fornleifa og ofangreindir minjastaðir njóta 15 metra friðhelgs svæðis við hverskonar framkvæmdir skv. lögum um menningarminjar nr. 80/2012.

                                Framkvæmdin er í samræmi við gildandi aðalskipulag Vesturbyggðar 2006-2018 þar sem svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland og heimilt að vera með skógrækt.

                                Skipulags- og umhverfisráð tók málið fyrir á 83. fundi sínum 21. apríl sl. og samþykkti að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

                                Til máls tók: Forseti

                                Bæjarstjórn staðfestir bókun skipulags og umhverfisráðs.

                                  Málsnúmer 2010027 2

                                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                                  17. Þróunarþorpið á Vatneyri

                                  Lögð fram tillaga Vestfjarðastofu og Vesturbyggðar um samstarfsverkefni um Þróunarþorp á Vatneyri. Þorpið næði frá Aðalstræti 9 Patreksfirði, niður að gömlu smiðjunni og þaðan að Verbúðinni. Tilgangur verkefnisins er að efla og glæða Vatneyrina á Patreksfirði lífi þar sem saman fléttast menning, útivist, nýsköpun og önnur starfsemi. Mótaðar hugmyndir og framtíðarsýn Vatneyrar sem nýta má til að byggja upp svæðið og ímynd. Bæjarráð lagði til á 919. fundi sínum að Vesturbyggð taki þátt í samstarfsverkefninu.

                                  Til máls tók: Forseti

                                  Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að taka þátt í samstarfsverkefninu um þróunarþorpið á Vatneyri.

                                    Málsnúmer 2104053 3

                                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                                    Fundargerð

                                    18. Bæjarráð - 917

                                    Lögð er fram til kynningar fundargerð 917. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 23. mars 2021. Fundargerðin er í 18 liðum.

                                    Til máls tók: Forseti

                                    • 18.1. #2103058 – Skólaakstur - skólaárið 2021 og 2022
                                    • 18.2. #2103025 – Mál nr. 273 um Stjórnartíðindi og Lögbirtingarblaðið og aukatekjur ríkissjóðs ( gjaldfrjáls rafræn útgáfa). Ósk um umsögn
                                    • 18.3. #2103026 – Mál nr. 561 um greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins ( samþætting þjónustu,hlutverk o.fl.). Ósk um umsögn
                                    • 18.4. #2103027 – Mál nr.470 um brottfall laga um Kristnisjóð o.fl., nr 351970 með síðari breytingum. Ósk um umsögn.
                                    • 18.5. #2103041 – Mál nr. 563 um breytingu á lögum um réttindi sjúkinga, nr.74-1997 ( beiting nauðungar). Ósk um umsögn
                                    • 18.6. #2103043 – Mál nr. 585 um beytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Ósk um umsögn
                                    • 18.7. #2103045 – Mál nr. 496 um breytingu á lögum um kostningar til Alþingis (fjölgun jöfnunarsæta). Ósk um umsögn
                                    • 18.8. #2103047 – Mál nr. 491 um breytingu á sveitarstjórnarlögum ( borgarafundir, íbúakostningar um einstök mál). Ósk um umsögn
                                    • 18.9. #2103056 – Mál nr. 602 um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga ( alþjóðleg vernd,brottvísanir,dvalar- og atvinnuleyfi). Ósk um umsögn
                                    • 18.10. #2103044 – Mál nr. 495 um breytingu á ýmsum lögum vegna stuðnings til smærri innlendra áfengisframleiðenda. Ósk um umsögn
                                    • 18.11. #2101008 – Sameining sveitarfélaga - könnun á hagkvæmni
                                    • 18.12. #2103010 – Fjárhagsáætlun 2021 - viðaukar
                                    • 18.13. #2103031 – Tryggingar Vesturbyggðar
                                    • 18.14. #2103040 – Þjóðskógur í Vesturbyggð
                                    • 18.15. #2103033 – Aðalfundur Lánasjóðsins 26 mars 2021 - Fundarboð
                                    • 18.16. #2103049 – Landvarsla við Breiðafjörð sumarið 2020 - Lokaskýrsla
                                    • 18.17. #2103042 – Áskorun um endurákværðun álagningar stöðuleyfisgjalda
                                    • 18.18. #2103007 – Tilkynning til sveitarfélaga - Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög

                                    Málsnúmer 2103009F

                                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                                    19. Fræðslu- og æskulýðsráð - 70

                                    Lögð er fram til kynningar fundargerð 70. fundar fræðslu- og æskulýðsráðs, fundurinn var haldinn 29. mars 2021. Fundargerðin er í 11 liðum.

                                    Til máls tók: Forseti

                                    • 19.1. #2103019 – Leikskólinn Araklettur - breyting á skóladagatali 2020-2021
                                    • 19.2. #2103061 – Leikskólinn Araklettur - ráðning leikskólastjóra
                                    • 19.3. #2102065 – Mál nr. 188 um stjórnarskipunarlög (kosningaaldur). Ósk um umsögn
                                    • 19.4. #2103071 – Bíldudalsskóli - breyting á skóladagatali
                                    • 19.5. #2103020 – Leikskólinn Araklettur - skóladagatal 2021-2022
                                    • 19.6. #2103023 – Bildudalsskóli og Tjarnarbrekka - skóladagatal 2021-2022
                                    • 19.7. #2103022 – Patreksskóli - skóladagatal 2021-2022
                                    • 19.8. #2103057 – Fræðsluáætlun í grunnskólum - skýrsla í kjölfar starfagreiningar
                                    • 19.9. #2009015 – Stóra upplestrarkeppnin 2021
                                    • 19.10. #2103048 – Áskorun til sveitarfélaga um að nota innlend matvæli í skólamáltíðir
                                    • 19.11. #2102001 – Umsókn um leyfi fyrir tímabundnu húsnæði við Völuvöll.

                                    Málsnúmer 2103003F

                                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                                    20. Bæjarráð - 918

                                    Lögð er fram til kynningar fundargerð 918. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 13. apríl 2021. Fundargerðin er í 14 liðum.

                                    Til máls tók: Forseti

                                    • 20.1. #2004011 – Hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði
                                    • 20.2. #2103091 – Aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili
                                    • 20.3. #2103092 – Niðurstöður sýnatöku og eftirlit vegna Vatnsveitu Bíldudal
                                    • 20.4. #2101002 – Mál SRN20120045, breyting á ýmsum lögum vegna Covid-19 á sveitarfélög
                                    • 20.5. #2102060 – Fundargerðir stjórnar Vestfjarðastofu 2021
                                    • 20.6. #2104006 – Orlof húsmæðra 2021
                                    • 20.7. #2103090 – Beiðni um tilnefningu í samstarfsnefnd um Látrabjarg
                                    • 20.8. #2102078 – Vatnsveita Brjánslæk
                                    • 20.9. #2103088 – Fundargerð nr. 896 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
                                    • 20.10. #2103064 – Tillaga að friðlýsingu á sunnanverðum Vestfjörðum
                                    • 20.11. #2103074 – Aðalstræti 53 Brunavarnir - Patreksskóli
                                    • 20.12. #2103078 – Aðalfundur LSE 2021
                                    • 20.13. #2103082 – Mál nr. 622 um almannavarnir ( almannavarnastig o.fl.) Ósk um umsögn
                                    • 20.14. #2104005 – Mál nr. 645 um lýðheilsustefnu til ársins 2030. Ósk um umsögn

                                    Málsnúmer 2104001F

                                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                                    21. Menningar- og ferðamálaráð - 15

                                    Lögð er fram til kynningar fundargerð 15. fundar menningar- og ferðamálaráðs, fundurinn var haldinn 13. apríl 2021. Fundargerðin er í 5 liðum.

                                    Til máls tók: Forseti

                                    • 21.1. #2006062 – Garðar BA
                                    • 21.2. #2103087 – Ósk um styrk til reksturs Skrímslasetursins á Bíldudal 2021
                                    • 21.3. #1910002 – Styrkir Menningar-og ferðamálaráðs
                                    • 21.4. #2103069 – Skilti við Rauðasand
                                    • 21.5. #2006007 – Tjaldsvæði í Vesturbyggð

                                    Málsnúmer 2103002F

                                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                                    22. Hafna- og atvinnumálaráð - 30

                                    Lögð er fram til kynningar fundargerð 30. fundar hafna- og atvinnumálaráðs, fundurinn var haldinn 19. apríl 2021. Fundargerðin er í 6 liðum.

                                    Til máls tók: Forseti

                                    • 22.1. #2103035 – Framkvæmdir hafnasjóðs Vesturbyggðar 2021
                                    • 22.2. #2103077 – Sjávarútvegsskólinn 2021
                                    • 22.3. #2104031 – Deiliskipulag Hafnarsvæðis á Bíldudal
                                    • 22.4. #2104004 – Umsókn um lóð á Bíldudalshöfn.
                                    • 22.5. #2103067 – Fundargerð 433 fundar stjórnar Hafnarsamband Íslands
                                    • 22.6. #2103068 – Ársreikningur hafnasamband 2020

                                    Málsnúmer 2103007F

                                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                                    23. Skipulags og umhverfisráð - 83

                                    Lögð er fram til kynningar fundargerð 83. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 21. apríl 2021. Fundargerðin er í 13 liðum.

                                    Til máls tók: Forseti

                                    • 23.1. #2103054 – Orlofsbyggðin Flókalundi - Deiliskipulag
                                    • 23.2. #2104027 – Dalbraut 43, Bíldudal. Ósk um endurnýjun lóðarleigusamnings.
                                    • 23.3. #2010027 – Umsókn um framkvæmdaleyfi til skógræktar á lögbýlinu Fossá m.Hamri Barðaströnd
                                    • 23.4. #1903024 – Vesturbyggð - Aðalskipulag 2018-2030
                                    • 23.5. #2103086 – Drög af tillögu að matsáætlun - Snjóflóðavarnir ofan Bíldudals
                                    • 23.6. #2104007 – Fyrirspurn, viðbygging við Strandgötu 1, Bíldudal.
                                    • 23.7. #2104010 – Dalbraut 30. Umsókn um leyfi fyrir bílskúr og lóðarstækkun.
                                    • 23.8. #2102001 – Umsókn um leyfi fyrir tímabundnu húsnæði við Völuvöll.
                                    • 23.9. #2104013 – Umsókn um lóð fyrir björgunarsveitarhús.
                                    • 23.10. #2104014 – Jarðstrengur milli Mjólkár og Bíldudals -beiðni um umsögn
                                    • 23.11. #2103051 – Dufansdalur-Efri land 2, Ósk um stofnun lóðar
                                    • 23.12. #1903090 – Efnisvinnsla Tagl - umsókn um framkvæmdaleyfi.
                                    • 23.13. #2102040 – Hjallar 24, umsókn um byggingaráform

                                    Málsnúmer 2103008F

                                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                                    24. Bæjarráð - 919

                                    Lögð er fram til kynningar fundargerð 919. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 26. apríl 2021. Fundargerðin er í 25 liðum.

                                    Til máls tók: Forseti

                                    • 24.1. #2104041 – Ársreikningur Vesturbyggðar 2020
                                    • 24.2. #2102001 – Umsókn um leyfi fyrir tímabundnu húsnæði við Völuvöll.
                                    • 24.3. #2104044 – Styrkvegir 2021 umsóknir
                                    • 24.4. #2102060 – Fundargerðir stjórnar Vestfjarðastofu 2021
                                    • 24.5. #2104014 – Jarðstrengur milli Mjólkár og Bíldudals -beiðni um umsögn
                                    • 24.6. #2104052 – Sumarstörf námsmanna sumarið 2021
                                    • 24.7. #2104048 – Mál nr. 539 um tillögu til þingályktunar um skráða sambúð fleiri en tveggja aðila. Ósk um umsögn
                                    • 24.8. #2104045 – Mál nr. 668 um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra ( gagnsæi, skráning og vinnsla persónuupplýsinga) Ósk um umsögn
                                    • 24.9. #2104049 – Mál nr. 702 um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð. Ósk um umsögn.
                                    • 24.10. #2104021 – Mál nr. 705 um endurskoðaða landsskipulagsstefnu 2015-2026. Ósk um umsögn
                                    • 24.11. #2104023 – Mál 707 um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands. Ósk um umsögn
                                    • 24.12. #2002127 – Vesturbyggð - Aðalskipulag 2018-2035
                                    • 24.13. #2104026 – Mál nr. 708 um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald ( EES-reglur, hringrásarhagkerfi). Ósk um umsögn
                                    • 24.14. #2104022 – Mál nr. 709 um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun ( málsmeðferð virkjunarkosta í vindorku). Ósk um umsögn
                                    • 24.15. #2104029 – Mál nr. 712 um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Ósk um umsögn
                                    • 24.16. #2104018 – Mál nr. 713 um frumvarp til laga um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur ( nikótínvörur). Ósk um umsögn
                                    • 24.17. #2104025 – Mál nr. 715 um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála ( öflun sakavottorðs). Ósk um umsögn
                                    • 24.18. #2104024 – Mál nr. 716 um frumvarp til laga grunnskóla og framhaldsskóla ( fagráð eineltismála). ósk um umsögn
                                    • 24.19. #2104051 – Framkvæmdir og fegrun umhverfis á Bíldudal
                                    • 24.20. #2104050 – Malbik kantsteinar fjárhagsáætlun viðauki
                                    • 24.21. #1903090 – Efnisvinnsla Tagl - umsókn um framkvæmdaleyfi.
                                    • 24.22. #2006016 – Hitaveita Krossholti
                                    • 24.23. #2103087 – Ósk um styrk til reksturs Skrímslasetursins á Bíldudal 2021
                                    • 24.24. #2104017 – Varðandi fjármál sveitarfélaga í kjölfar Covid-19
                                    • 24.25. #2104053 – Þróunarþorpið á Vatneyri

                                    Málsnúmer 2104004F

                                    Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                                    Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:46


                                    Vesturbyggð

                                    Ráðhús Aðalstræti 75, Patreksfjörður

                                    +354 450 2300 vesturbyggd@vesturbyggd.is kt. 510694 2369


                                    2018 & 2019 Opinberi vefur ársins

                                    2018 Vefur ársins

                                    2020 Jafnlaunavottun